Hægir á hagvexti og verðbólga eykst

Lands­bank­inn kynnti í morgun þjóð­hags- og verð­bólgu­spá bank­ans til á næstu fjög­urra ára. Spáð er að stýri­vextir hækki, verð­bólga auk­ist og hægja muni á hag­vexti en efna­hags­horfur þykja þó engu síður jákvæðar vegna við­var­andi hag­vaxtar.

Í nýrri hag­spá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans fyrir árin 2018 til 2021 er gert ráð fyrir að hægja muni veru­lega á hag­vexti næstu árin eftir kröft­ugan vöxt und­an­far­inna ára en á sama tíma mun verð­bólga aukast. Samkvæmt spá bank­ans eru efna­hags­horfur engu að síður jákvæðar því gert er ráð fyrir hóf­legum en við­var­andi hag­vexti næstu ár. Hag­vöxtur verður sam­kvæmt spá bank­ans 3,9 pró­sent á þessu ári, 2,4 pró­sent á næsta ári, og rúm­lega 2 pró­sent árin 2020 og 2021. Nýja þjóð­hags- og verð­bólgu­spá bank­ans var kynnt á morg­un­fundi í Hörpu í dag.

Verðbólga eykst

Verð­bólgu­horfur eru tals­vert lak­ari en síð­ustu ár og er gert ráð fyrir að verð­bólgan verði komin í um 3,5 pró­sent í lok þessa árs. Gert er ráð fyrir að verð­bólga eigi eftir að aukast nokkuð á næsta ári og verði mest 3,75 pró­sent um mitt næsta ár. En verði að með­al­tali um 3,3 pró­sent á tíma­bil­inu 2019-2021. Samkvæmt hag­spánni er helstu drif­kraft­arnir á bak við lak­ari verð­bólgu­horfur skörp veik­ing krón­unnar og hækk­andi inn­flutn­ings­verð en elds­neyt­is­verð skiptir þar veru­legu máli.

„Óvissan varð­andi verð­bólgu­spána er tölu­vert meiri að þessu sinni en oft áður. Þar vegur þungt að nán­ast ómögu­legt er að spá rétti­lega fyrir um þróun gengis krón­unnar og olíu­verðs. Aukið flökt á bæði krón­unni og olíu­verði gerir það verk­efni ekki við­ráð­an­legra. Eins er mikil óvissa um nið­ur­stöður kom­andi kjara­við­ræðna aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Verði almennt samið um hækkun launa langt umfram fram­leiðni­vöxt í þjóð­ar­bú­inu mun það, að öðru óbreyttu, leiða til tölu­vert verri verð­bólgu­horfa en hér er gert ráð fyrir.“ segir í hag­spánni.

Hag­fræði­deild telur lík­legt að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákveði að hækka vexti um 0,25 pró­sentu­stig seinna á þessu ári og að meg­in­vextir bank­ans verði þar með 4,5 pró­sent. Búast megi við frek­ari hækkun vaxta á næsta ári og að þeir verði þá 5,0 pró­sent.

[adspot]

Ákveðin þáttaskil í hagsveiflunni

Eftir að efna­hags­að­stæður hér á landi hafa að miklu leyti verið hag­felldar síð­ustu ár telur spáin að nú virð­ist vera komið að ákveðnum þátta­skilum í hag­sveifl­unni. Verð­bólga hefur verið nær við­var­andi undir 2,5 pró­sent, verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans frá febr­úar 2014 allt fram á mitt þetta ár og sam­felldur hag­vöxtur hefur mælst frá árinu 2011. Kaup­máttur launa hefur aldrei verið hærri, atvinnu­leysi er lágt og skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja lágar í sögu­legu sam­hengi. Staða rík­is­sjóðs er sterk og hrein erlend skulda­staða þjóð­ar­bús­ins hefur aldrei verið hag­stæðar segir í skýrsl­unni. Nú hins vegar er spáð að verð­bólga auk­ist og það muni hægja á hag­vexti. Samkvæmt spánni eru efna­hags­horf­urnar engu að síður jákvæðar því gert er ráð fyrir hóf­legum en við­var­andi hag­vexti á spá­tím­anum.

Líklegt þykir að gengi krón­unnar veik­ist á spá­tím­anum frekar en að það styrk­ist. Samkvæmt spánni eru þó engar for­sendur til að álykta að sú breyt­ing verði veru­leg miðað við núver­andi gildi krón­unnar Gert ráð fyrir að gengi krónu gagn­vart evru verði nálægt 140 í lok spá­tím­ans. Með­al­gengi krónu gagn­vart evru það sem af er árinu er nú um 125. Veiking á gengi krón­unnar síð­ustu vikur muni því að öllum lík­indum koma fram í auk­inni verð­bólgu á næstu mán­uðum. Ef spá hag­fræði­deildar gengur eftir um lít­ils háttar geng­is­veik­ingu næstu ára þá mun það einnig vega þungt í verð­bólgu­þró­un­inni á spá­tíma­bil­inu.

Rólegra á fasteignamarkaði og hægir á ferðamönnum

Verulega hefur hægt á hækkun fast­eigna­verðs á síð­ustu mán­uðum en ákveðin ró hefur færst á mark­að­inn eftir mik­inn hama­gang fram á mitt ár 2017. Heild­ar­hækkun hús­næð­is­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 3,9 pró­sent á einu ári fram til sept­em­ber 2018 og hækk­unin ekki verið lægri síðan vorið 2011.

Eftir að óvissan í kringum vænt­an­lega kjara­samn­inga róast þá telur spáin að fast­eigna­mark­að­ur­inn leiti smá saman í svipað horf og hefur verið til lengri tíma. En spáð er að fast­eigna­verð hækki um 4,3 pró­sent á þessu ári, 4 pró­sent á næsta ári, 6 pró­sent árið 2020 og 8 pró­sent árið 2021.

Hagspáin gerir ráð fyrir að hægi muni á fjölgun ferða­mönnum á næstu árum og verði aðeins um 2 pró­sent á árunum 2019 til 2021. Fjölg­unin hefur verið í kringum 6 pró­sent á þessu ári. Mest hefur fjölgun ferða­manna hér á landi verið tæp­lega 10 pró­sent.

Samneysla mun halda áfram að aukast

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi 2019 aukast heild­ar­út­gjöld rík­is­sjóðs um 6,9 pró­sent frá fjár­lögum síð­asta árs og heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs aukast um 6,1 pró­sent. Þetta veldur því að heild­ar­jöfn­uður verður ein­ungis um 1 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu sem er lægra en þau 1,2 pró­sent sem stefnt hefur verið að til þessa. Útgjalda­vöxt­ur­inn er því við efri mörk hins mögu­lega eins og fjár­mála­ráð hefur ítrekað bent á segir í skýrsl­unni.

Sam­neysla jókst um 3,1 pró­sent árið 2017 og hlutur hennar af VLF hækk­aði þá í fyrsta skipti frá 2009. Á und­an­förnum árs­fjórð­ungum hefur sam­neysla auk­ist stöðugt hjá ríki, sveit­ar­fé­lögum og almanna­trygg­ingum og hefur aukn­ingin verið nokkuð stöðug hjá sveit­ar­fé­lög­unum.

Hag­fræði­deildin telur ólík­legt að takast muni að hemja sam­neyslu­út­gjöld eins mikið og stefnt er að. Eins og áður segir er áætlað að sam­neyslan hafi auk­ist um 3,1 pró­sent á síð­asta ári, þrátt fyrir mark­mið um minni aukn­ingu. Reiknað er því með því að sam­neysla auk­ist um 2,7 pró­sent á yfir­stand­andi ári og vegi aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála og félags-, trygg­inga- og hús­næð­is­mála þar þungt. Spáð er að sam­neysla muni aukast um 2,6 pró­sent árið 2019, 2,3 pró­sent árið 2010 og 2 pró­sent árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár