Meirihlutinn í HS Orku seldur fyrir 37 milljarða króna

Búið er að skrifa undir kaup­samn­ing á meiri­hluta hluta­fjár í eina íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu.

HS Orka á tvö orkuver, í Svartsengi og svo Reykjanesvirkjun.
HS Orka á tvö orku­ver, í Svarts­engi og svo Reykja­nes­virkjun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­fest­ing­ar­sjóður í stýr­ingu hjá Macquarie Infrastructure and Real Assets (MIRA) hefur und­ir­ritað kaup­samn­ing á 53,9 pró­sent hlut Magma Energy Sweden í íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu HS Orku á 304,8 millj­ónir dala, eða um 37 millj­arða króna.

MIRA er stærsta eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæki í heimi á sviði inn­viða­fjár­fest­inga. HS Orka er þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins á eftir Lands­virkjun og Orku­veitu Reykja­víkur. Fyr­ir­tækið á tvö orku­ver, annað í Svarts­engi og hitt á Reykja­nesi, og fram­leiðir alls um sex pró­sent af allri orku á Íslandi.

Magma Energy Sweden var í eigu kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Innergex Renewable Energy. Það keypti Alterra Power, áður stærsta eig­anda HS Orku, í febr­úar í fyrra. Magma Energy Sweden, sem heldur á meiri­hlut­anum í HS Orku var því dótt­ur­fé­lag Innergex.

Aðrir eig­endur HS Orku eru meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir í gegnum félagið Jarð­varma slhf. og fjár­fest­inga­sjóð­inn Örk, sem er í eigu sviss­nesks félags. Sam­an­lagður eign­ar­hluti þeirra er 46,1 pró­sent.

Á 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu

HS Orka er eina íslenska orku­fyr­ir­tækið sem er í eigu einka­að­ila. HS Orka á og rekur orku­ver í Svarts­engi og á Reykja­­nesi auk þess sem virkj­ana­­kostir sem fyr­ir­tækið á eru í nýt­ing­­ar­­flokki ramma­á­ætl­­un­­ar.

HS Orka skil­aði 4,6 millj­­arða króna hagn­aði árið 2017 og eignir félags­­ins voru metnar á um 48,4 millj­­arða króna. Á meðal þeirra eigna er 30 pró­­sent hlutur í Bláa lón­inu sem met­inn var á 2,7 millj­­arð króna í síð­­asta birta árs­­reikn­ingi HS Orku. Á árinu 2017 bár­ust nokkur til­­­boð í þann hlut sem voru yfir ell­efu millj­­örðum króna. Alt­erra vildi taka þeim til­­­boðum en Jarð­varmi hafn­aði því og for­svar­s­­maður fyr­ir­tæk­is­ins sagði að til­­­boðin end­­ur­­spegl­uðu ekki verð­­mæti Bláa Lóns­ins. Heild­­­ar­virði Bláa lóns­ins sam­­­kvæmt til­­­­­boð­unum sem fyrir lágu var 37 millj­­­arðar króna.

Umdeild kaup á sínum tíma

Alt­erra, sem þá hét Magma Energy, keypti sig inn í HS Orku árið 2009. Við­­skiptin voru mjög umdeild og þáver­andi stjórn­­völdum hugn­að­ist þau ekki. Þrátt fyrir ítrek­aðar inn­­­grip­stil­raunir hélt Mag­ma/Alt­erra áfram að eign­­ast hluti í HS Orku og átti vorið 2011 nán­­ast allt hluta­­féð í fyr­ir­tæk­in­u.

Jarð­varmi keypti svo hlut í HS Orku í maí 2011 og nýtti kaup­rétt á við­­bót­­ar­hlut ári síð­­­ar. Sam­an­lagt á það félag núna 33,4 pró­­sent hlut. Síð­sum­ars keypti svo fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Örk 12,7 pró­­sent hlut, en Alt­erra, og síðar Innergex, áttu rest þangað til í dag. Inn­­­lendir aðilar munu því eiga 46,1 pró­­sent hlut í HS Orku á móti MIRA, sem mun eiga 53,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HSOrka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár