Breyttur veruleiki – Sársaukafull aðlögun framundan?

Staða mála í hag­kerf­inu er sterk um þessar mundir eftir 35 mán­uði í röð þar sem verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði. Upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur breytt veru­leika hag­stjórnar í land­inu.

Mikill upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur breytt íslenska hag­kerf­inu. Áhrif á vöru- og þjón­ustu­jöfnuð hag­kerf­is­ins hafa verið veru­lega jákvæð og er gjald­eyr­is­inn­treymið frá erlendum ferða­mönnum veru­legt og fer stöðugt vax­andi.

Engin atvinnu­grein skapar meiri gjald­eyri fyrir hag­kerfið, og ólíkt því sem var þegar gjald­eyrir streymdi til lands­ins í formi láns­fjár, þá fer gjald­eyr­inn frá ferða­mönn­unum fyrst og síð­ast beint inn í hag­kerfið og verður þar eftir. Í formi launa og fjár­fest­ingar, marg­feld­is­á­hrifa.

Talið er að á þessu ári muni gjald­eyr­is­inn­spýt­ingin frá ferða­mönnum nema í það minnsta 500 millj­örðum króna og að fjöldi ferða­manna fari úr 1,8 millj­ónum í fyrra í 2,3 millj­ónir. Í fyrra var gjald­eyr­is­sköpun grein­ar­innar um 430 millj­arðar, að mati grein­enda, en end­an­legar tölur liggja þó ekki fyrir um það.

Mikil styrking

Í fyrra styrkt­ist gengi krón­unnar um 18,4 pró­sent að með­al­tali gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Evran kostar nú 122 krónur og Banda­ríkja­dalur aðeins minna, eða 114 krónur. Nú í byrjun árs hefur krónan veikst lítið eitt og nam veik­ingin í dag 1,08 pró­sent gagn­vart evru í dag og 0,47 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal.

Gera má ráð fyrir að kjara­deilur og verk­fall sjó­manna hafa nokkur áhrif á gjald­eyr­is­inn­streymi til lands­ins þessi miss­erin, enda sjáv­ar­út­veg­ur­inn í hálf­gerðu lama­sessi þessi miss­erin vegna verk­falls­ins. Sjómenn hafa slitið við­ræðum en lík­legt má telja að þær hefj­ist að nýju áður en langt um líður.

Mesta styrking í áratugi

Í Hagsjá Lands­bank­ans segir styrk­ing krón­unnar að und­an­förnu sé sú mesta í ára­tugi, en á síð­ustu fjórum árum hefur gengi krón­unnar styrkst. „Á ára­bil­inu 1961 til 1990 hækk­aði verð erlendra gjald­miðla gagn­vart krónu um 20,2% að með­al­tali á hverju ári. Á tíma­bil­inu 1961 til 1970 var þessi hækkun að með­al­tali 8,7% og skar það sig tölu­vert frá ann­ars vegar tíma­bil­inu 1971-1980 og hins vegar 1981-1990. Frá 1991 til dags­ins í dag hefur verð­hækkun erlendra gjald­miðla gagn­vart krónu verið að með­al­tali 1,7%. Hún var 1% frá 1991 til 2000 en 6,7% frá 2001 til 2010. Frá árinu 2011 hefur verðið lækkað um að með­al­tali 2,6% á ári,“ segir í Hag­sjánni.

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, hefur sjálfur bent á að mesta hættan sem hag­kerfi Íslands stendur frammi fyrir sé vegna ofhitn­unar. Þar er geng­is­styrkn­ing krón­unnar sér­stak­lega áhrifa­mik­ill þáttur. Í grein Más frá 30. des­em­ber síð­ast­liðnum, sem birt er á vef Seðla­banka Íslands, segir hann að hag­kerfið sé mun betur statt nú en oft áður til að takast á nið­ur­sveiflur. „Við höfum áður gengið í gegnum hátoppa atvinnu og kaup­máttar sam­fara vax­andi spennu í þjóð­ar­bú­skapnum. Það hefur oftar en ekki endað illa þar sem marg­vís­legt ójafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum magn­að­ist að því marki að snörp aðlögun varð ekki umflúin. Nú bregður hins vegar svo við að jafn­vægið í þjóð­ar­bú­skapnum er þrátt fyrir allt mun betra en oft áður. Mæld verð­bólga er undir verð­bólgu­mark­miði en vænt­ingar fólks og fyr­ir­tækja um verð­bólgu fram­tíð­ar­innar eru við það. Sparn­aður heim­ila og þjóða­bús er mun meiri nú en oft­ast áður á þessu stigi hag­sveifl­unnar og meðal ann­ars af þeim sökum er veru­legur afgangur á við­skiptum okkar við útlönd,“ sagði Már meðal ann­ars.

Hann segir þó að vissu­lega geti of mikil styrk­ing krón­unnar valdið vand­ræðum. „Hvað með mikla styrk­ingu krón­unnar? Felst ekki mesta áhættan í henni? Til að svara þeirri spurn­ingu þarf að glöggva sig á ástæðum hærra gengis. Augljóst virð­ist að hún sé fyrst og fremst afleið­ing þeirrar þró­unar sem ég hef hér gert að umtals­efni, sér­stak­lega á seinni hluta árs­ins. Þannig varð á þriðja árs­fjórð­ungi met við­skipta­af­gangur sem á fyrst og fremst rætur að rekja til afgangs á þjón­ustu­við­skiptum. Á sama tíma var fjár­magnsinn­streymi sára­lítið. Á heild­ina litið hafa aðgerðir Seðla­bank­ans á árinu unnið á móti styrk­ingu geng­is­ins. Sérstök bindi­skylda á fjár­magnsinn­streymi inn á skulda­bréfa­markað og í inn­stæður hefur nán­ast stöðvað vaxta­mun­ar­við­skipti. Þá hafði bank­inn síð­ast­lið­inn þriðju­dag keypt gjald­eyri á árinu fyrir 385 ma.kr. sem er rúm­lega 40% meira en á metár­inu 2015. Krónan getur þó vissu­lega ofrisið og það styður þá var­færni sem felst í miklum gjald­eyr­is­kaupum þrátt fyrir að ekki sé með óyggj­andi hætti hægt að full­yrða að gengið sé komið mikið yfir jafn­vægi miðað við ríkj­andi aðstæður,“ sagði Már.

Annar veruleiki

Óhætt er að segja ekki séu allir sam­mála seðla­banka­stjóra í því hvernig eigi að haga pen­inga­stefn­unni í þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Valdimar Ármann, fram­kvæmda­stjóri sjóða hjá GAMMA, sagði í við­tali við Mark­að­inn á dög­unum að Seðla­bank­inn væri með vext­ina alltof háa, en meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent á meðan verð­bólgan er 1,9 pró­sent. Hann sagði háa vexti ekki þjóna neinum til­gangi við þessar aðstæður, og þá væri aug­ljóst að vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni hefði breytt hag­kerf­inu. Styrking krón­unnar væri óhjá­kvæmi­leg. „Núna er hag­vöxtur drif­inn áfram af nýrri og ört vax­andi gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein auk þess sem þjóð­hags­legur sparn­aður heldur áfram að aukast umtals­vert. Það er því erfitt að sjá hvaða þörf er á því að halda vöxtum jafn háum og raun ber vitni enda virð­ist þessi breytta sam­setn­ing hag­kerf­is­ins þýða að það er í jafn­vægi við mun hærra gengi krón­unnar en við höfum áður þekkt í íslenskri hag­sögu,“ sagði Valdimar.

Útflutningshliðin viðkvæm

En hvar liggur geng­is­stöð­ug­leik­inn? Það er ekki gott að segja. Fari svo að Seðla­banki Íslands beiti sér ekki eins mikið á gjald­eyr­is­mark­aði á þessu ári eins og hann gerði í fyrra þá gæti gengi krón­unnar styrkst mikið og hratt. Banda­ríkja­dalur myndi þá kosta innan við 100 krónur og evran sömu­leiðis. Vandi er um þetta að spá, enda eru enn í gildi fjár­magns­höft á fjár­magns­hreyfn­ingar til og frá land­inu. Hið eig­in­lega mark­aðs­gengi á krón­unni liggur því ekki fyrir.

Útflutn­ings­fyr­ir­tæki hafa mik­illa hags­muna að gæta hvað þessa þróun varðar, og þar með hag­kerfið allt. Það gæti orðið sárs­auka­full aðlögun fyrir mörg fyr­ir­tæki ef að gengi krón­unnar mun styrkj­ast stöðugt sam­hliða miklu vexti í ferða­þjón­ustu. Til lengdar litið er einnig tölu­verð hætta á því að Ísland verði of dýrt fyrir marga erlenda ferða­menn. Með til­heyr­andi efna­hags­dýfu hér á landi.

Grunn­ur­inn til að takast á við nið­ur­sveiflu er þó annar og betri nú en oft áður, ekki síst vegna þess að Íslend­ingar eiga nú meiri eignir erlendis en þeir skulda. Þá hefur staða rík­is­sjóðs einnig gjör­breyst til hins betra á skömmum tíma, ekki síst vegna upp­gjörs slita­búa föllnu bank­anna. Verð­bólga hefur einnig hald­ist í skefjum og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði í 35 mán­uði í röð, og lagt grunn­inn að kaup­mátt­ar­aukn­ingu hjá almenn­ingi. Þá hefur fast­eigna­verð hækkað hratt en í fyrra var hækk­unin um 15 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár