Rúmlega sjö af hverjum tíu vilja að Sigríður Á. Andersen segi af sér

Tæplega fjórði hver Sjálf­stæð­is­maður vill að Sigríður Á. Andersen segi af sér emb­ætti. Yfir­gnæf­andi stuðn­ingur er við afsögn hennar hjá kjós­endum hinna stjórn­ar­flokk­anna, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks.

72,5 pró­sent lands­manna vilja að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra segi af sér emb­ætti. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína vann fyrir Stundina. Svar­endur voru 858 tals­ins og 88,7 pró­sent þeirra tóku afstöðu til­spurn­ing­ar­innar.

Spurt var „Finnst þér að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra eigi að segja af sér ráð­herra­dómi eða á hún að sitja áfram sem dóms­mála­ráð­herra?“

[links[Líkt og áður sagði svör­uðu 72,5 pró­sent þeirra sem svör­uðu spurn­ing­unni á þann hátt að Sigríður ætti að segja af sér. 27,5 pró­sent taldi að hún ætti að sitja áfram.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks skera sig úr í stuðn­ingi við Sigríði. Einungis 23 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna vilja að hún segi af sér og 44 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins. Athygli vekur að 72 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og 92 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna vilja afsögn Sigríðar, en flokk­arnir tveir mynda rík­is­stjórn­ina sem Sigríður situr í, ásamt Sjálf­stæð­is­flokknum. Nær allir kjós­endur Sam­fylk­ingar og Pírata eru þeirrar skoð­unar að Sigríður eigi að segja af sér og 72 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins telja að af því eigi að verða.

Fólk með heim­il­is­tekjur yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði er ólík­leg­ast til að vilja afsögn Sigríðar, en 64 pró­sent þeirra vilja að hún hætti. Sá tekju­hópur sem vill helst að hún segi af sér er sá sem er með á milli milljón og 1.119 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði, en 79 pró­sent þess hóps er þeirrar skoð­unar.

Yngra fólk og konur vilja frekar að Sigríður segi af sér en það eldra og karlar. Mestur stuðn­ingur við afsögn Sigríðar er á Norð­ur­landi (78 pró­sent) en minnstur á Aust­ur­landi (65 pró­sent). Engin mæl­an­legur munur er á afstöðu fólks til máls­ins eftir menntun.

Braut gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga

Meg­in­á­stæða þess að Sig­ríður er undir pressu um að segja af sér er Lands­rétt­ar­málið svo­kall­aða. Hún ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Þess í stað ákvað Sigríður að til­nefna fjóra ein­stak­linga dóm­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­ustu. Alþingi sam­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

[adspot]Ást­ráður Har­alds­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­son, sem urðu báðir af dóm­­ara­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­ar, stefndu rík­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­ar. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­fræð­ingar stjórn­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti far­ið.

Þeir eru báðir starf­andi lög­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­töl og þar með upp­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­ur­­kenn­ing­­ar­­kröfu um fjár­­tjón. Íslenska rík­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­ur.

Gætu átt háar bóta­kröfur

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­­ara höfð­uðu ekki mál. Annar þeirra, Jón Hösk­­ulds­­son hér­­aðs­­dóm­­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og Jón hefur nú höfðað mál.

Jón krefst þess að fá bætt mis­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­ara við Lands­rétt ann­­ars vegar og hér­­aðs­­dóm­­ara hins veg­­ar. Jón krefst þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­­ar­­dóm­­arar fá 1,7 millj­­ónir króna í laun á mán­uði en hér­­aðs­­dóm­­arar 1,3 millj­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því 23. jan­úar að Eiríkur hefði einnig ákveðið að stefna rík­inu. Hann er, líkt og áður sagði, pró­­­fessor við laga­­­deild Háskóla Íslands. Hann er fæddur árið 1977 og er því fer­tugur að aldri. Eiríkur á því um 27 ár eftir á vinn­u­­­mark­aði miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­launa­ald­­­ur. Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum á heima­­­síðu félags pró­­­fess­ora ætti Eiríkur að vera með á bil­inu 659.683 til 727.572 krónur í mán­að­­­ar­­­laun.

Það er um einni milljón króna frá þeim mán­að­­­ar­­­launum sem hann hefði haft sem dóm­­­ari við Lands­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár