„Þeir drápu, hópnauðguðu og rændu“

Í eitt og hálft ár hefur stríð þar sem hópnauðg­unum, aftökum og fjölda­hand­tökum hefur verið beitt staðið yfir í Eþíópíu. Þúsundir hafa lát­ist vegna átak­anna og hung­ursneyð vofir yfir millj­ónum enda hefur neyð­ar­að­stoð ekki borist mán­uðum saman.

Stríðið í Eþíópíu hefur staðið í sextán mánuði. Í nóvember, þegar það hafði staðið í ár, komu margir saman í höfuðborginni Addis Ababa til að mótmæla því.
Stríðið í Eþíópíu hefur staðið í sextán mán­uði. Í nóv­em­ber, þegar það hafði staðið í ár, komu margir saman í höf­uð­borg­inni Addis Ababa til að mót­mæla því. Mynd: EPA

Lík eftir lík eftir lík. Mörg hund­ruð lík liggja á víð og dreif um göt­una. Lík ungra karl­manna. Lík barna og jafn­vel lík þung­aðra kvenna. Þessi sjón mun fylgja Destu Gebr­ean­anya, fimm barna móður, það sem eftir er. Hún hefði getað verið drepin enda sömu þjóðar og þeir sem hlutu þau örlög. En henni tókst að fela sig í heila viku – hjá nágranna sem til­heyrir annarri þjóð, þjóð sem her­menn­irnir eru ekki að reyna að útrýma líkt og hennar.

[adspot]

Desta er af Tigray-þjóð­inni sem kennd er við sam­nefnt svæði í Eþíópíu. Þegar hún sá líkin í hrönnum á göt­unni bjó hún enn í heimabæ sínum Abala í Afar-hér­aði sem liggur að Tigray. Þetta var 24. des­em­ber og vopn­aðir hópar hlið­hollir eþíópískum stjórn­völdum fóru um þorp og bæi í Afar dag­ana á undan og leit­uðu uppi Tigray-fólkið. Og drápu það.

Í stríð­inu sem geisað hefur í að verða eitt og hálft ár í Eþíópíu er hvorug fylk­ingin með hreina sam­visku enda hafa ýmsir vopn­aðir hópar, hlið­hollir annarri hvorri þeirra, blandað sér í átökin. Það eru engin ný tíð­indi þegar átök brjót­ast út – hvar sem er í ver­öld­inni. Hroða­verk gegn almennum borg­urum, venju­legu fólki, hafa verið framin á báða bóga og átökin sem hófust í Tigray en hafa síð­ustu mán­uði breiðst út til nálægra hér­aða, hafa kostað þús­undir manns­lífa og hrakið millj­ónir fólks á flótta. Og hvert flýr fólkið? Til nágranna­ríkj­anna Súdan og Erítreu. Flest er það þó á ver­gangi innan landamæra Eþíópíu.

Desta greiddi smygl­urum fyrir að koma sér og börnum sínum til Tigray þar sem hún taldi fjöl­skyldu sína þrátt fyrir það sem þar gengur á örugg­ari.

„Her­menn­irnir vörðu almenna borg­ara af öðru þjóð­erni en þurrk­uðu út Tigray-fólkið,“ segir Desta við frétta­stofu Al Jazeera. Hún heldur til í flótta­manna­búðum rétt utan við höf­uð­borg Tigray, Meklle. „Þeir drápu, hópnauðg­uðu, rændu og hand­tóku Tigray-fólkið sem þeir fundu í bænum. Aðeins ef þú þekktir ein­hverja af Afar-þjóð­inni og gast falið þig hjá þeim áttir þú mögu­leika á að lifa af.“

Hún veit ekki enn hvað varð um eig­in­mann­inn. Hann hvarf í inn­rás her­mann­anna í Abala og ekk­ert hefur spurst til hans síðan. „Enginn af Tigray-þjóð­inni er eftir í bænum. Þeir frömdu þjóð­ar­morð,“ segir Desta.

Í nóv­em­ber árið 2020 sendi Abiy Ahmed, for­sæt­is­ráð­herra Eþíópíu, vopnað her­lið inn í Tigray-hérað í norð­ur­hluta lands­ins. Til­gang­ur­inn var að koma stjórn­mála­flokknum sem þar fór með völd, Frels­is­flokk Tigray-fólks­ins (TPLF), frá völdum. Abiy sak­aði þá um að hafa ráð­ist á her­stöð og rétt­lætti með þeim hætti inn­rás­ina sem hann nýtur lið­sinnis hers Erítreu við. Óstað­festar fregnir herma að hópar frá Sómalíu og vopn frá Sádi-Arabíu séu einnig notuð í hern­að­inum.

Allt fór á annan end­ann á stuttum tíma. Ekki bara í Tigray heldur víða í hinu við­feðma og fjöl­menna landi. Átökin hafa borist til hér­að­anna Amhara og Afar en fólk af Tigray-þjóð­inni hefur einnig orðið fyrir ofsóknum og árásum víðar í land­inu.

En hvað varð til þess að allt fór í bál og brand? Líkt og í öllu stríði eru það völd sem barist er um. Og rótin felst m.a. í stjórn­ar­kerfi Eþíópíu sem komið var á árið 1994. Síðan þá hefur land­inu verið skipt í tíu héruð sem ólíkir þjóð­ern­is­hópar fara með völdin í.

Frels­is­flokkur Tigray-fólks­ins var sá sem átti mestan þátt í að koma hér­aðs­stjórna­kerf­inu á og er umhugað um að það verði áfram við lýði. Full­trúar hans leiddu fjög­urra flokka stjórn sem ríkti í Eþíópíu frá árinu 1991 er her­for­ingja­stjórn var komið frá völdum.

Óánægja fór að krauma

Hagsæld Eþíópíu jókst undir sam­steypu­stjórn­inni og allt var, eða virt­ist að minnsta kosti á yfir­borð­inu, með kyrrum kjörum um hríð. Reglu­lega komu þó upp áhyggjur og ásak­anir um alvar­leg mann­rétt­inda­brot og veikt lýð­ræði og að lokum fór það svo að óánægjan jókst veru­lega og mörgum fannst nóg komið.

Breyt­ingar voru gerðar á rík­is­stjórn­inni og Abiy var skip­aður nýr for­sæt­is­ráð­herra. Hann stofn­aði nýjan flokk, Vel­meg­un­ar­flokk­inn (Prosperity Party) og rak nokkra lyk­il­menn af Tigray-þjóð­inni úr stjórn sinni, menn sem sak­aðir höfðu verið um spill­ingu og grófa vald­níðslu.

Abiy hefur notið aðdá­unar utan land­stein­anna, ekki síst fyrir þátt sinn í að binda enda á langvar­andi deilur um Erítreu, svæði sem til­heyrði Eþíópíu en varð að sjálf­stæðu ríki á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Abiy hlaut Frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2019.

Sleit sambandi við Tigray

En vin­sældir hans voru ekki jafn­miklar alls staðar heima fyrir enda hafði hann reitt leið­toga Frels­is­flokks Tigray-fólks­ins til reiði. Þeir litu svo á að Abiy væri að reyna að mið­stýra land­inu og eyði­leggja hér­aðs­stjórn­ar­kerfið sem þeir vildu í lengstu lög standa vörð um.

Deil­urnar hörðn­uðu sífellt og í sept­em­ber er leið­togar Tigray-hér­aðs vildu halda sínar eigin kosn­ingar, sem stjórn­völd á lands­vísu telja ólög­legt, komst allt á suðu­punkt. Stjórn Abiy ákvað að slíta sam­bandi við Frels­is­flokk­inn og stöðva fjár­fram­lög til hér­aðs­ins. Leið­togar Frels­is­flokks­ins, sem fundið höfðu völd sín dvína í lengri tíma, sögðu aðgerð­irnar „jafn­ast á við stríðs­yf­ir­lýs­ingu“.

[adspot]

Ólgan jókst, Frels­is­flokk­ur­inn var sak­aður um að ráð­ast að her­stöð og stela þaðan vopnum og þá sagði Abiy að þeir hefðu „farið yfir lín­una“. Átök brut­ust út og nú, einu og hálfu ári síðar, hafa þús­undir lát­ist og millj­ónir þurfa nauð­syn­lega á mann­úð­ar­að­stoð að halda.

Hermenn eþíópískra stjórn­valda og vopn­aðir hópar hlið­hollir þeim hafa verið sak­aðir um að beita kyn­ferð­is­of­beldi í stríð­inu, að hafa hand­tekið yfir­gengi­legan fjölda fólks og um aftökur. Hermenn Tigray hafa einnig verið sak­aðir um ítrekað ofbeldi gegn almennum borg­urum. Al Jazeera hefur eftir Norð­mann­inum og pró­fess­ornum Kjetil Tronvoll, sem þekkir vel til átak­anna vegna ráð­gjafa­starfa sinna í Eþíópíu, að stríðið hafi orðið til þess að nágrannar berj­ast við hvern annan. Rof hefur orðið í sam­stöðu fólks með skelfi­legum afleið­ingum.

Stjórn Abiy Ahmeds hefur nú lýst yfir „ótíma­bundnu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum“. For­sæt­is­ráð­herr­ann von­ast til þess að loks­ins verði hægt að koma neyð­ar­að­stoð til fólks­ins í Tigray þar sem hung­ursneyð blasir við hund­ruðum þús­unda manna. Hann kall­aði á fimmtu­dag eftir því að herir Tigray-hér­aðs leggi einnig niður vopn og dragi sig frá öðrum hér­uðum. „Rík­is­stjórn Eþíópíu von­ast til þess að vopna­hléið muni bæta aðstöðu fólks­ins og vísa veg­inn í átt að lausn á átök­unum svo ekki þurfi að koma til frek­ari blóðsút­hell­inga.“

Vopnahlé?

Sam­ein­uðu þjóð­irnar segja að Tigray-hérað hafi verið svo ein­angrað vegna stríðs­átak­anna að ekki hafi verið hægt að koma þangað neyð­ar­að­stoð frá því í des­em­ber. Stríð­andi fylk­ingar benda hvor á aðra. Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafa sakað stjórn Abiy um að ein­angra Tigray-fólkið og koma í veg fyrir aðstoð til þeirra. En stjórn­völd benda hins vegar á upp­reisn­ar­menn­ina og segja ábyrgð­ina liggja hjá þeim. Frels­is­flokk­ur­inn hefur verið ásak­aður um hafa vilj­andi búið til neyð­ar­á­stand, nota hungur sem vopn í sinni valda­bar­áttu.

Um 40 pró­sent fólks­ins í Tigray, svæðis sem á búa um sex millj­ónir manna, eru í brýnni þörf á mat að sögn Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Á föstu­dag sam­þykktu upp­reisn­ar­hóp­arnir í Tigray að leggja niður vopn, svo lengi sem neyð­ar­að­stoðin ber­ist til hér­aðs­ins fljótt og örugg­lega.

Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, er frá Tigray-hér­aði. Hann segir hörm­ungar hafa fylgt stríð­inu og hvetur til þess að almennum borg­urum verði hlíft við frek­ari átökum.

Hvernig sem fer er talið að mann­úð­ar­að­stoðar, lyfja, mat­væla og ann­ars stuðn­ings, ger­ist þörf að minnsta kosti allt þetta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stríðsátök

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár