Holræsi sem rúmar syndaflóð

Gróð­ur­húsa­loft­teg­und­irnar eru að búa til nýtt veð­ur­far. Ekki bara hærri með­al­hita heldur meiri öfgar yfir höfuð. Vatns­veður verða tíð­ari og sjáv­ar­mál hækkar. Samt sem áður byggja menn borgir, vegi og hús sem ekki munu þola vatns­veðrið. „Við ráðum ekki einu sinni við veðrið í dag, hvernig ætlum við þá að ráða við veður fram­tíð­ar­innar?” spyr Anita Verpe Dyrrdal, vís­inda­maður við Norsku veð­ur­stof­una í pistli á NRK.

Engin undankomuleið fyrir vatnið

Gleymið synda­flóð­inu; núna eru allir að tala um skyndi­flóð, eða flash floods á ensku. Margir tala líka um borg­ar­flóð, sem er sér­tækt vanda­mál í borgum heims­ins. Hellidemburnar fara vax­andi og á sama tíma er mann­fólkið búið að mal­bika svo mikið að vatnið kemst ekki niður í jörð­ina. Farðu hérn’oní, segjum við við vatnið, og bendum á hol­ræsið. Gleymdu því, svarar vatnið. Og flæðir oní kjall­ara í stað­inn.

Auðvitað munu verða flóð í sveitum líka, en þar getur nátt­úran ráðið við að taka á móti ríf­lega með­al­flæði. Í borg­unum er búið að byggja yfir árfar­vegi og læki og hol­ræsa­kerfið er hannað til að taka á móti ákveðnu magni af vatni. Ef það kemur meira en svo, þá eru afleið­ing­arnar skemmdir á innviðum og eigna­tjón almenn­ings og yfir í frétta­myndir af lög­reglu á gúmmí­bát að bjarga fólki af bíl­þökum.

Svampborgir nýta regnvatnið

Út um allan heim er verið að reyna að snúa vörn í sókn, auka getu borg­anna til að taka á móti miklu vatni á stuttum tíma og jafn­vel ná að nýta regn­vatn til góðs. Í Osló og fleiri stór­borgum hafa árfar­vegir verið opn­aðir á ný og hann­aðir til að geta tekið á móti og hamið vatns­flaum. Opin rás rúmar meira vatn en lokað rör.

Þetta er sér­lega vel heppnað í Bjerkeda­len garð­inum í Austur-Osló, þar sem lands­lags­arki­tektar hafa búið til flottan almenn­ings­garð í kringum nýopn­aðan far­veg Hovin­bekken, með bað­ströndum, leik­svæðum og hjóla­stígum. Á fimmtu­dag­inn var hlaut verk­efnið arki­tekta­verð­laun Osló­ar­borgar árið 2015.

Breska blaðið Guardian fjall­aði nýlega um svamp­borgir, nýja hugsun í borg­ar­skipu­lagi sem Kín­verjar hafa verið sér­stak­lega áhuga­samir um. Í Kína hafa byggst upp margar stórar borgir á skömmum tíma, án neins þaul­hugs­aðs skipu­lags. Inn­við­irnir ráða ekki við regn­vatnið og á sama tíma skortir neyslu­vatn. 16 kín­verskar borgir hafa fengið fjár­styrk til að þróa og prófa leiðir til að safna regn­vatni í síun­ar­tjarnir og skurði og nota sér­stakt lekt mal­bik til að hleypa vatn­inu niður í jörð­ina. Lang­tíma­mark­miðið er að geta nýtt 60% af regn­vatn­inu sem fellur innan borg­ar­markanna. Á vef Guardian var teng­ill á þetta mynd­skeið frá breskum mal­biks­fram­leið­anda sem sýnir steypu­bíl hella 4000 lítrum af vatni á bíla­stæði með slíku mal­biki og það lekur beint í gegn.


Langtímafjárfestingar

Til að regn­vatn geti nýst sem drykkj­ar­vatn þarf að hreinsa það, en einnig væri hægt að nýta það í kló­sett­lagnir eða annað “grátt vatn” sem ekki þarf að vera jafn­hreint. Fá svæði eða bygg­ingar eru hins vegar með lagna­kerfi sem gerir ráð fyrir slíkri aðgrein­ingu.

Í Los Angeles er verið að gera til­raunir með að dæla vatni aftur niður í berggrunn­inn til að fylla á grunn­vatnið á svæð­inu. Þannig má hugsa sér að maður fylli á vatns­tank­inn til að spara til mögru, eða þurru áranna.

Þetta kostar auð­vitað sitt og það er langt í land. En ein­hvers staðar verður að byrja. Þetta er lang­tíma­fjár­fest­ing, sem getur skilað sér í sparn­aði. Það kostar líka sitt að bæta og stækka hol­ræsa­kerfið. Í Noregi er áætlað að ef vel ætti að vera þyrfti að nota sem nemur heilum fjár­lögum, þ.e. öllum útgjöldum norska rík­is­ins í heilt ár, til að upp­færa hol­ræsa- og gatna­kerfi í norsku þétt­býli til að ná ásætt­an­legu ástandi fyrir 2030. Á sama tíma hafa norsk trygg­inga­fé­lög verið að borga 10-40 millj­arða íslenskra króna á ári í bætur fyrir skaða af völdum óveð­urs á und­an­förnum árum.

Blómin á þakinu

Torfþök eru í tísku í stór­borgum heims­ins. Sífellt fleiri háhýsi í London, New York og víðar eru komin með græn þök, ýmist með nytja­plöntum eða skrúð­görðum. Gróð­ur­inn nýtir nokkuð af vatn­inu sem til fellur og gróð­ur­moldin getur þar að auki auð­veldað vatns­söfnun og –stjórnun á þak­inu, þannig að minna rennur um þak­renn­urnar og niður á göt­urnar.

Búgarð­ur­inn Brooklyn Grange fram­leiðir yfir 25 tonn af líf­rænt rækt­uðu græn­meti á háhýsum í hjarta New York borgar. Þar eru meira að segja býflugnabú og hun­angs­fram­leiðsla í háloft­unum.

Gróð­ur­inn er kær­komin vin fyrir íbúa eða starfs­fólk í hús­unum. Plönt­urnar virka þar að auki sem sól­hlíf, lækka hita­stigið í hús­inu og þá þarf minni loft­kæl­ingu á heit­ustu dög­unum. Líkt og aðrar fyr­ir­byggj­andi inn­viða­fjár­fest­ingar af þessu tagi, þá verður að hugsa dæmið til langs tíma.

Norsk hús þola ekki rigningu

Norskir vís­inda­menn spá því að úrkoma muni aukast um 18% að með­al­tali í land­inu á þess­ari öld og flóða­hætta magn­ast enn meira en það á vissum stöðum. Þetta er sam­kvæmt hóf­samasta mati og ein­skorð­ast ekki við Noreg, heldur verður vanda­mál mjög víða. Eftir því sem hlýnar og minna fellur af snjó mun draga úr flóðum tengdum vor­leys­ingum. Á sama tíma fjölgar hellidembunum og flóðum af þeirra völdum.

Veð­ur­fræð­ing­arnir vara við auk­inni flóða­hættu og meiri öfgum í veð­ur­fari. Bygg­ing­ar­sér­fræð­ingar vara hins vegar við lúm­sk­ari afleið­ingum vatns­veð­urs­ins, nefni­lega raka­skemmdum og myglu­sveppum í bygg­ingum. Votara veður og hærri hiti verður gullöld fyrir myglu og aðra skað­valda.

Vís­inda­menn í bygg­inga­deild norsku rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar SINTEF segja að þrátt fyrir að norskt veð­ur­far hafi lengi verið krefj­andi, þá sé samt eins og mörg norsk hús þoli ekki rign­ingu. Vís­inda­menn­irnir segj­ast sjá að sömu mis­tökin séu gerð aftur og aftur og oft af sama fólk­inu. Stærri fyr­ir­tæki og meiri ein­inga­bygg­ingar gera það að verkum að stað­bundin kunn­átta um veð­ur­far er ekki lengur nýtt við hús­bygg­ingar. Menn leita ódýrra lausna sem kemur niður á gæðum bygg­ing­ar­innar og veikir varn­irnar gegn veðri og vindum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár