Verður WOW air sýndarflugfélag?

Í flug­iðn­aði er oft rök­rætt um hvað sé flug­fé­lag og hvað sé flug­miða­sölu­fyr­ir­tæki, segir pistla­höf­undur Forbes, þar sem hann veltir fyrir sér mögu­legri aðkomu Indigo Partners að rekstri WOW air

Líklegt er að Indigo Partners muni beita sér með þeim hætti, að WOW air leggi niður kostn­að­ar­söm flug og hag­ræði mikið í rekstri, meðal ann­ars með því að vera með starfs­fólk sem er með lág laun.

Þá er spurn­ing hvort WOW air verði í reynd eins konar sýnd­ar­flug­fé­lag.

Þetta segir Samuel Engel, pistla­höf­undur Forbes á sviði flug­mála, þar sem hann veltir fyrir sér mögu­legri fjár­fest­ingu Indigo í WOW air, en við­ræður um þau standa enn yfir og ekki verið til lykta leiddar.

Í pistl­inum nefndir hann að sýnin sem Bill Franke, hinn 81 árs gamli stofn­andi og helsti eig­andi Indigo Partners, séu sú að skera niður kostnað eins og hægt er, vera með hag­kvæman flug­véla­flota, og vera síðan með góða sam­legð í rekstr­inum. Þetta hafi verið gert með Wizz Air og Frontier, með góðum árangri.

Með sýnda­flug­fé­lagi segir hann að átt sé við flug­fé­lag sem selji miða í gegnum gott vöru­merki, en síðan séu önnur félög sem fljúgi flug­félug­unum.

WOW air tap­aði 33,6 millj­ónum dala, sem jafn­gildir um 4,2 millj­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­ins 13,5 millj­ónum dala, jafn­virði tæp­lega 1,7 millj­arða króna miðað við núver­andi gengi. Þetta kemur fram í nýbirtu upp­gjöri flug­fé­lags­ins.

Tekjur WOW air námu 501,4 millj­ónum dala, um 61,5 millj­örðum króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og juk­ust um 31 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra þegar þær voru 371,8 millj­ónir dala.

EBITDA félags­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­ónir doll­ara fyrstu níu mán­uði síð­asta árs í að vera nei­kvæð um 18,9 millj­ónir nú, um 2,3 millj­arða íslenskra króna.

Eins og komið hefur fram, þá féll Icelandair frá því að kaupa WOW air, og hófust fljót­lega við­ræður milli WOW air og Indigo Partners. Ekkert hefur verið gefið upp um við­ræð­urnar, annað en það sem komið hefur fram í stuttum yfir­lýs­ingum, um að þær hafi gengið vel.

Indigo er risi í flug­heim­inum, og er með höf­uð­stöðvar í Arizona í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár