Háværar raddir innan Vinstri grænna vilja segja sig frá samráði um afnám fjármagnshafta

Innan Vinstri grænna eru háværar raddir um að rétt sé að flokk­ur­inn segi sig úr sam­ráðs­nefnd um losun fjár­magns­hafta. Ástæðan er það sam­ráðs­leysi um málið sem stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt mikið. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, á Alþingi í gær um grein fjög­urra InDefence manna í Kjarn­anum, þar sem þeir viðr­uðu hug­myndir um 60 pró­senta útgöngu­skatt á kröfu­hafa sem vilja fara með eignir sínar frá Íslandi.

Katrín spurði Bjarna einnig um afstöðu hans til þess að áætlun um losun hafta sé leyni­leg, eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði síð­ast á mánu­dag að væri nauð­syn­legt. Katrín spurði hvort það væri ekki einmitt mik­il­vægt að almenn­ingur í land­inu sé upp­lýstur um losun hafta, vegna þess að málið geti haft mjög mikil áhrif á almenn­ing.

[caption id="attachment_20480" align="alignnone" width="735"] Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þver­tekur fyrir að ákvörðun hafi verið tekin um að leggja á útgöngu­skatt.[/caption]

Þvertekur fyrir ákvörun um útgönguskatt


Bjarni þvertók fyrir að ákvörðun hafi verið tekin um álagn­ingu útgöngu­skatts til að stíga skref í átt að losun fjár­magns­hafta. "Varðandi útgöngu­skatt­inn hef ég margoft tekið fram að ekki hefur verið tekin ákvörðun um útgöngu­skatt og þaðan af síður hef ég boðað ein­hverja til­tekna pró­sentu sem menn eru farnir að vísa til."

Í Frétta­blað­inu í dag er sagt að innan fjár­mála­geirans undrist menn hvað tefji ákvarð­anir um losun hafta, en skil­yrði til þess eru talin góð. Heim­ildum Frétta­blaðs­ins ber ekki saman. Sumar full­yrða að fallið hafi verið frá útgöngu­skatti, en aðrar að verið sé að vinna úr til­lögum, en flækju­stigið sé hátt. Vanda­málið liggi fyrst og fremst í því að erfitt sé að setja skatt sem aðeins tekur til fjár­magns úr þrota­búum föllnu bank­anna. Hann yrði einnig að ná yfir allt annað útstreymi fjár­magns. Það mundi hafa áhrif á fjár­fest­ingar aðila eins og líf­eyr­is­sjóð­anna og jafn­vel erlendar skuldir fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár