Elísabet tekur ekki við landsliðinu - Æskilegt en ekki skilyrði að þjálfarinn búi á Íslandi

Elísabet Gunn­ars­dóttir þjálf­ari Krist­i­an­stad í Svíþjóð mun ekki taka við þjálfun kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Formaður KSÍ segir búsetu á Íslandi ekki hafa verið skil­yrði, aðeins æski­lega.

Elísabet Gunn­ars­dóttir þjálf­ari Krist­i­an­stad í Svíþjóð mun ekki taka við þjálfun kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Í sam­tali við RÚV sagði Elísabet að hún hafi átt sam­tal við KSÍ þar sem fram hefði komið að æski­legt væri að þjálf­ari íslenska lands­liðs­ins væri búsettur hér á landi.

Elísabet hefur búið lengi í Svíþjóð og frétt RÚV kemur fram að séu það kröfur KSÍ að þjálf­ar­inn búi á Íslandi verði hún ekki þjálf­ari lands­liðs­ins. Síðan hafi önnur atriði komið til sem hún hafi þurft að vega og meta en nið­ur­staðan hafi verið að gefa mögu­leik­ann frá sér.

Í sam­tali við Kjarnann segir Guðni Bergsson for­maður KSÍ að krafan um búsetu þjálf­ar­ans hafi ekki verið gert að skil­yrði. „Við ræddum um fót­bolt­ann almennt og kvenna­bolt­ann auð­vitað sér­stak­lega og bara út af hennar aðstæðum þá vildi hún ekki fara í þessar við­ræður og taka þær lengra,“ segir Guðni.

Búseta á Íslandi hafi ekki verið ákvörð­un­ar­at­riði í þessu heldur aðeins eitt af mörgum. Guðni vill hins vegar ekki svara því hvaða ástæður lágu að baki því að ekki var hægt að ganga til samn­inga við Elísa­betu. Hún verði að svara því sjálf.

„Munurinn á kvenna­bolt­anum og karla­bolt­anum er nátt­úru­lega sá að flestir liðs­manna kvenna­liðs­ins spila hér heima á meðan í síð­asta hópi ein­ungis einn leik­maður karla­liðs­ins sem spilar í Pepsi-deild­inni,“ segir Guðni en þjálf­ari íslenska karla lands­liðs­ins, Erik Hamrén, er einmitt búsettur í Svíþjóð. Hið sama átti við um fyrr­ver­andi þjálf­ara liðs­ins Lars Lagerback. Eðlilegt hefur þótt að ferð­ast mikil milli landa í til­vikum þess­ara þjálf­ara.

Guðni ítrekar hins vegar að búseta á Íslandi hafi aðeins verið æski­leg, ekki skil­yrði. „Í raun og veru sner­ist þetta bara um að fá að heyra í henni og fá hana til við­ræðna um mögu­legt starf. Það var nálg­unin í þessu. Við erum að tala við fleiri og fara yfir sviðið í þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kvennalandslið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár