Hvað er til ráða á fasteignamarkaði?

Boðaðar hafa verið aðgerðir til að vinna gegn spennu á fast­eigna­mark­aði og bólu­myndun. En hvaða aðgerðir koma til greina?

Horft yfir Skuggahverfið.
Horft yfir Skugga­hverfið. Mynd: Birgir Þór

Tölu­verðrar spennu gætir á fast­eigna­mark­aði þessi miss­erin og hefur fast­eigna­verð hækkað um 18,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Margt á telja til, þegar skýra á þessar miklu hækk­anir. Líklega er þó vega­mesta ástæðan sú að mikil vöntun er á íbúðum á markað á tíma þar sem eft­ir­spurn hefur auk­ist mikið. Mikil kaup­mátt­ar­aukn­ing hefur einnig verið á þessu tíma­bili, þar sem verð hefur hækkað.

Þjóðskra, sem heldur utan um vísi­tölu íbúða­verðs, telur að það vanti um átta þús­und íbúðir á markað og Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu telja að það muni taka um 3 til 4 ár fyrir mark­að­inn að ná jafn­vægi gangi öll bygg­ing­ar­á­form eftir sem að er stefnt.

Bæði Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, og Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, gerðu stöðu mála á fast­eigna­mark­aði umtals­efni í ræðum sínum á árs­fundi Seðla­banka Íslands.

Bjarni gagn­rýndi meðal ann­ars Reykja­vík­ur­borg fyrir að hafa ekki staðið sig í upp­bygg­ingu, meðal ann­ars með því að útvega fleiri lóðir til upp­bygg­ingar. Sagði hann borg­ina ekki hafa staðið sig eins vel og nágranna­sveit­ar­fé­lögin, og tók Kópa­vogsbæ sem dæmi.

Már sagði hættu­merki aug­ljós á fast­eigna­mark­aði, og sagði að það kæmi greina að virkja þjóð­hags­var­úð­ar­tæki til að vinna gegna bólu­myndun og erf­ið­leikum á mark­aðnum.

En hvað er hægt að gera til að sporna gegn hækkun fast­eigna­verðs og þeirri spennu sem ein­kennir mark­að­inn? Nokkur atriði hafa verið nefnd.

1. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) nefndi það í til­kynn­ingu sendi­nefndar sjóðs­ins á dög­unum að til greina ætti að koma að banna líf­eyr­is­sjóð­unum að lána til fast­eigna­kaupa. Var sú mikla spenna sem væri á fast­eigna sögð vera meg­in­á­stæðan fyrir slíkri aðgerð. Á móti má nefna að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa gert mun meiri veð­kröfur en bank­arnir gera fyrir sínum lánum, og lána flestir ekki meira en sem nemur 75 pró­sent af kaup­verði. Þeir bjóða sjóð­fé­lögum tölu­vert betri vexti á hús­næð­is­lánum, heldur en bank­arnir gera.

2. Hraða upp­bygg­ingu íbúða enn meira. Þrátt fyrir að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið byggt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nú, þá þarf að byggja meira. Nær algjör lág­deyða var á mark­aðnum í þrjú ár eftir hrunið og því mynd­að­ist mikil bygg­ing­ar­þörf, þegar efna­hag­ur­inn tók við sér. Sam­stillt átak stétt­ar­fé­laga, sveit­ar­fé­laga, rík­is­ins og einka­að­ila hefur verið nefnt sem mögu­leiki í þessum efnum. Stjórn­völd hafa boðað aðgerðir og verða þeir kynntar á næstu vikum.

3. Aðrar aðgerðir sem nefndar hafa verið er að tak­marka enn meira lán til fast­eigna­kaupa og vinna þannig gegn fast­eigna­verðs­hækkun. Ekki er þó víst að þetta hafi þau áhrif þar sem spennan á mark­aðnum er að miklu leyti vegna ann­arra atriða, eins og alltof lít­ils fram­boðs á eignum. Meiri tak­mark­anir á lánum myndu þá hugs­an­lega auka enn á þrýst­ing á leigu­mark­aði, en leigu­verð hefur einnig farið hækk­andi.

4. Enn meiri tak­mark­anir á útleigu íbúða til ferða­manna hafa einnig verið nefndar. Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, nefndi þann mögu­leika að banna útleigu íbúa til ferða­manna, og reyna þannig að fá þær íbúðir út á markað til fólks í var­an­lega búsetu. Talið er að allt að þrjú þús­und íbúðir séu nýttar til útleigu fyrir ferða­menn, ekki síst í gegnum Airbnb. Stærstur hluti þeirra er mið­svæðis í Reykja­vík, en útleiga vítt og breitt um landið hefur vaxið mikið, sam­hliða hinum mikla vexti í ferða­þjón­ust­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár