Píratar segja dómaramáli alls ekki lokið

Full­trúar Pírata í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vilja að þáttur dóms­mála­ráð­herra verði rann­sak­aður, í því ferli sem fór af stað þegar dóm­arar voru skip­aðir í Lands­rétt.

Jón Þór Ólafsson
Jón Þór Ólafsson Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Þór Ólafsson og Birgitta Jóns­dóttir full­trúar Pírata í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vilja að nefndin rann­saki þátt Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í því ferli þegar hún gerði til­lögu að 15 dóm­urum við Lands­rétt, sem Alþingi síðan sam­þykkti.

Í sam­tali við Frétta­blaðið í dag segir Jón Þór að mál­inu sé alls ekki lokið, og það sé margt í því sem þurfi að rann­saka betur og full­kanna hvort ráð­herra hafi farið að lögum.

Ástráður Har­alds­son, sem var einn umsækj­enda um starf dóm­ara við Lands­rétt, hefur stefnt íslenska rík­inu vegna skip­unar á dóm­urum við Lands­rétt, og hefur lög­maður hans kraf­ist flýti­með­ferðar. Eins og Kjarninn greindi frá, þá var Ástráður á meðal þeirra 15 sem sér­stök nefnd mat hæf­asta meðal umsækj­enda, en dóms­mála­ráð­herra gerði fjórar breyt­ingar á lista nefnd­ar­innar.

Í stefnu Ástráðs á hendur íslenska rík­inu er gerð miska­bótakrafa upp á eina og hálfa milljón króna. Þá er einnig gerð sú krafa að ákvörðun dóms­mála­ráð­herra verði gerð ógild, og bóta­skylda við­ur­kennd.

Dóm­ar­arnir 15 sem voru skip­aðir eru Aðal­steinn E. Jónasson, Arn­fríður Ein­ars­dóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björg­vins­son, Hervör Þor­valds­dóttir, Ing­veldur Ein­ars­dóttir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, Ragn­heiður Braga­dóttir, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir, Sigurður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þorgeir Ingi Njálsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár