Spyr ráðherra hvernig bregðast skuli við mengun frá skemmtiferðaskipum

Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til umhverf­is­ráð­herra um hvernig hann telji að bregð­ast skuli við mengun frá skemmti­ferða­skipum en komum þeirra til lands­ins hefur fjölgað veru­lega á síð­ustu árum.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Alþingi

Með auknum komum skemmti­ferða­skipa hingað til lands á und­an­förnum árum hefur aukin athygli beinst að þeirri miklu mengun sem skipin hafa í för með sér. Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um mengun frá skemmti­ferðum skipum sem heim­sækja Íslandi. Hún spyr hvort að fylgst sé með meng­un­inni með reglu­bundnum mæl­ingum og hvernig ráð­herra telji að bregð­ast skuli við meng­un­inni.

Eitt skemmtiferðaskip mengi á borð við þrefaldan bílaflota Íslands

Á síð­ustu árum hefur verið vakin athygli á þeirri miklu mengun sem fylgir skemmti­ferða­skipum. Skemmti­ferða­skip í eigu eins fyr­ir­tækis, Carnival Corporation, los­aði til að mynda um tíu sinnum meira af brenni­steins­oxíð (SOx) en allar rúm­lega 260 milljón bif­reiðar Evr­ópu­búa árið 2017. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu skýrslu stofn­unar sem rann­sakar umhverf­is­á­hrif sam­gangna, Tran­sport & Environ­ment (T&E), sem birt var í júní síð­ast­liðnum.

Þá kom þýskur vís­inda­maður, Axel Friedreich, til lands­ins fyrir tveimur árum á vegum nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands og þýsku umhverf­is­vernd­ar­sam­tak­anna NABU og mældi sótagnir og enn smærri agnir í reyknum sem kemur frá olíu­brennslu í skip­unum.

Hann sagði í sam­tali við Rík­is­út­varpið að eitt skemmti­ferða­skip mengi jafn­mikið og þre­faldur bíla­floti Íslend­inga á sól­ar­hring. „Eitt slíkt skip gefur frá sér dag­lega sama magn af örögnum og ein milljón bif­reiða, sem eru fleiri bílar en eru á Íslandi. Og hér voru þrjú skemmti­ferða­skip á mánu­deg­inum,“ sagði Friedrich.

Hann bendi jafn­framt á að vindur stendur yfir­leitt á borg­ina, sem þýðir að meng­unin helst ekki við höfn­ina heldur hefur hún áhrif á alla íbúa Reykja­víkur. Auk þess fari skemmti­ferða­skipin umhverfis landið en sam­kvæmt Friedrich þá finn­ast öragnir um 400 kíló­metra inni í landi. Hann segir að fólk andi svo að sér þessum örsmáu ögnum úr olí­unni og þær fari í lungun og þaðan út í blóðið.[adspot]

Losun frá íslenska skipaflotanum aukist um 70 prósent

Hagstofa Íslands mælir ekki losun hit­un­ar­gilda (CO2 í­gild­i) frá erlendum skemmti­ferða­skipum og ferjum en Hag­stofan mælir hins vegar losun frá inn­lendum sjó­sam­göngum. Sú losun hefur auk­ist tals­vert á síð­ustu árum.

Frá árinu 2010 til 2017 jókst losun á CO2 ígildum frá sjó­sam­göngum um 253,8 kílótonn, eða um nær 70 pró­sent frá 2010 en Hag­stofan bendir á að þetta tíma­bil ein­kennd­ist af miklum vexti í ferða­manna­iðn­aði.

Hag­stofan áætlar að losun frá skipa­flot­anum fari fram úr losun frá land­bún­aði og mat­væla­iðn­aði fyrir árið 2018 en áætluð losun frá skipa­flot­anum er 672 kílótonn á síð­asta ári en losun frá land­búbaði og mat­væla­iðn­aði 650 kílótonn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár