Guðlaugur ræddi við Guaidó og lýsti yfir formlegum stuðningi ríkisstjórnarinnar

Utan­rík­is­ráð­herra hefur ákveðið að auka við fjár­stuðn­ing við flótta­menn frá Venes­ú­ela.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur ákveðið að verja þrjá­tíu millj­ónum króna til aðstoðar við flótta­fólk frá Venes­ú­ela með stuðn­ingi við starf­semi Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu, en Guð­laugur Þór ræddi fyrr í dag við Juan Guaidó, for­seta þjóð­þings Venes­ú­ela, og greindi honum frá stuðn­ingi rík­is­stjórnar Íslands við hann sem for­seta lands­ins til bráða­birgða. Nicolás Maduro er for­seti Venes­ú­ela, en mik­ill þrýst­ingur hefur verið á hann að stíga til hliðar, ekki síst frá Banda­ríkja­stjórn sem hefur beitt við­skipta­þving­unum gagn­vart Venes­ú­ela og hefur form­lega lýst yfir stuðn­ingi við Guaidó.

Guð­laugur Þór greindi upp­haf­lega fyrst frá stuðn­ingi Íslands við Guaidó á Twitter síðu sinni, 4. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Þá greindi hann einnig frá fram­lagi Íslands til mann­úð­ar­stoðar, en efna­hagur Suður-Ameríku lands­ins er í molum. Íbúar í Venes­ú­ela eru 32 millj­ónir, en Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn áætlar að lands­fram­leiðsla lands­ins muni halda áfram að falla niður á þessu ári, en sam­drátt­ur­inn nemur næstum 50 pró­sentum miðað við árið 2013.

Fram­lagið til aðstoðar við flótta­fólkið kemur til við­bótar við tutt­ugu millj­óna króna fram­lag sem var ráð­stafað til hjálpar flótta­fólki frá Venes­ú­ela í sam­starfi við SOS-Barna­þorp í lok jan­úar, segir í til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár