Ragna Árnadóttir ráðin skrifstofustjóri Alþingis

For­sætis­nefnd sam­þykkti í morgun að ráða Rögnu Árna­dóttir sem nýjan skrif­stofu­stjóra Alþingis.

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unnar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hefur verið ráðin skrif­stofu­stjóri Alþingis. Hún tekur við starf­inu af Helga Bern­ód­us­syni. Ragna verður fyrst kvenna til að gegna starf­inu.

For­sætis­nefnd Alþingis aug­lýsti þann 20. apríl síð­ast­lið­inn emb­ætti skrif­stofu­stjóra Alþingis laust til umsókn­ar, en nefndin ræður skrif­stofu­stjóra Alþingis til sex ára í senn. Alls bár­ust tólf umsóknir en nýr skrif­stofu­stjóri Alþingis tekur við emb­ætt­inu þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Á meðal umsækj­enda voru Ragna, Bryn­dís Hlöðvers­dótt­ir, rík­is­sátta­semj­ari og Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari.

Auk þeirra sóttu átta aðrir um stöð­una: Ást­hildur Magn­ús­dótt­ir, kenn­ari. Hildur Eva Sig­urð­ar­dótt­ir, for­stöðu­mað­ur­, Hilmar Þórð­ar­son, fv. sviðs­stjóri rekstr­ar­sviðs, Inga Guð­rún Birg­is­dótt­ir, mannauðs­stjóri, Ingvar Þór Sig­urðs­son, for­stöðu­mað­ur­, Krist­i­an Guttes­en, aðjunkt, Sandra ­Stojkovic Hin­ic, verk­efn­is­stjóri, ­Sig­rún Brynja Ein­ars­dótt­ir, skrif­stofu­stjóri, Þór­dís Sæv­ars­dótt­ir, kenn­ari.

Skrif­stofu­stjóri hefur umsjón með fjár­reiðum þings­ins

Skrif­stofu­stjóri stjórnar skrif­stofu Alþing­is, fram­kvæmdum á vegum þings­ins og hefur umsjón með fjár­reiðum þess og eignum í umboði for­seta. Því er um áhrifa­mikið starf að ræða.

Þing­funda­svið, nefnda­svið og starfs­manna­skrif­stofa þings­ins heyra beint undir skrif­stofu­stjóra. Skrif­stofu­stjóri situr fundi for­sætis­nefndar og er for­seta og nefnd­inni til aðstoðar í öllu er varðar stjórn þings­ins. Aðsetur skrif­stofu­stjóra er á 2. hæð Alþing­is­húss­ins og á 2. hæð Skjald­breið­ar, Kirkju­stræti 8. Um starf hans eru nán­ari ákvæði í þing­sköpum Alþing­is. Helgi Bern­ód­us­son hefur gegnt emb­ætt­i ­skrif­stofu­stjóri Alþingis frá árinu 2005 en hann lætur af störfum á næst­unni.

For­sætis­nefnd fól þremur úr sínum hóp að hafa umsjón með ráðn­ing­ar­ferl­inu fyrir hönd nefnd­ar­inn­ar. Und­ir­nefnd­ina skip­uðu Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, og vara­for­set­arnir Guð­jón Brjáns­son og Bryn­dís Har­alds­dótt­ir.

Auk þess var skipuð þriggja manna hæfn­is­nefnd til að fara yfir umsókn­ir, meta hvaða umsækj­endum yrði boðið í við­tal, ann­ast við­töl, meta umsagnir og gera til­lögu til und­ir­nefndar for­sætis­nefndar um þá sem hún telur hæf­asta til að gegna starf­inu. Hæfn­is­nefnd­ina skip­uðu Þor­steinn Magn­ús­son, vara­skrif­stofu­stjóri Alþing­is, sem er for­mað­ur, Guð­rún Jóhanna Guð­munds­dótt­ir, sér­fræð­ingur hjá Kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins og Hulda Ragn­heiður Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri. Starfs­maður nefnd­ar­innar var Heiðrún Páls­dótt­ir, rit­ari for­seta Alþing­is.

Var dómsmálaráðherra

Ragna Árna­dóttir var dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna frá 2009 til 2010. Hún kom inn í rík­is­stjórn­ina sem ráð­herra utan flokka. Ragna er með stúd­ents­próf frá MA, emb­ætt­is­próf í lög­fræði HÍ 1991 ogLL.M.-gráðu í Evr­ópu­rétti frá Háskól­anum í Lundi 2000. Hún starf­aði sem lög­fræð­ingur við nefnda­deild Alþingis 1991–1995.

Í nóv­em­ber 2010 var Ragna ráðin skrif­stofu­stjóri Lands­virkj­unar og tveimur árum síðar tók hún við starfi aðstoð­ar­for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár