Hækkun vaxta í Bandaríkjunum gæti verið „viðeigandi“ í desember

Janet Yellen, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, sagði frammi fyrir þing­nefnd í morgun, að efna­hagur Banda­ríkj­anna væri á góðu róli í augna­blik­inu, að hugs­an­lega yrði það við­eig­andi að hefja vaxta­hækk­un­ar­feril í des­em­ber næst­kom­andi, með 0,25 pró­sentu­stiga hækkun upp í 0,5 pró­sent.

Vöxtum hefur verið haldið við 0,25 pró­sent í meira en sjö ár í Banda­ríkj­unum og því er í vax­andi mæli horft til þess, hvenær Seðla­banki Banda­ríkj­anna telur vera til­efni til þess að hækka vexti. Það þykir vera skýrt merki um að efna­hag­ur­inn hafi náð bata frá fjár­málakrepp­unni sem náði hámarki á árunum 2007 til 2009.

Samkvæmt umfjöllun New York Times, þá greindi Yellen frá því að flest merki frá hag­kerf­inu væru jákvæð í augna­blik­inu. Atvinnu­leysi mælist ríf­lega fimm pró­sent, og hefur ekki verið lægra frá því árið 2008, en hæst fór það upp undir tíu pró­sent á árunum 2009 og 2010.

Ákvörð­unin um hvort vextir verða hækk­aðir eða ekki mun þó alltaf byggja á stöðu­mati á þeim tíma sem ákvörð­unin er tekin, og þá í sam­hengi við gang mála í heims­bú­skapnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár