Rúmlega 70 prósent Íslendinga andvígir sölu áfengis í matvöruverslunum

Ný könnun MMR gefur til kynna að 73,7 pró­sent Íslend­inga eru and­vígir sölu á sterku áfengi í mat­vöru­versl­unum.

Stór hluti Íslend­ingar er and­vígur sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum. Stuðn­ings­fólk Fram­sóknar er mest and­vígt því en stuðn­ings­fólk Við­reisnar eru hvað hlynnt­ust því. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

[links]Í könn­un­inni sögðu 73,7 pró­sent aðspurðra að þeir væru and­vígir sölu á sterku áfengi í mat­vöru­versl­unum og 54,8 pró­sent sölu á léttu áfengi og bjór. Könnunin var fram­kvæmd á dög­unum 2.-12. mars síð­ast­lið­inn og svör­uðu 995 manns. And­staðan við mál­efnið stendur nokkurn veg­inn í stað frá því að Félags­vís­inda­stofnun birti nið­ur­stöður úr rann­sókn sinni fyrir um ári síðan. Þá voru 69,2 pró­sent á móti sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum.

Nær allir stuðn­ings­menn Fram­sóknar sem tók þátt í könn­un­inni, eða 96 pró­sent, voru and­vígir sölu á sterku áfengi í mat­vöru­versl­unum. Stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins, Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar voru einnig and­víg sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum. Stuðn­ings­fólk Við­reisnar, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks tjáðu mestan stuðn­ing við sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum.

Minni andstaða við sölu á léttu áfengi og bjór

Aðeins 15,3 pró­sent voru hlynnt sölu á sterku áfengi í mat­vöru­versl­unum og 35,8 pró­sent sögð­ust vera hlynnt sölu á léttu áfengi og bjór. Svar­endur yngsta ald­urs­hóps­ins, 18-29 ára, reynd­ust í meira mæli hlynnt sölu á létt áfengi og bjór í mat­vöru­versl­unum eða 52 pró­sent.

Andstaða við sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum jókst með hækk­andi aldri. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti, eða 84 pró­sent, í elsta ald­urs­hópnum, 68 ára og eldri, taldi að áfengi ætti ekki að vera selt í mat­vöru­versl­unum. Af þeim voru 70 pró­sent mjög and­víg. Andstaða var minni meðal svar­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 52 pró­sent, en á lands­byggð­inni, 59 pró­sent. 62 pró­sent kvenna voru and­vígar en aðeins 49 pró­sent karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár