„Endurfæðing“ og „nýfengið frelsi“ á köldum apríldegi

Kulda­boli ákvað aðeins að sýna hornin dag­inn sem brúnin á Eng­lend­ingum tók að létt­ast snar­lega eftir að til­slak­anir voru gerðar varð­andi ýmsa starf­semi og þjón­ustu. Raðir mynd­uð­ust við bari og versl­anir sem höfðu verið lok­aðar í um fjóra mán­uði.

Fólk lét kuldann ekki á sig fá og sat úti og sötraði bjór eða kaffi í London í dag.
Fólk lét kuld­ann ekki á sig fá og sat úti og sötr­aði bjór eða kaffi í London í dag. Mynd: EPA

Hundruð manna stóðu í röðum fyrir utan bari á Englandi í gær­kvöldi og biðu eftir því lang­þráða augna­bliki að vert­inn opn­aði dyrnar og byði þeim að kaupa eins og eitt bjór­glas eða tvö. Um leið og klukkan sló tólf á mið­nætti varð þeim að ósk sinni. Nokkrar krár með leyfi til að selja áfengi allan sól­ar­hring­inn biðu ekki eftir því að birta tæki að degi heldur buðu þyrstum kúnnum að ganga í bæinn um leið og það mátti á ný. Krár hafa verið lok­aðar í land­inu frá því í jan­úar, í um fjóra mán­uði, en á mið­nætti voru gerðar ýmsar til­slak­anir á Englandi. Krár mega nú hafa úti­svæði sín opin og veit­inga­staðir sömu­leiðis. Það sama mun ger­ast í Skotlandi þann 26. apríl en Wales á enn eftir að ákveða dag­setn­ingu en þar voru þó gerðar minni­háttar til­slak­anir í dag. Á Norður-Írlandi hefur útgöngu­banni verið aflétt og mega nú tíu koma saman utandyra.

„Ég vona að þetta sé nokk­urs konar end­ur­fæð­ing og að við getum haft opið um ófyr­ir­séða fram­tíð,“ hefur BBC eftir Nicholas Hair, eig­anda bars­ins Kentish Belle í London.

[adspot]

Þetta er ekki eina þjón­ustan sem er nú aftur í boði. Versl­anir, hár­greiðslu­stofur, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­laugar hafa einnig verið opn­aðar sem og dýra­garðar og skemmti­garðar – svo lengi sem gestir geta notið þeirra utandyra. Ákveðnar fjölda­tak­mark­anir og fleira er enn í gildi en þetta eru vissu­lega gleði­leg tíma­mót.

„Fólk ætti að njóta þessa nýfengna frelsis en að halda áfram vöku sinni og vera með­vitað um hætt­una,“ segir Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Johnson segir að um „óaft­ur­kræft“ skref í opnun lands­ins sé að ræða og að nú sé tæki­færið til að gera aftur sumt af því sem „við elskum og höfum saknað“.

Dauðs­föllum vegna COVID-19 hefur farið fækk­andi dag frá degi und­an­farið. Í gær lét­ust sjö manns á Englandi sem greinst höfðu síð­ustu 28 daga, vegna sjúk­dóms­ins. Ekki hafa orðið færri dauðs­föll af völdum kór­ónu­veirunnar á einum degi frá því um miðjan sept­em­ber. Í síð­ustu viku lét­ust sam­tals 240 manns en til sam­an­burðar lét­ust 1.400 viku­lega í jan­úar. Þá fækkar sjúkra­húsinn­lögnum einnig.

Búið er að gefa rétt tæp­lega 40 millj­ónir skammta af bólu­efni í Bret­landi. Þar af hafa um sjö millj­ónir manna fengið báða skammt­ana.

Margir þurfa enn að bíða

Næsta skref í aflétt­ingum verður ekki tekið fyrr en 17. maí. Veit­inga­staðir og barir sem ekki eru með úti­svæði verða ekki opn­aðir fyrr en þá. Á það við um 60 pró­sent allra slíkra staða á Englandi. Á þeim stöðum þar sem úti­svæði eru að finna verður nóg að gera á næst­unni. Byrjað var að bóka þar borð með góðum fyr­ir­vara er ljóst var hvenær fyrstu aflétt­ing­arnar yrðu.

Johnson brýndi fyrir fólki í dag að sýna áfram ítr­ustu var­kárni og taka ábyrgð á eigin hegðun. Hann seg­ist von­ast til þess að aldrei aftur þurfi að stíga skref til baka og herða aðgerðir vegna kór­ónu­veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár