Yfirlæknir á bráðadeild segir vert að íhuga skorður á sölu og notkun flugelda

Frá 2010 hafa þrettán manns orðið fyrir var­an­legu heilsutjóni vegna flug­elda­á­verka, eða einn um hver ára­mót að með­al­tali. Yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans segir vert að íhuga að setja frek­ari skorður á inn­flutn­ing, sölu og notkun flug­elda.

21 ein­stak­lingur, að með­al­tali, leitar á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans ár hvert vegna flug­eldaslysa, þar af helm­ingur á nýárs­dag og fjórð­ungur á fyrstu klukku­stund hvers nýs árs. Enginn hefur látið lífið vegna flug­elda­á­verka en að minnsta kosti 13 hafa orðið fyrir var­an­legu heilsutjóni vegna flug­elda­á­verka frá árinu 2010.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Hjalta Más Björns­sonar, yfir­læknis á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, og Björns Vilhelms Ólafs­sonar lækna­nema í des­em­ber­blaði Lækna­blaðs­ins þar sem fjallað er um rann­sókn þeirra á flug­eldaslysum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá 2010-2022.

Um er að ræða fyrstu heild­stæðu rann­sókn á flug­eldaslysum hér á landi. Flug­eldar voru fyrst sprengdir í Kína fyrir um 2000 árum en elstu heim­ildir um flug­elda­notkun á Íslandi eru frá Kópa­vogs­fund­inum árið 1662 þegar ein­veld­is­skuld­bind­ingin var und­ir­rituð. Sala flug­elda hófst hér á landi um alda­mótin 1900.

Karlmenn þrír af hverjum fjórum sem slasast vegna flugelda

„Þrátt fyrir að flug­eldar séu almennt taldir fólki til skemmt­unar fylgja skugga­hliðar notkun þeirra. Hefur slysa­tíðni verið all­mikil, helst bruna­sár og einnig nokkuð um alvar­lega augná­verka,“ segir í rann­sókn­inni og telja höf­undar slys vegna flug­elda­notk­unar umtals­vert vanda­mál á Íslandi.

248 manns leit­uðu á bráða­mót­töku Land­spít­ala frá des­em­ber 2010 til jan­úar 2022 vegna flug­eldaslysa.

Yngsti ein­stak­ling­ur­inn sem leit­aði á bráða­mót­töku vegna flug­elda­á­verka var 9 mán­aða og sá elsti 79 ára en með­al­aldur þeirra sem urðu fyrir áverkum vegna flug­eldaslysa var 26 ár. Tæplega þrír af hverjum fjórum sem slasast vegna flug­elda, eða 73 pró­sent, eru karl­kyns.

Banna ætti börnum á leikskólaaldri að nota stjörnuljós

Áberandi er að börn voru tæpur helm­ingur slas­aðra. Alls slös­uð­ust 114 börn, eða 46 pró­sent slas­aðra, þar af 12 á leik­skóla­aldri. Höfundar segja slá­andi var hversu mörg börn slös­uð­ust við flug­elda­notkun hér á landi en hlut­fallið er hærra en í erlendum rann­sóknum þar sem hlut­fallið var almennt á bil­inu -15-42 pró­sent.

Af þeim 114 börnum sem slös­uð­ust við notkun flug­elda voru 42 sögð undir eft­ir­liti full­orð­inna þegar slysið varð, eins og lög kveða á um. Börn sem skráð voru án eft­ir­lits voru alls 28 tals­ins en í 44 til­fellum lágu gögn ekki fyrir. Árlega slasast að með­al­tali eitt barn á leik­skóla­aldri, þar af rúmur helm­ingur vegna stjörnu­ljósa.

„Stjörnu­ljós líta út fyrir að vera sak­laus ljósa­dýrð en þau brenna skært og ná yfir 1000°C hita. Mestur skaði hlýst þó þegar kviknar í klæðum fólks og geta stjörnu­ljós þá valdið alvar­legum áverkum. Ekki fund­ust slík til­vik í þess­ari rann­sókn en fræða þarf for­eldra betur um hætt­una sem stafar af stjörnu­ljósum og banna leik­skóla­börnum að nota þau,“ segja höf­undar.

Fjórðungur flugeldaslysa á fyrsta klukkutíma nýs árs

Skráning á notkun áfengis og ann­arra fíkni­efna var mjög ófull­komin en 10 ein­stak­lingar voru sagðir undir áhrifum áfengis og einn sagður alls­gáður en skrán­ingu vant­aði hjá 237 manns. Enginn var sagður undir áhrifum ann­arra efna.

Ef tíma­setn­ing flug­eldaslysanna er skoðuð sést að alls urðu 28 pró­sent slysa utan leyfi­legs skot­tíma flug­elda. Slysin dreifð­ust ekki jafnt á árið, 81 pró­sent slysanna urðu í jan­úar og 10 pró­sent í des­em­ber á meðan 9 pró­sent dreifð­ust á hina 10 mán­uð­ina. Við nán­ari skoðun á ára­mót­unum kemur í ljós að 129, eða 52 pró­sent slysa, urðu 1. jan­úar og þar af 59, eða 24 pró­sent, á fyrsta klukku­tíma árs­ins.

Flest slys vegna raketta

Rakettur ollu flestum slysum, eða 23 pró­sent, og þar á eftir skott­ertur, 17 pró­sent. Þriðja algeng­asta orsökin voru blys, 14 pró­sent, og þar af tvö neyð­ar­blys sem notuð voru til skemmt­unar. Átta slys urðu vegna stjörnu­ljósa, öll hjá börnum 9 ára og yngri.

Í 39 pró­sent til­vika voru vís­bend­ingar um að galli í flug­eldi hefði átt þátt í eða orsakað slys og í þriðj­ungi til­vika virð­ast ein­stak­lingar ekki hafa með­höndlað flug­elda með réttum hætti.

Flestir áverk­anna voru minni­háttar, bruna­sár og skurðir. Helstu áverkar sem fund­ust voru brunar, sár, brot, mar, hljóð­himnurof og aðskota­hlutur í auga. Í heild­ina voru þessir áverkar 382 tals­ins. Algeng­ustu áverk­arnir voru bruna­sár, en 157 ein­stak­lingar hlutu bruna. Dreifing bruna var ójöfn eftir lík­ams­svæðum og lang algeng­ast var að brenna á hönd­unum.

19 gengist undir skurðaðgerð vegna flugeldaslysa

22 voru lagðir inn á Land­spít­al­ann vegna flug­eldaslysa á tíma­bil­inu og lágu sam­tals inni í 91 dag, frá einum degi upp í 33 daga hver. 19 geng­ust undir skurð­að­gerð vegna áverk­anna. Af þeim 248 sem leit­uðu á bráða­mót­töku vegna flug­eldaslysa frá 2010-2022 hafa að minnsta kosti 13 hlotið var­an­legt heilsutjón vegna flug­elda­á­verka, eða um einn ein­stak­lingur á hverju ári að með­al­tali. Ekki er til­greint nánar um hvers eðlis heilsutjónið er, annað en að það sé var­an­legt.

Að mati Hjalta og Björns þarf að efla for­varn­ar­starf gegn flug­eldaslysum, einkum með áherslu á rétta með­höndlun þeirra og notkun örygg­is­gler­augna. „Sér­stak­lega þarf að huga að for­vörnum barna og ættu börn á leik­skóla­aldri ekki að nota stjörnu­ljós né aðra flug­elda,“ ítreka þeir í rann­sókn­inni.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar gefa til­efni til að setja skorður, eða að minnsta kosti íhuga það, á flug­elda­notkun að mati höf­unda.

„Þó flug­eldar séu fal­legir fylgir þeim mikil slysa­tíðni og álag á bráða­mót­tök­una og því er vert að íhuga að setja frek­ari skorður við inn­flutn­ingi, sölu og notkun þeirra,“ segir í sam­an­tekt rann­sókn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugeldar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár