Katrín: Hækkun fjármagnstekjuskatts liður í réttlátara skattkerfi

Katrín Jak­obs­dóttir segir að Vinstri græn hafi ekki lofað neinum skatta­hækk­unum fyrir kosn­ingar. Nýr for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar er gestur Kjarnans á Hring­braut klukkan 21.

„Stóra mark­miðið að mínu viti er að horfa til þess að þær breyt­ingar sem verði gerðar á skatt­kerf­inu eigi að skila sér í ein­hvers­konar rétt­lát­ara skatt­kerfi. Hækkun fjár­magnstekju­skatti er liður í því.“

[links]Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, í sjón­varps­þætti Kjarnans sem er á dag­skrá Hring­brautar klukkan 21 í kvöld. Katrín er þar í ítar­legu við­tali þar sem hún ræðir meðal ann­ars rík­is­fjár­mál, skatta, skatta­eft­ir­lit, póli­tíska ábyrgð, spill­ingu, mis­skipt­ingu og fram­tíð banka­kerf­is­ins.

Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að ofan.

Ný rík­is­stjórn hennar ætlar að hækka fjár­magnstekju­skatt úr 20 pró­sentum í 22 pró­sent um kom­andi ára­mót. Fáar aðrar skatta­hækk­anir er að finna í stjórn­ar­sátt­mála stjórn­ar­innar.

[adspot]Katrín segir að Vinstri græn hafi ekki lofað neinum skatta­hækk­unum fyrir kosn­ingar, þrátt fyrir að póli­tískir and­stæð­ingar flokks­ins, sem nú eru sumir hverjir sam­starfs­menn hans í rík­is­stjórn, hafi haldið slíku fram. „Við sögðum það alveg klárt að við ætl­uðum ekki að hækka skatta á almenn­ing í land­inu, eða almennt launa­fólk. Og við vildum setja skatt­kerf­is­breyt­ingar á borðið í við­ræðum við aðila vinnu­mark­að­ar­ins, þ.e.a.s. verka­lýðs­hreyf­ing­una og Samtök Atvinnu­lífs­ins. Þetta lögðum við á borðið fyrir kosn­ingar. það var snúið út úr þessu með ýmsum hætti.“

Stóra mark­miðið sé að horfa til þess að þær breyt­ingar sem verði gerðar á skatt­kerf­inu eigi að skila sér í ein­hvers­konar rétt­lát­ara skatt­kerfi. „Hækkun fjár­magnstekju­skatti er liður í því. Lækkun á lægra þrepi tekju­skatts­ins verður til umræðu í sam­ræðum við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og útfærsla þess liggur auð­vitað ekki fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár