Sótt að ríkisstjórn og umhverfismálin fengu meira vægi en oft áður

Fjörugar eld­hús­dags­um­ræður á Alþingi sýndu skarpar línur í íslenskum stjórn­málum. Frjáls­lyndi og íhalds­semi virð­ast tveir pólar þessi miss­erin, frekar en hægri og vinstri.

Í ræðum þing­manna í eld­hús­dags­um­ræðum í gær var rætt um hin ýmsu mál og beindust spjót stjórn­ar­and­stöðu ekki síst að íhalds­samri afstöðu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, hvort sem það á rétt á sér eða ekki. Umhverf­is­málin fengu líka mikla athygli, meiri en oft áður í eld­hús­dags­um­ræðum.

Umræð­urnar skipt­ust í þrjár umferðir og hafði hver þing­flokkur 8 mín­útur í fyrstu umferð, 5 mín­útur í annarri og 5 mín­útur síð­ustu umferð. Samtals voru ræð­urnar 24.

Sagði Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, að rík­is­stjórnin væri mynduð um í kyrr­stöðu og aft­ur­halds- og íhalds­sama sýn á stjórn­málin. Lagði hann sér­stak­lega áherslu á þessi mál, þegar umfjöllun um efna­hags­málin var ann­ars vegar, og pen­inga­mála­stefnan þar á meðal. Hanna Katrín Frið­riks­son sagði óljós skila­boð ber­ast frá rík­is­stjórn­inni, þar sem oft væri aug­ljós mál­efna­legur ágrein­ingur milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Kyrr­staða væri því oft nið­ur­staðan.

Oddný Harð­ar­dóttir, Sam­fylk­ingu, gagn­rýndi Katrínu Jak­obs­dóttur harð­lega, fyrir að gefa Sjálf­stæð­is­flokknum sviðið í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, en Anna Kolbrún Árna­dóttir, Mið­flokki, sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn hins vegar beygja sig fyrir stefnu Vinstri grænna í heil­brigð­is­málum, og það væri að bitna á sjúk­lingum.

Sést spillingin betur?

Píratinn Halldóra Mogensen velti fyrir sér hvernig á því stæði, að traust á Alþingi hefði dvínað. Hvort það gæti verið, að vegna betra aðgengis að upp­lýs­ingum væri auð­veld­ara að greina spill­ingu og valda­þræð­ina en áður.

Inga Sæland, Flokki fólks­ins, lagði áherslu á það í ræðum sínum tveimur, að rík­is­stjórnin gleymdi ekki þeim sem minna mega sín.

Haraldur Bene­dikts­son, Sjálf­stæð­is­flokki, ræddi um mik­il­vægi þess að rík­is­stjórnin starf­aði eftir jafn­væg­is­list­inni og næði að bregð­ast við sam­drætti í efna­hags­málum með ábyrgum hætti. Allar for­sendur væru til þess.

Gjörbreytt staða

Það var einnig leið­ar­stef Willums Þórs Þórs­sonar, Fram­sókn­ar­flokki, og Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, Vinstri grænum. Enda stendur rík­is­stjórnin nú frammi fyrir gjör­breyttum efna­hags­veru­leika, eftir fall WOW air og sam­drátt í ferða­þjón­ustu og útflutn­ingi.

Hag­vöxtur var 4,6 pró­sent í fyrra, en nýleg spá Seðla­banka Íslands gerir ráð fyrir 0,4 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á þessu ári.

Hér að neðan má sjá hluta úr ræðum þing­manna stjórn­mála­flokk­ana úr eld­hús­dags­um­ræð­unum, þar sem tók­ust á ólík sjón­ar­mið í hinum ýmsu málum, en full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar sóttu nokkuð hart að rík­is­stjórn­inni.

- „Að lokum vil ég benda á að upp­bygg­ing heil­brigð­is­þjón­ustu á að vera um allt land. Við sjáum nú þegar að ekki gengur lengur að stefna öllum sem þurfa á slíkri þjón­ustu að halda á einn spít­ala við Hring­braut. Hugsa þarf upp á nýtt hvernig standa á sann­ar­lega við það fyr­ir­heit að allir eigi kost á heil­brigð­is­þjón­ustu í heima­byggð og það er furðu­legt að sjá sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokk­inn beygja sig fyrir stefnu Vinstri grænna í jafn mik­il­vægum mála­flokki og vel­ferðar- og heil­brigð­is­málin eru.“ - Anna Kolbrún Árna­dóttir, Mið­flokki.

- „Við segjum gjarnan að ein af meg­in­for­sendum fram­tíð­ar­hag­vaxtar og sam­keppn­is­hæfni atvinnu­lífs­ins sé fjár­fest­ing í menntun, nýsköpun og rann­sóknum. Framlög til nýsköp­unar og rann­sókna eru stór­aukin, um 31% að raun­gildi næstu fimm árin, og þá má segja að ráð­herra hafi komið mennta- og menn­ing­ar­málum vel á dag­skrá með auknum fram­lögum og í formi fjöl­margra aðgerða. Ég nefni hér stuðn­ing við bóka­út­gáfu og stefnu­mótun til efl­ingar íslenskri tungu.“ - Willum Þór Þórsson, Fram­sókn­ar­flokki.

- „Síðasta haust sam­ein­uð­ust Íslend­ingar um að krefj­ast afsagnar þing­manna sem höfðu uppi dólgs­læti og mont­uðu sig af spill­ing­ar­á­formum. En mörgum mán­uðum síðar hefur ekk­ert gerst, ekki annað en það að sú kona sem upp­lýsti um sam­talið hefur verið úrskurðuð brot­leg við per­sónu­vernd­ar­lög eftir harða aðför þess­ara þing­manna að trú­verð­ug­leika hennar og per­sónu. Að sama skapi hefur þing­konan sem upp­lýsti um mik­il­vægi þess að hefja rann­sókn í akst­urs­greiðslu­mál­inu verið úrskurðuð brot­leg gagn­vart siða­reglum fyrir það eitt að benda á að for­sendur séu fyrir því að rann­saka málið.“ - Halldóra Mogensen, Pírötum.

- „End­ur­heimt vot­lendis er alveg frá­bær og skóg­rækt er alveg ágæt þar sem hún á við, en við þurfum samt að vera miklu mark­viss­ari í því að draga úr losun. Við verðum að miða alla mann­lega starf­semi við raun­veru­legan kostnað sem af henni hlýst fyrir lífið á jörð­inni. Við þurfum að gera sátt­mála þvert yfir höf og lönd. Þá dugir ekki heims­mynd mús­ar­hol­unnar, þrætugirnin og allt-fyrir-ekk­ert-hugs­unin. Hún dugir ekki lengur, heldur þurfa sam­fé­lögin að taka öll höndum saman.“ - Guð­mundur Andri Thorsson, Sam­fylk­ing­unni.

- „Alþjóða­væð­ingin virð­ist ógn­væn­leg fyrir suma og við vitum ekki alltaf hvað er handan við hornið. Fram­tíðin bankar á dyrnar, burt séð frá því hversu margir vilja berj­ast gegn henni, og Ísland mun halda áfram að breyt­ast, verða frjáls­ara, betra og hag­sælla en það var í gær. Við stoppum ekki fram­þróun en við höfum alla burði til að taka þátt í henni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun sem fyrr vera þar í for­ystu.“ - Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Sjálf­stæð­is­flokki.

- „Þá þurfum við að standa undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin sem kjörnum full­trúum. Við þurfum að grípa til aðgerða. Það hrekkur nefni­lega skammt að almenn­ingur minnki kjötát, flokki rusl eða fyllist flug­visku­biti ef við sem með valdataumana höldum leggjum ekki okkar af mörkum. Krafan hlýtur að vera að við tökum saman höndum þvert á flokka af því að flokkar skipta ekki máli í bar­átt­unni fyrir fram­tíð­ina.“ - Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum.

- „Milli­stéttin hefur hér sem og á öðrum Vest­ur­löndum átt undir högg að sækja og hár kostn­aður við íslensku krón­una veldur miklum eigna­ó­jöfn­uði. Krónan hyglir nefni­lega þeim, bæði fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum, sem geta fært eignir sínar úr landi þegar hentar. Hver situr svo uppi með kostn­að­inn af krón­unni? Jú, íslenskur almenn­ingur, en auð­vitað berj­ast þeir hvað harð­ast gegn breyt­ingum í gjald­miðla­málum okkar sem geta hagn­ast hvað mest á núver­andi stöðu. Um þá stöðu hefur núver­andi rík­is­stjórn tekið sér varð­stöðu.“ - Þor­steinn Víglunds­son, Viðreisn.

- „Skyldi það vera svo að þjóð­ar­skút­an fari á hlið­ina ef við hætt­um að skatt­leggja fá­tækt?“ - Inga Sæland, Flokki Fólksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár