Ekki mikil hefð fyrir því að ráðherrar segi af sér á Íslandi

For­sæt­is­ráð­herra segir að það sé erfitt að breyta því yfir nótt að póli­tísk ábyrgð sé menn­ing­ar­bundin. Hingað til hafi ekki tíðkast að ráð­herrar segi af sér til að axla ábyrgð. Katrín Jak­obs­dóttir er gestur Kjarnans á Hring­braut klukkan 21.

„Hér hefur auð­vitað ekki verið mikil hefð fyrir því til að mynda að ráð­herrar segi af sér eða eitt­hvað slíkt. Það hefur ekki verið hluti af menn­ing­unni. Ég held að það sé mjög erfitt að breyta því yfir nótt. Svo maður segi það alveg hreint út.“

Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, í sjón­varps­þætti Kjarnans sem er á dag­skrá Hring­brautar klukkan 21 í kvöld. Katrín er þar í ítar­legu við­tali þar sem hún ræðir meðal ann­ars rík­is­fjár­mál, skatta, skatta­eft­ir­lit, póli­tíska ábyrgð, spill­ingu, mis­skipt­ingu og fram­tíð banka­kerf­is­ins.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Í aðdrag­anda síð­ustu tveggja kosn­inga hafa ýmsir framá­menn í Vinstri grænum talað mikið um spill­ingu, sið­ferði, póli­tíska ábyrgð, afnám leynd­ar­hyggju og nauð­syn þess að útrýma eigi frænd­hygli. Ástæðan var fjöl­mörg spill­ingar- og hneyksl­is­mál sem upp hafa komið tengd íslenskum stjórn­málum á und­an­förnum árum. Lítið er hins vegar um þessi atriði í stjórn­ar­sátt­mála þeirrar rík­is­stjórnar sem mynduð var í síð­ustu viku.

Katrín segir í þætti kvölds­ins að póli­tísk ábyrgð sé menn­ing­ar­bundin og að þeirri menn­ingu verði ekki snúið við einn tveir og þrír með reglu­setn­ingu eða öðru slíku. „ Mik­il­væg­asta hlut­verk mitt að minnsta kosti. sem teng­ist því sem við erum að ræða hér um siða­reglur og hags­muna­skrán­ingu og hvernig við tölum um mál þegar þau koma upp, það er að stuðla að því að við tölum um þessi mál með öðru­vísi hætti en hefur verið.“

Hún segir að margir hafi gagn­rýnt sig fyrir að fara í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum sem hefur verið gagn­rýndur fyrir aðkomu að mörgum slíkum málum. Það hafi hins vegar þurft að horfa á þá stöðu sem væri uppi. „Við erum með nið­ur­stöðu kosn­inga. Og hver er þá póli­tísk ábyrgð í því að reyna að hafa áhrif til góðs á sam­fé­lagið út frá þeirri nið­ur­stöðu sem er á borð­inu? Út frá þeim tæki­færum sem þá skap­ast, eins og þau líta út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár