93% Íslendinga á Facebook

Nær allir Íslend­ingar nota Facebook og vin­sældir Snapchat hafa auk­ist til muna. Þó er nokkur munur á notkun sam­fé­lags­miðla milli höf­uð­borgar og lands­byggðar.

Facebook er enn feykivinsælt meðal Íslendinga.
Facebook er enn feyki­vin­sælt meðal Íslend­inga. Mynd: © Dado Ruvic / Reuters

Nær öll íslenska þjóðin er á Facebook og um tveir af hverjum þremur nota Snapchat reglu­lega. Notkunin á Snapchat er þó ójafn­ari milli þjóð­fé­lags­hópa, en for­ritið er vin­sæl­ast meðal kvenna, minna mennt­aðra, íbúa lands­byggð­ar­innar og kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þetta kom fram í nýrri könnun MMR.

Í könn­un­inni, sem mældi notkum sam­fé­lags­miðla eftir lýð­fræði­hópum, kom í ljós að 93% Íslend­inga segj­ast nota Facebook. Næst­vin­sæl­asti mið­ill­inn var Snapchat, en 67% þjóð­ar­innar segj­ast nota hann reglu­lega. Aðrir miðlar sem njóta mik­illa vin­sælda eru YouTube (66%), Spotify (51%) og Instagram (45%). Frá síð­ustu könnun MMR fyrir tveimur árum síðan hefur mest aukn­ing verið á notkun Spotify og Snapchat.

Snapchat vinsælt á landsbyggðinni

Notkun miðl­anna dreif­ist mis­jafnt milli þjóð­fé­lags­hópa, en lít­inn mun var þó að sjá á notkun Facebook yfir allt landið og alla ald­urs­hópa. Svar­endur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru hins vegar dug­legri að nota YouTube, Spotify og Instagram heldur en þeir á lands­byggð­inni, en notkun á þessum miðlum jókst einnig með auk­inni menntun.

Svipað mynstur mátti sjá þegar litið var til stjórn­mála­skoð­ana, en stuðn­ings­fólk stjórn­mála­flokka sem mæl­ast sterk­astir á lands­byggð­inni (Fram­sókn­ar­flokkur, Mið­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur) voru lík­legri en aðrir til að segj­ast nota Snapchat reglu­lega. Stuðn­ings­menn flokka sem eru sterk­ari á höf­uð­brg­ar­svæð­inu (Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn) voru hins vegar lík­legri til að nota YouTube, Spotify og Instagram.

Nokkur munur var á notkun sam­fé­lags­miðla milli kynja, en miðl­arnir Snapchat og Pinter­est virð­ist vin­sælli meðal kvenna á meðan fleiri karlar nota YouTube, Twitter, LinkedIn og Reddit. Þá fór notkun miðl­anna almennt minnk­andi með adrei að und­an­skil­inni notkun hjá LinkedIn, sem er vin­sælla meðal eldri ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

internetið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár