Sjö af hverjum tíu rekist á falsfréttir á síðustu tólf mánuðum – mest á Facebook

Fjöl­miðla­nefnd hefur kannað miðla­læsi almenn­ings með það meðal ann­ars að mark­miði að kort­leggja færni almenn­ings til að þekkja fals­fréttir og átta sig á upp­runa heim­ilda. 69 pró­sent höfðu séð mis­vísandi upp­lýs­ingu­arum kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn síð­asta árið.

Mest er um að fólk rekist á falsfréttir á Facebook. Nokkuð er um að fólk rekist á misvísandi upplýsingar eða falsfréttir á öðrum samfélagsmiðlum, líkt og Twitter, Snapchat, TikTok, Instagram eða WhatsApp
Mest er um að fólk rek­ist á fals­fréttir á Facebook. Nokkuð er um að fólk rek­ist á mis­vísandi upp­lýs­ingar eða fals­fréttir á öðrum sam­fé­lags­miðlum, líkt og Twitter, Snapchat, TikTok, Instagram eða WhatsApp Mynd: EPA

Átta af hverjum tíu hafa á síð­ustu tólf mán­uðum efast um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga sem við­kom­andi hafa rek­ist á á net­inu og sjö af hverjum tíu hafa séð fals­fréttir, fengið þær sendar eða rek­ist á þær með öðrum hætti á sama tíma­bili. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu fjöl­miðla­nefndar um fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu en fjöl­miðla­nefnd lét fram­kvæma spurn­inga­könnun um efnið í febr­úar og mars á þessu ári.

Töluvert er um mis­vísandi upp­lýs­ingar um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á net­inu, alls höfðu 69 pró­sent þátt­tak­enda orðið vör við upp­lýs­inga­óreiðu eða rek­ist á fals­fréttir um far­ald­ur­inn á net­inu. Þar af sögð­ust rúm­lega 83 pró­sent hafa rek­ist á slíkt á Facebook, rétt tæp 50 pró­sent á vef­svæðum sem ekki hafa rit­stjórn og tæp 39 pró­sent á öðrum sam­fé­lags­miðlum, líkt og Twitter, Snapchat, TikTok, Instagram eða WhatsApp. Í sam­bæri­legri könnun sem gerð var í Noregi hafði um helm­ingur þátt­tak­enda rek­ist á fals­fréttir um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og einn af hverjum þremur sagði það hafa verið á Facebook.

„Nið­ur­stöð­urnar eru sér­lega athygl­is­verðar þegar að þær eru bornar saman við sam­bæri­lega könnun sem gerð var í Noregi, þar sem hlut­fall þeirra sem segj­ast hafa séð fals­fréttir eða efast um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga á net­inu er mun hærra á Íslandi en í Noregi,“ segir Skúli Bragi Geirdal verk­efna­stjóri miðla­læsis hjá fjöl­miðla­nefnd í til­kynn­ingu. Í Noregi voru 13,4% færri sem efuð­ust um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga heldur en á Íslandi og 25,7% færri sem höfðu rek­ist á eða fengið sendar fals­fréttir.

Ólíkir aldurshópar bregðast ólíkt við

Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 15 til 17 ára, er sá ald­urs­hópur sem er ólík­leg­astur til að efast um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga, sá ald­urs­hópur er aftur á móti lík­leg­astur til þess að leita ráða hjá öðrum vegna ótrú­verð­ugra frétta eða upp­lýs­inga.

Fæstir í ald­urs­hópnum 60 ára og eldri töldu sig hafa séð fals­fréttir, fengið þær sendar eða rek­ist á þær á síð­ustu tólf mán­uðum. Tæpur helm­ingur, 48,1 pró­sent, taldi sig hafa séð fals­fréttir á tíma­bil­inu. Með­al­talið í öllum öðrum ald­urs­hópum var 72,1 pró­sent. Elsti ald­urs­hóp­ur­inn var aftur á móti sá hópur sem átti í mestum erf­ið­leikum með að bregð­ast við fals­fréttum, „þ.e. að láta blekkj­ast af fals­fréttum, efast um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga á net­inu og mynda sér ranga skoðun á opin­berri per­sónu vegna vill­andi upp­lýs­inga í fjöl­miðlum.“

Meðal þeirra ráða sem þátt­tak­endur könn­un­ar­innar gripu til þegar þau höfðu síð­ast rek­ist á frétt sem þau efuð­ust um að væri sönn og rétt var að kanna aðrar heim­ildir sem þau treystu. Það gerðu um 55 pró­sent þátt­tak­enda. Tæp 39 pró­sent slógu efni frétt­ar­innar inn í leit­ar­vél til að kanna sann­leiks­gildi hennar en tæpur fjórð­ungur sagð­ist ekk­ert hafa aðhafst. Rúmlega fimmt­ungur hafði kannað vefslóð eða IP-tölu við­kom­andi vef­mið­ils.

Kanna miðlalæsi ólíkra hópa

Í inn­gangskafla skýrsl­unnar segir að fjöl­miðla­nefnd sé ætlað það hlut­verk sam­kvæmt lögum að efla miðla­læsi og auka skiln­ing á hlut­verki og notkun ólíkra miðla. Með inn­leið­ingu nýrrar hljóð- og mynd­miðl­un­ar­til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins verður þetta hlut­verk nefnd­ar­innar áréttað enn frekar en með til­skip­un­inni er gert ráð fyrir að fjöl­miðla­nefnd geri áætlun og ráð­staf­anir til að efla og þroska miðla­læsi almenn­ings og að nefndin skili skýrslu til Eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar EFTA um árang­ur­inn þriðja hvert ár.

Mik­il­vægt sé að fyrir liggi upp­lýs­ingar um færni og þekk­ingu ólíkra hópa í sam­fé­lag­inu til þess að hægt sé að móta heild­stæða stefnu á sviði miðla­læsis og ákveða for­gangs­röðun verk­efna, segir enn fremur í inn­gangi skýrsl­unnar. Því hafi nefndin gert víð­tæka spurn­inga­könnun í febr­úar og mars á þessu ári. Könnunin byggir á norskri fyr­ir­mynd sem hefur það að mark­miði „að kort­leggja færni almenn­ings til að þekkja fals­fréttir, geta greint rit­stjórn­ar­efni frá aug­lýs­ingum, geta áttað sig á upp­runa heim­ilda, trausti til ólíkra miðla og hvernig eigi að gæta að með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga á net­inu.“

Starfshópur um upplýsingaóreiðu skipaður í fyrra

[links] Þjóðar­ör­ygg­is­ráð ákvað í fyrra­vor að koma á fót starfs­hópi til að kort­leggja birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera til­lögur um aðgerðir til að sporna við henni. Í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins þegar starfs­hópnum var komið á fót segir að íslensk stjórn­völd hafi átt í sam­starfi við önnur EES-ríki um að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu og rang­færlsum í tengslum við COVID-19.

Meðal þess sem upp­lýs­inga­óreiðu­hóp­ur­inn hefur gert til þessa er að koma á sam­starfi við rit­nefnd COVID-19 verk­efnis Vís­inda­vefs Háskóla Íslands, en á Vís­inda­vefnum hafa verið sett fram svör við fjöl­mörgum spurn­ingum um veiru­far­ald­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár