Beinskiptingin að hrynja út af markaðnum

Eftir að hafa spjallað við öku­kenn­ara lagði þing­maður Pírata fram fyr­ir­spurn um gír­skipt­ingar í nýskráðum bílum. Hrun bein­skipt­ing­ar­innar blasir við þegar töl­urnar eru skoð­aðar.

Einungis um tvö prósent þeirra ökutækja sem einstaklingar skráðu á götuna í fyrra voru beinskipt.
Einungis um tvö pró­sent þeirra öku­tækja sem ein­stak­lingar skráðu á göt­una í fyrra voru bein­skipt. Mynd: Pexels

Einungis rúm 7 pró­sent bíla sem voru nýskráðir á Íslandi í fyrra voru bein­skiptir, eða 1.181 af alls 15.797 bílum, sam­kvæmt tölum sem fram koma í svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn þing­manns­ins Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata. Af þeim bílum sem ein­stak­lingar skráðu á göt­una voru ein­ungis um tvö pró­sent bein­skiptir.

Í svar­inu frá ráð­herra eru dregnar saman tölur frá Sam­göngu­stofu um það hvers konar gír­skipt­ingar eru í þeim bílum sem hafa verið nýskráðir á göt­una á árunum 2011 til 2021 og raunar einnig frek­ari upp­lýs­ingar um nýskráða bíla eftir orku­gjöfum þeirra og því hvort það eru ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki sem skrá bíl­ana.

Flestir ökukennarar þurfa að hafa beinskiptan kennslubíl

Þing­mað­ur­inn sem kall­aði eftir þessum upp­lýs­ingum segir, spurður um hvers vegna í ósköp­unum hann hafi kallað eftir þessum upp­lýs­ingum, að það hafi ef til vill ekki verið mjög djúp pæl­ing á bak við fyr­ir­spurn­ina til ráð­herra.

„Þetta byrj­aði á að ég spjall­aði við öku­kenn­ara sem fannst asna­legt að allir öku­kenn­arar verða eig­in­lega að eiga bein­skiptan kennslu­bíl (og sum eiga sjálf­skiptan með). Bein­skiptir eru eig­in­lega alltaf með bruna­hreyfil, hrein­orku­bílar eig­in­lega alltaf sjálf­skiptir. Þannig að til að vera með „fullt“ öku­skír­teini lærir þorri fólks á bíl með bruna­hreyfil,“ segir Andrés Ingi og bætir við að hvort það hvernig öku­tæki fólk læri á geti ekki haft ein­hver áhrif á það hvers­konar öku­tæki fólk velur sér.

Í fyr­ir­spurn sinni spurði þing­mað­ur­inn hvort ráð­herra teldi að núver­andi reglu­gerð um öku­skír­teini, sem kveður á um tak­mörkun á öku­skír­teini þeirra sem taka verk­legt próf á sjálf­skipt öku­tæki, væri „í sam­ræmi við þróun bíla­flot­ans og mark­mið stjórn­valda í orku­skiptum.“

Í svari Sigurðar Inga segir að eðli­legt sé að gera þá kröfu til þeirra sem hyggj­ast aka bein­skiptum öku­tækjum að þeir hafi sýnt fram á við­un­andi kunn­áttu með próftöku á við­eig­andi öku­tæki. Hins vegar verði að telja full­nægj­andi að not­ast sé við sjálf­skipt öku­tæki í verk­legu prófi ef ætl­unin er aðeins að aka sjálf­skiptum öku­tækjum. „Ekki verður séð að þetta fyr­ir­komu­lag sé í and­stöðu við mark­mið stjórn­valda í orku­skiptum eða í ósam­ræmi við þróun bíla­flot­ans,“ segir í svari ráð­herra.

Bjóst ekki við því að sjá jafn mikið hrun og blasir við

Andrés Ingi segir að eftir spjallið við öku­kennar­ann hafi hann orðið for­vit­inn um að vita hversu hratt þetta væri að breyt­ast og bætir við að það sé sjálf­sagt margt hægt að draga út úr þeim miklu upp­lýs­ingum um nýskrán­ingar bíla­flot­ans sem hann fékk í svar­inu frá ráð­herra.

Sjálfur seg­ist hann ekki hafa búist við því hruni sem merkj­an­legt er í bein­skipt­ing­unni – en ein­ungis 2 pró­sent þeirra bíla sem ein­stak­lingar skráðu á göt­una árið 2021 voru bein­skiptir og hefur sú tala farið lækk­andi ár frá ári síð­ustu ár.

Í upp­hafi síð­asta ára­tugs og inn á hann miðjan var nærri fjórð­ungur nýskráðra bíla sem ein­stak­lingar keyptu bein­skiptur, en hlufallið fór í fyrsta sinn undir 20 pró­sent árið 2017 og nú er svo komið að ein­ungis einn af hverjum 50 nýjum bílum sem skráðir eru á göt­una af ein­stak­lingum eru bein­skiptir.

Hvað nýskrán­ingar fyr­ir­tækja varðar var um helm­ingur nýskráðra bíla bein­skiptur fram til árs­ins 2015 en síðan hafa þær nýskrán­ingar dalað veru­lega – niður í 13 pró­sent af nýskráðum bílum árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár