Dróna- og flugskeytaárásir Rússa á Úkraínu hafa beinst að mikilvægum innviðum, þar á meðal orkuverum og járnbrautum, og valdið truflunum á hita- og vatnsveitu til þúsunda heimila, að sögn stjórnvalda í Kænugarði á laugardag.
Nýjasta bylgja loftárása, sem stóð yfir frá föstudagskvöldi fram á laugardag, kom á sama tíma og úkraínskir samningamenn áttu að funda í Flórída með bandarískum erindrekum þriðja daginn í röð til að ræða áætlun Bandaríkjanna um hvernig binda megi enda á stríðið sem staðið hefur í tæp fjögur ár.
Rússar skutu 653 drónum og 51 flugskeyti á Úkraínu, að sögn úkraínska flughersins í dag. „Aðal skotmörk þessara árása voru, enn og aftur, orkumannvirki,“ sagði Volodymyr Zelensky forseti á samfélagsmiðlum. „Markmið Rússa er að valda milljónum Úkraínumanna þjáningum,“ sagði hann.
Drónarnir og flugskeytin beindust einnig að orkumannvirkjum í Chernihiv-, Zaporizhzhia-, Lviv- og Dnipropetrovsk-héruðunum, að sögn embættismanna í Kænugarði.
Í Odesa-héraði eru „9.500 notendur án hitaveitu og 34.000 notendur án vatnsveitu vegna skemmda,“ sagði Oleksiy Kuleba, ráðherra endurreisnar.
Drónar Rússa lentu einnig á og „brenndu niður aðaljárnbrautarstöðina í Fastiv,“ borg um 70 kílómetra suðvestur af Kænugarði, sagði Zelensky.
Ekkert manntjón varð, en „truflanir urðu á ferðum úthverfalesta,“ bætti Ukrzaliznytsya, ríkisjárnbrautarfyrirtæki Úkraínu, við.
Neyðarsamræmingarfundur úkraínskra ráðherra var kallaður saman í kjölfar árásanna, sagði Yulia Svyrydenko forsætisráðherra á X. Viðbótar „skammtanir á rafmagni verða nauðsynlegar um allt land“ til að koma á stöðugleika í kerfinu á meðan viðgerðir standa yfir, bætti hún við.
Orkufyrirtæki nágrannaríkisins Moldóvu sagði að árásirnar hefðu einnig haft áhrif þar.
„Í kjölfar árása á orkukerfi Úkraínu... hefur mikilvæg orkueining verið tekin úr sambandi og samtengingarlínur eru nálægt álagstakmörkum,“ sagði Moldelectrica á samfélagsmiðlum.
Fyrirtækið sagðist hafa „óskað eftir neyðaraðstoð frá Rúmeníu sem fyrirbyggjandi aðgerð næstu klukkustundirnar,“ og hvatti borgara til að „nota rafmagn af skynsemi“.
Þrátt fyrir viðleitni Bandaríkjanna til að binda enda á átökin hafa Rússar reglulega beint árásum sínum að rafmagns- og hitaveitukerfi Úkraínu og eyðilagt stóran hluta mikilvægra borgaralegra innviða.
Eins og í fyrri árásarbylgjum sagði rússneska varnarmálaráðuneytið að árásir þeirra hefðu beinst að „fyrirtækjum í hergagnaiðnaði Úkraínu og orkumannvirkjum sem styðja þau,“ og bætti við að „öllum skotmörkum hefði verið náð“.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir