Uppsafnaðar eignir Íslendinga í skattaskjólum 350 til 810 milljarðar

Í lok árs­ins 2015 var upp­safnað umfang eigna og umsvifa Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­arðar króna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og tekju­tap hins opin­bera. Skýrsla nefnd­ar­innar var gerð opin­ber í dag, en Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að skýrslan væri búin að vera til­búin frá því í byrjun októ­ber. Skýrslan hefur nú verið send til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis.

Starfs­hóp­ur­inn segir að mögu­legt tekju­tap hins opin­bera vegna van­tal­inna eigna á aflands­svæðum geti verið allt frá 2,8 millj­örðum til 6,5 millj­arða á hverju ári.

„Allt bendir til þess að mest öll aflands­vistun eigna í eigu Íslend­inga hafi átti sér stað fyrir fall fjár­mála­kerf­is­ins, en frá þeim tíma hafa orðið miklar fram­farir í reglu­legum upp­lýs­inga­skiptum milli landa, m.a upp­lýs­inga­gjöf um bankainn­stæður Íslend­inga í þeim ríkjum sem sam­þykkt hafa reglur um upp­lýs­inga­skipti,“ segir í úrdrætti skýrsl­unnar. 

„Fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­ast frá 1999 fram að hruni og eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-fald­ast á sama tíma­bili. Þessi afland­svæð­ing íslenskra eigna er öðrum þræði „þjóð­ern­issinnuð“, því aflands­fé­lögin fjár­festa í stórum stíl á Íslandi. Þannig eru 56% Úrvals­vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar í eigu aflands­fé­laga í árs­lok 2007, eða um 1.500 ma.kr. Þessi félög voru að lang­mestu leyti í eigu Íslend­inga og sama gilti um óskráð félög í aflandseign­ar­haldi. Á þessum tíma má ætla að allt að 70% eigna­safns eigna­stýr­ingar íslensku bank­anna í Lúx­em­borg hafi verið bundin í íslenskum hluta­bréfum,“ segir meðal ann­ars í skýrslu hóps­ins. 

Eins og Panama­skjölin gefi til kynna hafi umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs verið ein­stakt í heim­inum á tím­anum fyrir hrun.

Í starfs­hópnum áttu sæti Sigurður Ing­ólfs­son, for­maður, Andrés Þor­leifs­son frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, Anna Borg­þórs­dóttir Olsen frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Björn R. Guð­munds­son frá Hagstofu Íslands, Fjóla Agn­ars­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Guð­mundur Sig­bergs­son frá Seðla­banka Íslands, Sigurður H. Ingi­mars­son frá skatt­rann­sókna­stjóra og Sigurður Jensson frá rík­is­skatt­stjóra. Starfs­maður hóps­ins var Íris H. Atla­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár