Fjármálaráðherra segir krónuna leggja fjárhag heimila og fyrirtækja í rúst

„Krónu­vinir eru hávaxta­vinir“ segir fjár­mála­ráð­herra sem ítrekar afstöðu sína til krón­unnar í and­stöðu við stefnu for­sæt­is­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson á blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var kynnt.
Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­son á blaða­manna­fundi þar sem rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var kynnt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, segir íslensku krón­una „leggja fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja í rúst á víxl“. Þetta skrifar hann á Facebook-síðu sína og vísar í skoð­ana­grein Jónu Sól­veigar Elín­ar­dóttur, þing­mann Við­reisnar, um gjald­miðla­málið.

„Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir bendir á bestu leið­ina til þess að losna við verð­trygg­ingu og háa vexti. Með því að festa krón­una við annan gjald­miðil,“ skrifar Benedikt á Facebook.

„Við þurfum að muna að krónu­vinir eru um leið hávaxta­vinir. Gjald­mið­ill sem leggur fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja í rúst á víxl er ekki góður gjald­mið­ill.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Benedikt talar opin­skátt um skoðun sína á íslensku krón­unni. Hann skrif­aði grein í síð­asta mán­uði um að krónan væri upp­spretta óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu sem olli fjaðrafoki.

Vegna þess­arar greinar sá Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sig knú­inn til þess að koma í sjón­varps­við­tal og árétta að ekki standi til að skipta um gjald­miðil. Skoðun Bene­dikts og flokks hans á krón­unni sé hans eigin skoðun og flokks hans, en ekki rík­is­stjórn­ar­innar.

[adspot]

Vilja gera verðtrygginguna óþarfa

Í grein Jónu Sól­veigar, sem birt­ist á Vísi í gær, er fjallað um til­lögur Við­reisnar um hvernig losna megi undan verð­trygg­ing­unni. Til­lög­urnar ganga í grófum dráttum út á að festa krón­una við evru, eins og hefur verið gert til dæmis í Danmörku.

„Með því að festa krón­una við evru, t.d. með mynt­ráði eins og við í Viðreisn tölum fyrir, náum við fram stöð­ug­leik­anum sem þarf til að lækka vexti og losna undan verð­trygg­ing­unni. Verð­trygg­ingin yrði ein­fald­lega óþörf,“ skrifar Jóna Sólveig.

Þessi afstaða gengur í ber­högg við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fer með for­ystu í rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þegar hefur verið skipuð verk­efna­stjórn sem á að meta hvaða mögu­leikar eru fyrir hendi þegar kemur að end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar. Verk­efna­stjórnin er nú að störfum en í henni sitja Ásgeir Jónsson, Illugi Gunn­ars­son og Ásdís Krist­jáns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár