Spá lækkun fasteignaverðs næstu árin

Í þjóð­hags­spá grein­ing­ar­deildar Arion banka er gert ráð fyrir minni hag­vexti en áður. Stoð­irnar í hag­kerf­inu eru þó áfram sterkar.

Fast­eigna­verð mun lækka að raun­virði á næstu árum eftir langt tíma­bil sem ein­kennst hefur af miklum hækk­unum. Nafnverð mun standa í stað eða hækka lítið eitt, en að teknu til­liti til verð­bólgu mun verð á fast­eignum lækka.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri þjóð­hags­spá grein­ing­ar­deildar Arion banka en raun­verð á fast­eignum mun lækka um á bil­inu 2 til 3 pró­sent fram til loka árs­ins 2021, sam­kvæmt spánni.

Verulega hefur dregið úr hækk­unum á hús­næði að und­an­förnu, en árleg hækkun mæld­ist mest 23,5 pró­sent á vor­mán­uðum í fyrra.

„Eftir því sem fram­boð af nýjum eignum eykst hægir á verð­hækk­unum. Ójafn­vægið sem skap­ast hefur milli hús­næð­is­verðs og launa verður nán­ast horfið undir lok spá­tím­ans, þar sem laun hækka tals­vert umfram hús­næði,“ segir í spánni. 

Því er einnig spá að verð­bólga auk­ist hratt á næst­unni og farið upp í 4,5 pró­sent á næsta ári. Og sam­kvæmt spánni er gert ráð fyrir að meg­in­vextir Seðl­banka Íslands muni fara hækk­andi á næst­unni og fari yfir 5 pró­sent á næsta ári.

Gangi spá grein­ing­ar­deild­ar­innar eftir mun hag­vöxtur á næsta ári vera 1,3 pró­sent á næsta ári, 3 pró­sent árið 2020 og 1,9 pró­sent árið 2021. Yfir­skrift kynn­ingar á efn­hags­horfum til næstu þriggja ára er Sett í lága drifið, sem er til marks um að nú fari að hægja á hjólum efna­hags­lífs­ins eftir mikið upp­gangs­tíma­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár