Snemma í nóvember fjallaði Stundin um mál Erlings Smith, íbúa í Mosfellsbæ. Erling talaði þar um valdaleysi um eigin hagi sem hann upplifir vegna NPA samnings sem hann var með en var tekinn af honum fyrir um 2 árum síðan. Ekkert hefur breyst í málum Erlings síðan að greinin um hans mál kom fram. Erling lamaðist í mótorhjólaslysi í Reykjavík fyrir um 18 árum síðan og þarf því á daglegri aðstoð að halda. Hann hefur undanfarin 2 ár búið á hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ gegn vilja sínum. Hann upplifir nauðungarvist þar og þráir að búa heima hjá sér og að konan hans fái aftur greitt fyrir að sinna honum eins og áður í gegnum NPA samning. Þau misstu þennan samning fyrir 2 árum þegar þau giftu sig en samkvæmt reglum um NPA samninga, að sögn bæjarfélagsins, er ólöglegt að gera slíkan samning við skyldmenni eða fjölskyldumeðlim. Hér er þó um að ræða fremstu ósk Erlings, íbúa í bæjarfélaginu og íslensks þegns.
Ég tel að þetta gangi gegn grundvallarmannréttindum Erlings. Bæjarfélög ættu að geta gert samninga við fjölskyldumeðlimi sé það í hag notanda NPA samnings. Að gera það ólöglegt er út í hött. Í þessu máli sést að það er farsælasta leiðin fyrir einstaklinginn og er jafnframt hans fremsta lífsósk, þá væri hann sáttur. Í stað þess upplifir hann innilokun á hjúkrunarheimilinu. Þetta gengur einfaldlega ekki upp.
[adspot]Fyrir um 2 vikum síðan hafði Erling samband við mig í leit að aðstoð varðandi mál sitt. Ég fór strax í að senda formanni lýðræðis- og mannréttindanefndar Mosfellsbæjar, Uni Hildardóttur, tölvupóst sem var ekki svarað. Svo sendi ég annan tölvupóst og honum er ekki enn svarað heldur. Á sama tíma og ég sendi fyrsta póstinn sendi ég einnig póst á meðlim notendaráðs Mosfellsbæjar um málefni fatlaðs fólks, sem heyrir einnig undir bæjarfélag Mosfellsbæjar og fékk skjót svör frá viðkomandi. Hann var sammála mér um að staða Erlings væri alls ekki viðunandi og hann myndi taka upp málið í notendaráðinu en tjáði mér jafnframt að reynslan væri hinsvegar sú að ekkert væri gert þrátt fyrir ályktanir notendaráðsins. Orðrétt sagði: „Er sammála þér. Get tekið þetta upp þegar næst er fundur. Reynslan er hins vegar sú að þótt vel sé tekið undir mál á fundum, gerist ekkert“. Ég skil þess orð mannsins þannig að bæjarstjórnin sé aðgerðalaus varðandi mál fatlaðs fólks sem upp koma í notendaráðinu og ef það reynist svo þá er það bara skammarlegt fyrir bæjarstjórnina. Séu hendur hennar bundnar vegna laga um NPA aðstoð þá tel ég það vera skyldu bæjarstjórnarinnar að vekja athygli á og gagnrýna það að ekki sé hægt að hjálpa fólki sem er í sömu stöðu og Erling. Ég tel það vera skyldu bæjarfélagsins að hugsa fyrst og fremst um hagsmuni bæjarbúa. Ég set líka spurningu við það að formaður lýðræðis- og mannréttindanefndar bæjarins svari ekki póstum um mikilvæga velferð og mannréttindi íbúa bæjarins.
Þessi staða er ámælisverð fyrir Mosfellsbæ og ég krefst þess að fulltrúar bæjarins taki undir með máli Erlings og tala fyrir fólki í hans stöðu. Að við breytum samfélaginu þannig að það virki fyrir alla. Hann bíður enn lausna sinna mála. Við verðum að búa samfélagi okkar þannig að fólk geti verið sátt og að grundvallarnauðsynjum fólks sé sinnt af þeim sem fara með völdin. Ef yfirvöld telja sig ekki geta veitt landsmönnum þau mannréttindi sem hverjum ætti að vera sjálfsögð þá er ekki annað í stöðunni en að mótmæla viðkomandi stjórnvaldi. Ég hvet bæjarstjórn Mosfellsbæjar til þess að senda frá sér yfirlýsingu um stöðu þessara mála án tafar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir