„Erum með allt niðrum okkur“ í aðgerðum gegn mansali

Forseti ASÍ segir að grípa þurfi til nokk­urra vel skil­greindra aðgerða til að berj­ast gegn félags­legri brota­starf­semi sem þrífst á Íslandi.

„Annað er aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali. Við erum nátt­úru­lega að þver­brjóta alla alþjóða­samn­inga með því að hafa hundsað það. Síðasta aðgerð­ar­á­ætlun var í gangi 2013-2016 og hún var aldrei fjár­mögnuð og aldrei virk. Þannig að við erum með allt niðrum okkur þar.“

Þetta sagði Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Þar ræddi hún meðal ann­ars félags­lega brota­starf­semi sem fyr­ir­finnst á Íslandi og aðgerðir sem grípa þarf til svo að hægt sé að vinna gegn henni.

[adspot]Drífa segir að það séu nokkur atriði sem skipti þar mjög miklu máli sem snúa að aðbún­aði verka­fólks og aðstöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að bregð­ast við aðstæðum sem séu ekki í lagi.„Þar erum við að tala um að stöðva kenni­tölu­flakk þannig að þú getir ekki bara stofnað nýja og nýja og nýja kenni­tölu og sest í stjórnir fyr­ir­tækja aftur og aftur og aftur. Það eru ákveðnir aðilar sem virð­ast hafa þetta sem sitt aðal­starf. Að setj­ast í stjórnir fyr­ir­tækja, skræla þau að innan og setja þau í þrot og skilja fólk eftir launa­laust og í við­kvæmri stöðu.“

Hún segir að þessi brota­starf­semi sé líka afar dýr sam­fé­lag­inu og að nauð­syn­legt sé, líkt og ASÍ hafi lagt til í skatta­til­lögum sínum, að efla skatta­eft­ir­lit umtals­vert.

Annað atriði sé inn­leið­ing keðju­á­byrgðar sem nái neðan frá og upp. „Sem þýðir að ef þú ert vinn­andi mann­eskja, það er svínað á þér, þá getur þú sótt rétt þinn upp alla keðj­una.“

Drífa ræðir einnig kjara­samn­ings­við­ræður, hús­næð­is­mál, stétta­skipt­ingu og hug­mynda­fræði­legan ágrein­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar í þætt­inum. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár