Fimm fótboltamenn á síðasta séns

Þeir eru 35, 37 og 39 ára og eiga eitt sam­eig­in­legt, annað en að vera á fer­tugs­aldri: Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu í Katar er þeirra síð­asti séns til að leiða lands­lið sitt til sig­urs.

Lionel Messi og Christiano Ronaldo eru að öllum líkindum að spila á sínu síðasta heimsmeistaramóti í knattspyrnu.
Lionel Messi og Christiano Ronaldo eru að öllum lík­indum að spila á sínu síð­asta heims­meist­ara­móti í knatt­spyrnu. Mynd: EPA

Hvað eiga Christiano Ronaldo, Lionel Messi, Luka Modric, Dani Alves og Luis Suárez sam­eig­in­legt, annað en að vera heimsklassa knatt­spyrnu­menn á fer­tugs­aldri?

Það er kannski einmitt það sem sam­einar þá. Þeir eru allir í stórum hlut­verkum hjá lands­liðum sínum á heims­meist­ara­mót­inu í Doha í Katar sem hófst um síð­ustu helgi. Mögulega er þetta þeirra síð­asti séns til að leiða lands­lið sín til árang­urs. Pressan er mis mikil en allir eiga þeir þann draum sam­eig­in­legan að verða heims­meist­arar.

Christiano Ronaldo: 5. febrúar 1985 – 37 ára

Ronaldo hit­aði upp fyrir HM með umdeildu einka­við­tali við breska fjöl­miðla­mann­inn Piers Morgan þar sem hann setti út á Manchester United, félagið sem hann sneri aftur til í ágúst í fyrra eftir 12 ára fjar­veru. Í við­tal­inu fór hann einnig ófögrum orðum um leik­menn liðs­ins og knatt­spyrnu­stjór­ann, Hol­lend­ing­inn Erik Ten Hag. Á þriðju­dag­inn var til­kynnt að samn­ingi Ronaldos við Manchester United hafi verið rift og er hann því laus allra mála og getur samið við annað félag án þess að United fái greiðslu fyrir hann.

Ronaldo getur því ein­beitt sér að HM. Þó svo að hann hafi ekki minnst einu orði á portú­galska lands­liðið í við­tal­inu umdeilda hefur Ronaldo verið gagn­rýndur í heima­land­inu, þrátt fyrir að vera í guða­tölu og löngu álit­inn þjóð­hetja. Portú­galskir fjöl­miðlar hafa spurt Fernando Santos, þjálf­ara lands­liðs­ins, spurn­inga eins og hvort hann sé skyld­ugur til að velja Ronaldo í byrj­un­ar­liðið.

Í síð­ustu átta af níu leikjum með portú­galska lands­lið­inu fyrir heims­meist­ara­mótið tókst Ronaldo ekki að skora. Það breytt­ist í fyrsta leik liðs­ins á HM í vik­unni þegar Ronaldo skor­aði úr víta­spyrnu í leik liðs­ins gegn Ghana. Með mark­inu varð hann fyrsti leik­mað­ur­inn til að skora á fimm heims­meist­ara­mótum í knatt­spyrnu karla. Portúgal hafði betur, 3-2, en litlu mun­aði að leik­ur­inn end­aði í dramat­ísku jafn­tefli.

Ronaldo leiddi Portúgal til sig­urs á Evr­ópu­mót­inu 2016 og nú er komið að HM. Ef það tekst ætlar hann að leggja takka­skóna á hill­una. „Það er 100 pró­sent öruggt,“ sagði Ronaldo í við­tal­inu við Morgan.

Lionel Messi: 24. júní 1987 – 35 ára

Áður en HM hófst var það umtalað að þetta yrði mótið hans Messi, nú væri komið að honum að leiða Argent­ínu til sig­urs á heims­meist­ara­móti og gull­tryggja þannig stöðu sína sem besti knatt­spyrnu­maður allra tíma.

Daginn fyrir fyrsta leik Argent­ínu á HM í vik­unni sagði Messi við fjöl­miðla að þetta væri lík­lega síð­asta heims­meist­ara­mótið sem hann spilar á. „Síðasta tæki­færi mitt til að upp­fylla þennan stóra draum sem ég.“

„Fall er far­ar­heill“ eru ein­kunn­ar­orð sem Messi ætti kannski að til­einka sér eftir 1-2 tap gegn Sádi-Arabíu í fyrsta leik Argent­ínu á mót­inu á þriðju­dag. Messi kom Argent­ínu yfir úr víta­spyrnu snemma leiks en Sádi-Arabía skor­uðu tvö mörk snemma í seinni hálf­leik og þar við sat. Óvænt­ustu úrslit í sögu móts­ins sögðu fjöl­miðlar, ekki bara á HM í Katar, heldur á HM frá upp­hafi.

Elsti sonur Messi, Thiago, er hans helsti stuðn­ings­maður, en frá honum kemur líka mesta pressan. „Sann­leik­ur­inn er sá að hann setur mikla pressu á mig,“ sagði Messi við argent­ínska fjöl­miðla fyrir mótið. Messi þarf ekki að gefa upp von­ina. Spánn tap­aði fyrsta leik sínum gegn Sviss á HM 2010 en hamp­aði heims­meist­aratitl­inum í lok móts.

Luka Modric: 9. september 1985 – 37 ára

Króatinn Luka Modric nær þeim áfanga á HM í Katar að vera fyrsti knatt­spyrnu­mað­ur­inn sem nær þeim áfanga að spila á heims­meist­ara- eða Evr­ópu­móti á þremur mis­mun­andi ára­tugum. Modric spil­aði á sínu fyrsta heims­meist­ara­móti í Þýska­landi 2006. HM í Katar er hans átt­unda stór­mót með króat­íska lands­lið­inu og það þriðja sem fyr­ir­liði.

Modric seg­ist ekki vera búinn að ákveða hvað taki við hjá honum eftir heims­meist­ara­mótið í Katar. Aldurinn virð­ist ekki vera að flækj­ast mikið fyrir honum. „Satt best að segja líður mér vel,“ sagði Modric, sem leikur með Real Madrid á Spáni, við fjöl­miðla fyrir mót.

Luis Suárez: 24. janúar 1987 – 35 ára

Suárez er meðal reynd­ustu sókn­ar­manna heims og hefur nafn hans vart verið nefnt í tengslum við HM í Katar án þess að Edinson Cavani fylgi með, sem er lík­lega líka á sínu síð­asta heims­meist­ara­móti. Saman hafa þeir skorað 126 mörk fyrir úrúg­væska lands­liðið og eru marka­hæstir í sögu lands­liðs­ins.

Suárez vill vænt­an­lega skapa betri minn­ingar á HM í Katar en á fyrri heims­meist­ara­mótum, þar sem hendur og tennur komu oftar við sögu en knatt­spyrnu­hæfi­leikar hans. Úrúgvæ mætir einmitt Ghana í loka­leik H-rið­ils 2. des­em­ber, mótherja þar sem Suárez varði með hönd­unum á línu í leik lið­anna á HM í Suður-Afríku 2010.

Dani Alves: 6. maí 1983 – 39 ára

Dani Alves er í hópi elstu leik­manna á HM í ár, aðeins þrír leik­menn eru eldri en hann en allir eru þeir á fer­tug­asta ald­ursári.

Alves nær þeim áfanga að vera elsti Bras­il­íu­mað­ur­inn sem spilar á heims­meist­ara­móti og tekur tit­il­inn af Djalma Santos sem var 37 ára þegar hann spil­aði með brasil­íska lands­lið­inu á HM á Englandi 1966.

Alves lék á sínu fyrsta heims­meist­ara­móti árið 2010 í Suður-Afríku og á heima­velli fjórum árum síðar. Hann var ekki með á HM í Rúss­landi 2018 vegna meiðsla en er nú mættur, á sitt síð­asta heims­meist­ara­mót.

Hlutverk Alves á mót­inu í ár fer ekki síst fram utan vallar. Það sýndi sig í fyrsta leik Brasilíu gegn Serbíu þegar hann tók vel á móti Richarlison þegar honum var skipt út af eftir að hafa skorað bæði mörk liðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár