Sólveig Anna segir verkalýðsforystuna ekki leggja áherslu á skattalækkanir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að verka­lýðs­for­ystan leggi ekki áherslu á skatta­lækk­anir heldur leggi hún mikla áherslu á að leið­rétta það sem Stefán Ólafsson hefur kallað hina Stóru skatta­til­færslu.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það misskilning að verkalýðsforrysta leggi áherslu skattalækkanir. Hún segir að í staðinn leggi hún áherslu á réttlátt skattkerfi sem virki í alvöru sem jöfnunartæki. Hún leiðréttir misskilninginn í stöðufærslu á Facebook-síðu sinni í morgun og vitnar þar í orð Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands, sem sagði í morgunútvarpi Rásar 1 í morgun að nýja verkalýðsforystan leggi áherslu á skattalækkanir og að það gangi þvert á norrænar hugmyndir um skattheimtu.

Leggja áherslu á að leiðrétta Stóru skattatilfærsluna

[links]Sólveig segir í stöðufærslu sinni að „hin svokallaða nýja verkalýðsforysta“ leggi mikla áherslu á að leiðrétta það sem Stefán Ólafsson hefur kallað Stóru skattatilfærsluna. Sólveig segir að skattatilfærslan snúist um að skattbyrði þeirra sem minnst hafi á milli handanna hafi verið markvisst aukin meira og minna síðust tvo áratugi þannig að ríflega 50 prósent af lágmarkslaunum séu nú skattlögð. Ásamt því hafi barnabætur minnkað verulega og þeim sem þær fá fækkað og að sama megi segja um húsnæðisbætur.

Sólveig segir að þetta hafi verið gert í þeim tilgangi að létta skattbyrði á fjármagnstekjueigendur og þau sem mest hafa á milli handanna. Hún segir að þau sem mest hafi á milli handanna búi nú við fáránlega undanlátssemi en af fjármagnstekjum er aðeins greiddur 22 prósent skattur. „Þetta eru staðreyndir og þessu viljum við breyta. Við viljum td. að fjármagstekjuskattur verði hækkaður verulega svo að hann verði samskonar og hann er á Norðurlöndunum,“ segir Sólveig enn fremur.

„Þannig að það er rangt að við leggjum mikla áherslu á skattalækkanir; við leggjum alla áherslu á réttlátt skattkerfi sem virkar í alvöru sem jöfnunartæki og gerir líf vinnuaflsins (og þeirra sem af einhverjum ástæðum geta ekki unnið) betra og auðveldara og við leggjum alla áherslu á að hin auðugu í samfélaginu standi eðlileg skil á sínu til að halda hér uppi velferðarsamfélagi að norrænum sið, “ segir Sólveig að lokum í stöðufærslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár