Ísraelsku gíslarnir lausir úr haldi Hamas

Hamas hefur látið tutt­ugu eft­ir­lif­andi ísra­elska gísla lausa í sam­ræmi við vopna­hléssam­komu­lagi sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hafði milli­göngu um. Ísrael mun sleppa nær 2.000 föngum í skiptum. Trump kom til Ísraels og Egypta­lands til að efla frið­ar­við­ræður um Gaza.

Laus
Laus Vopnaðar sveitir Hamas áttu að sleppa öllum eft­ir­lif­andi ísra­elskum gíslum í dag í skiptum fyrir palest­ínska fanga í haldi Ísraels. Í þessum bíl var einn þeirra gísla sem Hamas sleppti úr haldi og sést hér aka að Reim-her­stöð­inni nálægt landa­mær­unum í suð­ur­hluta Ísraels í morgun. Mynd: MAYA LEVIN / AFP

Hamas sleppti í morgun tutt­ugu eft­ir­lif­andi ísra­elskum gíslum úr haldi, ssam­kvæmt vopna­hléssam­komu­lagi. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og aðrir leið­togar und­ir­búa sig fyrir leið­toga­fund um Gaza. 

Mikill mann­fjöldi safn­að­ist saman í Tel Aviv til stuðn­ings fjöl­skyldum gísl­anna og braust út mik­ill fögn­uður, tár og söngur þegar fréttir bár­ust af því að fyrstu gísl­unum hefði verið sleppt, þó sárs­auk­inn vegna þeirra sem ekki lifðu af væri áþreif­an­legur.

Lausn gísl­anna er hluti af vopna­hléssam­komu­lagi sem Trump for­seti hafði milli­göngu um, en Ísrael á að sleppa nærri 2.000 föngum úr fang­elsum sínum í skiptum. Afhend­ing gísl­anna átti sér stað á sama tíma og Trump kom til Ísraels í skyndi­heim­sókn áður en hann hélt áfram til Egypta­lands á frið­ar­fund, eftir að hafa lýst yfir að „stríð­inu sé lokið“.

„Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða kross­inum hafa sjö gíslar verið látnir lausir og í þeirra umsjón og eru á leið til hers og örygg­is­þjón­ustu Ísraels í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár