Vill ekki að Lífeyrissjóður verzlunarmanna fjárfesti í félögum sem borga ofurlaun

Ragnar Þór Ing­ólfs­son sendir fjár­mála­kerf­inu þau skila­boð að hann muni beita sér fyrir því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna fjár­festi ekki í félögum sem greiða kaup­rétt­ar­samn­inga eða ofur­laun. Hann mun funda með Kviku banka á morgun.

„Ég mun beina þeim til­mælum til nýkjör­innar stjórnar að haga sínum fjár­fest­ingum með þeim hætti að það verði ekki fjár­fest í fyr­ir­tækjum sem eru með kaup­rétt­ar­samn­inga eða ofur­laun eða bónusa. Eða haga sér með þeim hætti eins til dæmis eins og Almenna leigu­fé­lagið, að beina við­skiptum sínum frá slíkum félögum. Það verða skýr skila­boð sem við munum senda nýrri stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.“

Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut klukkan 21 í kvöld.

Ný stjórn verður kosin í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, næst stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins og eins stærsta fjár­festis á íslenska mark­aðnum, á næstu vikum en yfir­stand­andi kjör­tíma­bil stjórn­ar­innar er til loka febr­úar 2019.. Stjórn VR til­nefnir helm­ing stjórn­ar­manna en sam­tök ýmissa atvinnu­rek­enda hinn helm­ing­inn. Á næsta kjör­tíma­bili verður stjórn­ar­for­mað­ur­inn úr röðum þeirra sem VR til­nefnir.

Ragnar segir að skila­boð sín út á við vegna þessa séu þau að það verði breyttar og aðrar áherslur heldur en hafa verið. „Það eru skila­boð sem mig langar að senda út inn í fjár­mála­kerfið, að menn skulu þá hugsa sig tvisvar um þegar þeir fara gegn hags­munum launa­fólks með þessum hætti, að við munum beita okkur með rót­tækri hætti heldur en áður hefur verið.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan:

Í þætti kvölds­ins ræðir Ragnar Þór þá stöðu sem er komin upp í kjara­við­ræðum, fer yfir von­brigði sín með til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar í skatta­málum og mjög opin­berar deilur sínar við Almenna leigu­fé­lagið. Stjórn VR gaf í byrjun viku Kviku banka, sem er í þeim fasa að kaupa GAMMA, sem stýrir sjóði sem á Almenna leigu­fé­lagið, nokkra daga frest til að rifta kaupum sínum á Gamma vegna leigu­hækk­ana Almenna leigu­fé­lags­ins, ella myndi VR færa 4,2 millj­arða króna sem eru í stýr­ingu hjá bank­anum annað.

[adspot]Ragnar segir að hann og aðrir full­trúar VR muni funda með Kviku á morgun, fimmtu­dag, vegna máls­ins „Ég veit svo sem ekki hvað kemur út úr því. Við munum standa fast á þess­ari ákvörðun. Þó að það liggi fyrir að stjórn­endur Kviku hafi ekki bein áhrif á ákvarð­anir Almenna leigu­fé­lags­ins þá getum við alla­vega nýtt okkur það afl sem við höfum. Að gera stýrt okkar sjóð­stýr­ingu hvert sem við viljum án þess að það kosti okkur eitt­hvað. Það kostar okkur ekk­ert að færa til okkar sjóði, við erum með þannig form á þeim. Við munum færa til okkar sjóði verði Almenna leigu­fé­lagið ekki við kröfum okkar um að hætta þessu ofbeldi sem að er beitt gagn­vart þeirra við­skipta­vinum og leigj­endum, okkar félags­mönnum meðal ann­ars.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár