Norsk hagsmunasamtök telja best að Alþingi fresti ákvörðun um þriðja orkupakkann

Nei til EU hafa sent íslenskum fjöl­miðlum bréf þar sem fjallað er um þriðja orku­pakk­ann. Þau telja afstöðu og fram­göngu utan­rík­is­ráð­herra, Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, mjög vafa­sama.

Norsku hags­muna­sam­tökin Nei til EU hafa sent fjöl­miðlum bréf þar sem fjallað er um þriðja orku­pakk­ann. Í því segir meðal ann­ars að þau hafi fylgst vel með beina streym­inu frá Alþingi, upp­full af áhuga, og að frá­bært væri ef það tæk­ist að fá ákvörðun í mál­inu frestað. Undir bréfið skrifa þau Morten Harper, rann­sóknar- og fræðslu­stjóri Nei til EU, og Kathrine Kleveland, for­maður Nei til EU.

[links]Miklar umræður hafa skap­ast í kringum inn­leið­ingu þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins, sem lýtur að sam­eig­in­legum orku­mark­aði innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. Þingmenn Mið­flokks­ins hafa talað í yfir 100 klukku­stundir á Alþingi um málið og hefur Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, skorað á þing­menn að hætta ­mál­þófi um málið. Hann til­kynnti jafn­framt í fyrra­dag að starfs­á­ætl­un ­þings­ins hefði verið felld úr gild­i.

Á vef­síðu fyrr­nefndra sam­taka kemur fram að þau séu þverpóli­tísk sam­tök og á móti ras­isma. Þau berj­ist fyrir norsku full­veldi og sjálf­stæði frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Telja framgöngu Guðlaugs Þórs vafasama

Þá er afstaða og fram­ganga utan­rík­is­ráð­herra, Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, talin vera mjög vafasöm. „Það sæmir ekki utan­rík­is­ráð­herra að tala um stóra flokka og sam­tök í vina­landi á þennan hátt. Mið­flokk­ur­inn er nú sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum þriðji stærsti flokk­ur­inn í Noregi og er hann sá flokkur sem náð hefur hvað mestu fylgi á und­an­förnum árum.“

Þau segj­ast vita að norska rík­is­stjórnin hafi beitt íslensku rík­is­stjórn­ina miklum þrýst­ingi. Utan­rík­is­ráð­herra Noregs, Ine Marie Eriksen Søreide, og for­sæt­is­ráð­herra Noregs, Erna Solberg, hafi báðar gengið hart fram í mál­inu. Þau í Nei til EU spyrja hvort mál­flutn­ingur utan­rík­is­ráð­herra Íslands end­ur­spegli þrýst­ing­inn frá norsku rík­is­stjórn­inni.

„Norski Hægri flokk­ur­inn er best þekktur fyrir ein­lægan áhuga sinn á ESB-aðild. Flokks­menn hans eiga enga þá ósk heit­ari en að að tengja Noreg, eins mikið og hægt er, við ESB – sem með inn­leið­ingu þriðja orku­pakka ESB, inn­limar Noreg (og Ísland) í orku­sam­band ESB. Með því að færa full­veldi Noregs í málum eins og fjár­mála­eft­ir­liti og núna orku­málum til ESB, von­ast Hægri flokk­ur­inn sjálf­sagt til að gera EES-sam­komu­lagið eins líkt ESB-aðild og mögu­legt er. Er þetta sú þróun sem utan­rík­is­ráð­herra Íslands styður?“ er spurt.

Segja að ekki sé búið að samþykkja eða staðfesta norsku fyrirvarana hjá ESB

Þau telja að það að hafna þriðja orku­pakka ESB sé ekki það sama og að segja upp EES-samn­ingnum. Þvert á móti sé það tæki­færi til að nota það svig­rúm til samn­inga sem sam­rým­ist ákvæðum EES-samn­ings­ins, sem sé það sem öll umræðan snú­ist um. Réttur til að setja fyr­ir­vara sé lög­skip­aður réttur EFTA-land­anna.

„Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, heldur því fram, að ekk­ert bendi til þess að norsku fyr­ir­var­arnir stand­ist ekki. Það er alrangt. Við höfum áður bent á að þegar hefur meiri hluti fyr­ir­var­anna verið afskrif­aðir og þeir dæmdir ónot­hæfir og hinir eru í algjörri óvissu og upp­námi,“ segir í bréf­inu.

Jafn­framt segir að ekki sé búið að sam­þykkja eða stað­festa, á nokkurn hátt, einn ein­asta af hinum norsku fyr­ir­vörum hjá ESB.

Gæti þýtt þörf fyrir endurskoðun á norskum réttarheimildum

Nýverið hafi þau fengið að vita að ESA hafi hafið máls­sókn gegn Noregi vegna þeirrar aðferðar sem Noregur beitir við úthlutun vatns­orku­leyfa. ESA hafi þegar hafið mál­sókn gegn Íslandi vegna þessa.

„Hér er form­legi laga­grund­völlur fyrir þjón­ustutil­skipun ESB. Þetta gæti þýtt þörf fyrir end­ur­skoðun á norskum rétt­ar­heim­ildum, sem myndu tryggja opin­bert eign­ar­hald á auð­lind­inni. Þetta þýðir einnig að fyr­ir­varar 1 og 2, um þjóð­leg yfir­ráð og opin­bert eign­ar­hald, er brot á ákvæðum EES-samn­ings­ins.“

Deilur um raforkutengingar

Þau fjalla áfram um Guð­laugur Þór í bréf­inu. „Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, vísar einnig í mál­flutn­ingi sínum til þess að norsk stjórn­völd hafi bæði hvatt til og sam­þykkt utan­rík­is­við­skipti í orku­málum. Það er í sjálfu sér lauk­rétt. Um er að ræða sæstrengi sem samið var um fyrir til­komu þriðja orku­pakka ESB og fyrir til­komu ACER.“

Þá er bent á að nú séu uppi miklar deilur um það hvort æski­legt sé fyrir Noreg að stofna til nýrra raf­orku­teng­inga. Í raun standi deilan eins og kunn­ugt sé um NorthConnect-streng­inn frá Noregi til Skotlands. Þetta mál hafi valdið hörðum deilum milli norsku stjórn­mála­flokk­anna en einnig meðal sam­taka atvinnu­lífs­ins. Helstu rök Nei til EU gegn þessum sæstreng séu þau að inn­leið­ing þriðja orku­pakka ESB í Noregi og stofnun ACER skapi veru­lega óvissu um hvort ákvörðun um nýjan streng verði í Noregi tekin á þjóð­rétt­an­legum for­sendum, af full­valda ríki, eða ekki. „Þessa þjóð­rétt­ar­legu óvissu viljum við ekki varpa yfir norskt sam­fé­lag. Þess vegna er eina trygga leiðin að hafna inn­leið­ingu þriðja orku­pakka ESB í norsk lög,“ segir að lokum í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár