Bókasafn framtíðarinnar

Hundrað hand­rit eftir hund­rað af þekk­ustu rit­höf­undum sam­tím­ans verða geymd í Bóka­safni fram­tíð­ar­innar í hund­rað ár.

Á efstu hæð í nýju bóka­safni Osló­borgar, Deichman Bjørvika, má finna lítið her­bergi smíðað úr fal­legum við úr skógi við borg­ar­mörk Osló. Her­bergið verður eftir hund­rað ár fyllt af hund­rað nýjum hand­ritum eftir hund­rað höf­unda hvaðanæva að úr heim­inum.

Þar á meðal hafa nú þegar heims­frægir höf­undar á borð við banda­ríska rit­höf­und­inn Margaret Atwood og breska höf­und­inn David Mitchell skilað inn hand­ritum fyrir her­bergið. Auk þeirra hefur íslenski rit­höf­und­ur­inn Sjón skilað inn hand­riti. Enginn fær þó að bera þessi hand­rit augum fyrr en árið 2114.

Herbergi þagnarinnar

Katie Paterson, skosk mynd­lista­kona, átti hug­mynd­ina af Bóka­safni fram­tíð­ar­innar en verkið snýst um að árlega í eina öld leggur val­inn rit­höf­undur inn hand­rit til safns­ins við hátíð­lega athöfn í borg­ar­skóg­inum í Osló.

Árið 2014 voru þús­und tré gróð­ur­sett í borg­ar­skóg­inum. Hundrað árum síðar, árið 2114, munu þau tré verða hoggin niður og hand­ritin hund­rað prentuð úr trjánum. Á þeim tíma hefur engin lesið hand­ritin nema skap­ar­arnir sjálfir.

Þangað til verða hand­ritin geymd í sér­smíð­uðum stað í nýja borg­ar­bóka­safn­inu í Osló, Deichman Bjørvika, sem opnar á næsta ári. Stað­ur­inn heitir þögla her­bergið eða The Silent room og var hannað af Katie í sam­ein­ingu með arki­tektum bóka­safns­ins.

Kjarninn fékk að slást í för með Katie og föru­neyti hennar þegar her­bergið, nær klárað, var fyrst skoðað í Osló í maí síð­ast­liðnum. Her­bergið er líkt og lít­ill, fal­legur, ávalur tré­kofi inn í miðju stóru björtu bóka­safn­inu. Í her­berg­inu má finna hund­rað hólf sem eru sér­merkt höf­undi hvers hand­rits og árinu sem því var skilað inn.

„Við byggðum Herbergi þagn­ar­innar með trjánum sem við felldum í borg­ar­skóg­inum í Osló. Lyktina af þeim má enn finna í her­berg­inu en and­rúms­loftið var kjarn­inn í hönnun her­berg­is­ins. Við vildum skapa stað fyrir kyrrð og frið­sæld. Stað þar sem gestir bóka­safns­ins geta leyft ímynd­un­ar­afl­inu að teyma hug­ann burt frá bóka­safn­inu til skóg­ar­ins, til trjánna, til hand­rit­anna og hug­leitt mörk tím­ans og leynd­ar­dómanna sem búa þar að baki,“ segir Katie í sam­tali við Kjarnann.

Handrit eftir Sjón kemur út árið 2114

Katie segir að hug­myndin að verk­inu sé í hnot­skurn að bækur séu tré og það tekur tíma að rækta bækur líkt og það tekur tíma að rækta tré. „Hug­myndin sner­ist um tíma, mennskan tíma, tíma handan okkar heima, tíma skóg­ar­ins og tím­ann á eftir okkur,“ segir Katie.

Fimm hand­ritum hefur verið skilað inn, þar á meðal hand­ritið The Scribble Moon eftir hina víð­frægu Margaret Atwood. Auk hennar hefur hinn breski David Mitchell skilað inn hand­riti og hin tyrk­neska Elif Shafak frá Tyrk­landi. Þá skil­aði íslenski rit­höf­und­ur­inn Sjón inn hand­riti árið 2016 en tit­il­inn á hand­rit­inu hans er: Þegar enni mitt strýkst við kjólfald engla eða Nokkuð um fall­turn­inn, rús­sí­ban­ann, snún­ings­boll­ana og önnur til­beiðslu­tæki frá tímum síð-iðn­væð­ing­ar­innar

Sjón sagði í sam­tali við Vísir eftir að hann skil­aði hand­rit­inu inn að hann voni að það eigi eftir að vekja áhuga á Íslenskri bóka­hefð. „Ég vona að það rati til les­enda sem eru áhuga­samir um það hvers konar bók­menntir voru ofnar saman á Íslandi fyrir tæpum hund­rað árum. Alla rit­höf­unda dreymir um að textar þeirra standi tím­ans tönn og auð­vitað er það svo að í dag lesum við enn margt sem skrifað var í upp­hafi síð­ustu aldar og löngu fyrr. Ég reyndi samt að bægja þess­ari hugsun frá mér og skrifa eins og ég geri yfir­leitt, það er, án þess að hugsa um við­tökur ann­arra en þess skugga­sjálfs míns sem er við­mæl­andi minn á meðan sköp­un­inni stendur,“ segir Sjón.

Sjón má ekk­ert gefa upp um verkið og segir tit­il­inn ekk­ert gefa upp um hvort að þetta sé ljóða­bók, rit­gerðir, leik­rit, skáld­saga eða óperulí­brettó.

„En ástæðan fyrir því hvað hann er langur gæti verið sú að mig lang­aði til þess að opna sýn á efni verks­ins. Svo gæti tit­ill­inn líka verið ryk sem ég þyrla upp til að afvega­leiða fólk í spek­úla­sjónum sínum. Ef text­inn lifir af Þyrni­rós­ar­svefn­inn í skúff­unni í borg­ar­bóka­safni Oslóar dæma les­endur 21. ald­ar­innar um hvort er,“ segir Sjón og bætti við að nú taki við það verk­efni að þegja yfir inni­haldi hand­rits­ins það sem eftir er ævinnar.

Katie Peterson, myndlistarkona, fékk hugmyndina að Bókasafni framtíðarinnar þegar hún var teikna trjáhringi í bók fyrir nokkrum árum.
Katie Peterson, mynd­list­ar­kona, fékk hug­mynd­ina að Bóka­safni fram­tíð­ar­innar þegar hún var teikna trjá­hringi í bók fyrir nokkrum árum.

Mun mannkynið lifa af næstu hundrað ár?

Katie segir að hver hund­rað höf­und­anna hafi sinn ólíka stíl, komi frá ólíkum stöðum í heim­inum og hand­ritin því skrifuð á ólíkum tungu­málum. Enginn fær þó að bera þessi hand­verk augum fyrr en árið 2114 og því ljóst að hvorki Katie né höf­und­arnir sjálfir munu lifa nógu lengi til að upp­lifa það.

Þrátt fyrir þessar óvenju­legu kröfu segir Katie að rit­höf­und­arnir sem hún hafi haft sam­band við hafi verið mjög mót­tæki­legur fyrir verk­efn­inu. Hún segir að fyrir rit­höf­unda sé þetta algjört frelsi en hand­ritin eru skrifuð í algerri ein­angrun án aðkomu útgáfu og án við­bragða gagn­rýnenda eða les­enda. „Þetta fyr­ir­komu­lag virkar eflaust ekki fyrir alla en fyrir suma er þetta tæki­færi til að gera eitt­hvað alveg öðru­vísi. Að skilja eftir gjöf fyrir fólkið í fram­tíð­inni,“ segir Katie.

Rauði þráð­ur­inn í Bóka­safni fram­tíð­ar­innar er nokk­urss­konar sam­spil vonar og trausts. „Það kom mér veru­lega á óvart að þegar ég hafði sam­band við höf­und­anna voru fyrstu við­brögð margra að velta upp spurn­ing­unni hvort að mann­kynið muni lifa af næstu hund­rað ár,“ segir Katie en hennar fyrsta hugsun var hvort að skóg­ur­inn myndi lifa þessi hund­rað ár.

Þegar David Mitchell lagði fram sitt hand­rit árið 2016 sem ber tit­il­inn „From Me Flows What You Call Time“, sagði hann að fyrir honum tákn­aði Bókasafn fram­tíð­ar­innar von í von­lausum heimi. „Allt er að segja okkur að við séum á leið til glöt­unar en Bókasafn fram­tíð­ar­innar færir okkur von um að mann­kynið sé seig­ara en við héldum. Að við munum vera hérna, tréin verða hérna og það verða bækur, les­endur og sið­menn­ing.“

Margret Atwood tók í svip­aðan streng þegar hún skil­aði inn fyrsta hand­rit­inu. „Ég er að senda inn hand­rit inn í fram­tíð­ina. Verða ein­hverjar mann­eskjur að bíða til að taka móti því? Verður Noregur? Verður skógur? Verður bóka­safnið? Hversu skrítið er það að hugsa að mín eigin rödd, þá þögnuð í langan tíma, verði end­ur­vakin eftir hund­rað ár. Hvað mun hún segja þegar hendur, sem ekki enn eru til, draga út skúff­una og opna fyrstu blað­síð­una?“

Hang Kang hlaut Man booker verðlaunin fyrir bókina sína The Vegetarian árið 2016.
Hang Kang hlaut Man booker verð­launin fyrir bók­ina sína The Veget­arian árið 2016.

Óvissan í sjálfu sér er áhugaverð

Nýjasta hand­ritið sem hlýtur stað í Herbergi þagn­ar­innar er hand­rit hinna suður-kóresku Han kang. Han hefur hlotið mikið lof fyrir bók­ina The Veget­arian en sú bók hlaut Man Booker-verð­launin árið 2016.

Hang Kang segir í sam­tali við Kjarnann að hún hafi þurft að íhuga það lengi hvort hún væri til­búin að taka þátt í Bóka­safni fram­tíð­ar­innar. Hún segir þó að íhug­unin sjálf hafi verið mjög fal­leg og hluti af ferl­inu. „Ég verð ekki á lífi árið 2014, né neinn sem ég þekki. Ég þurfti að hugsa um fram­tíð mann­kyns­ins, um nátt­úr­una en fyrir mér var þetta marg­þætt ákvörð­unin,“ segir Han Kang.

Fyrir henni er óvissan kjarn­inn í Bóka­safni fram­tíð­ar­innar. „Allt er óvíst og óvissan í sjálfu sér er áhuga­verð.“

Að lokum sagði Han að hún sé ánægð að hafa tekið þátt í verk­efn­inu en handi­ritið hennar ber tit­il­inn „Dear Son, My Beloved“. Hún seg­ist hafa skrifað hand­ritið fyrir fólkið sem von­andi verður að bíða eftir hand­rit­unum þegar bóka­safnið verður opnað í fram­tíð­inni. „Á þess­ari stundu líður mér líkt og mögu­lega sé þetta verk­efni hund­rað ára löng bæn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár