Hvalur hf. kaupir hlut Marel fyrir um milljarð

Félagið Hvalur hf, sem er óbeint að stórum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar, hefur fest kaup á hlut í Marel fyrir um millj­arð króna. Hluta­bréfa­verð Marels hækk­aði um tæp 15 pró­sent í fyrra og nemur mark­aðsvirði þess um 268 millj­örðum króna.

Kristján Loftsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Hvals hf.
Kristján Loftsson, for­stjóri og einn stærsti eig­andi Hvals hf. Mynd: Flickr

Félagið Hvalur hf. hefur fest kaup á hlut í Marel fyrir um millj­arð króna en eign­ar­hlutur Hvals í Marel nemur þá tæp­lega 0,4 pró­sentum. Stærsti eig­andi Hvals er Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus en það er að stórum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar, for­stjóri Hvals. Gengið var frá kaup­unum þriðju­dag­inn 15. jan­úar síð­ast­lið­inn, sam­tals 2,55 millj­ónir hluta á geng­inu 390. Frá þessu er greint í Mark­að­inum í dag.

Hvalur hagnaðist um tæplega 1,5 milljarða á síðasta ári

[links]Hvalur er eigandi Vogunar en það félag seldi, ásamt Fiskveiðahlutafélaginu Venus, samanlagt 34 prósenta hlut sinn í HB Granda í apríl í fyrra fyrir samtals 21,7 milljarða króna. Vogun er meðal annars stærsti einstaki eigandi Origo með 10,8 prósenta hlut og eins Hampiðjunnar með tæplega 44 prósenta hlut. Þá keypti félagið um 0,4 prósenta hlut í hlutafjárútboði Arion banka á síðasta ári.

Stærsti hluthafi Vogunar er Venus með rúmlega 30 prósenta hlut en það félag er í eigu Kristjáns og Birnu Loftsdóttur. Kristján Loftsson er stjórnarformaður HB Granda og forstjóri Hvals, en hann var tekjuhæsti einstaklingurinn í sjávarútvegi árið 2018, samkvæmt Tekjublaði DV í júní í fyrra. Mánaðarlaun Kristjáns námu 4,7 milljónum í júní í fyrra.

Hvalur hf. rekur hval­stöð­ina í Hval­firði, gerir út hval­veiði­skip og vinnur afurð­irn­ar. Hvalur átti eignir upp á 19,6 millj­arða í lok sept­em­ber 2017 en skuld­irnar námu á sama tíma 2,3 millj­örðum, sam­kvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins. Eigið fé félags­ins var því um 17,3 millj­arðar. Hvalur hagn­að­ist um tæp­lega 1,5 millj­arða á síð­asta rekstr­ar­ári og dróst hagn­að­ur­inn saman um ríf­lega 515 millj­ónir frá fyrra ári.

Hlutabréfaverð Marels hækkaði um 15 prósent í fyrra

Stærsti hlut­hafi Marels er Eyrir Invest með tæp­lega 28 pró­senta hlut. Þá eiga íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sam­an­lagt um 38 pró­senta hlut. Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að sjóður í stýr­ingu American Funds, dótt­ur­fé­lags banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Capital Group, hafi verið að bæta við sig í Marel að und­an­förnu og er orð­inn níundi stærsti hlut­haf­inn með tveggja pró­senta hlut.

Hluta­bréfa­verð Marels hækk­aði um tæp 15 pró­sent í fyrra og miðað við núver­andi gengi bréfa félags­ins, sem er 393 krónur á hlut, nemur mark­aðsvirði þess um 268 millj­örðum króna. Samkvæmt Mark­að­inum vinna stjórn­endur Marels vinna nú að því að skrá félagið tví­hliða í erlenda kaup­höll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár