Gríðarleg reiði meðal femínista vegna afstöðu Amnesty

Stjórn­mála­menn af vinstri­vængnum gagn­rýna hug­myndir um afglæpa­væð­ingu vændis harð­lega og fjöldi fólks hefur hætt að styrkja Amnesty International. Skiptar skoð­anir eru um sænsku leið­ina, lög­leið­ingu vændis og hvernig lág­marka megi skað­ann af iðn­að­inum.

Hneyksl­un­ar­alda fór um netheima, bæði á Íslandi og erlendis, eftir að Amnesty International sam­þykkti til­lögu um að beita sér fyrir afglæpa­væð­ingu vændis á heims­þingi hreyf­ing­ar­innar í Dublin í gær. Einnig hefur þó fjöldi fólks og sam­taka lýst yfir ein­dregnum stuðn­ingi við afstöðu hreyf­ing­ar­innar og fagnað ákvörðun gær­dags­ins.

Hjá stjórn Amnesty tekur nú við vinna sem miðar að því að móta stefnu um að fólki í kyn­lífs­iðn­aði sé tryggð vernd gagn­vart mis­notkun, man­sali og ofbeldi og að refs­ingum sé aflétt af iðju vænd­is­fólks, ann­arra en barna og fórn­ar­lamba mansals eða ann­arrar nauð­ungar.  

Skiptar skoð­anir eru um hvernig lög­gjaf­inn skuli nálg­ast vændi. Árið 2009 sam­þykkti Alþingi Íslend­inga lög um bann við kaupum, en ekki sölu, á vændi og fet­aði þannig í fót­spor Svía og Norð­manna. Í Danmörku er hvorki refsi­vert að stunda né kaupa vænd­is­þjón­ustu og í Finn­landi eru kaup á vændi bönnuð að hluta til. Alls staðar á Norð­ur­löndum liggur bann við því að þriðji aðili hagn­ist á vændi, en í Danmörku er bannið þó ekki jafn víð­tækt og á hinum Norð­ur­lönd­unum.

„Skýr skilaboð“ og valdaójafnvægið

Þau rök sem oft­ast eru færð fyrir sænsku leið­inni eru þrenns konar. Í fyrsta lagi er því haldið fram að vændi sé birt­ing­ar­mynd kyn­ferð­is­of­beldis og eigi að vera bannað eins og annað ofbeldi. Í öðru lagi er hvatt til þess að lög­gjaf­inn sendi skýr skila­boð um að vændi sé ekki atvinnu­grein heldur sið­ferði­lega órétt­mætur gjörn­ingur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár