Dómsmálaráðuneytið leiðréttir tölur um nauðungarsölur

Á tíu ára tíma­bili, á árunum 2008 til 2017, voru rúm­lega 5.800 fast­eignir ein­stak­linga seldar nauð­ung­ar­sölu hér á landi.

Dóms­mála­ráð­herra hefur nú leið­rétt umtals­verðar skekkjur í svari sínu um nauð­ung­ar­sölur hér á landi á síð­ustu 18 árum. Samkvæmt upp­færðum tölum voru 5.816 fast­eignir ein­stak­linga seldar nauð­ung­ar­sölu á árunum 2008 til 2017 sem eru mun fleiri fast­eignir en kom fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi í júní síð­ast­liðnum en mun færri en í svari hans við fyr­ir­spurn í ágúst 2018.

Ónákvæm skráning í kerfi leiddi til skekkju

[links] Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um nauð­ung­ar­söl­ur, fjár­nám og gjald­þrot hjá ein­stak­lingum árið 2018, sem birt var í júní síð­ast­liðnum kom fram að í heild­ina vor­u 2.704 nauð­ung­ar­söl­ur hjá ein­stak­lingum á tíma­bil­inu 2008 til 2017.

Þær tölur voru á skjön við þær tölur sem birtar voru í svari dóms­mála­ráð­herra við sam­bæri­legri fyr­ir­spurn þann 15. ágúst 2018 en í því svari kom fram að á sama tíma­bili voru 8846 nauð­ung­ar­söl­ur hjá ein­stak­ling­um.

Kjarn­inn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið um mis­ræmið í fjölda nauð­ung­ar­sala í svörum dóms­mála­ráð­herra og fékk þau svör að ráðu­neytið hefði mis­ræmið til skoð­unar.

Ráðu­neytið hefur nú sent Alþingi end­ur­skoð­aður tölur og skýr­ingar á því í hverju mis­ræmið sé fólgið. Í bréf­inu til þings­ins segir að við nán­ari athugun á gögnum sem aflað var frá Þjóðskrá Íslands kom í ljós að skekkja er í svör­unum sem birt voru á vef Alþingis.

Fyr­ir­spurn Ólafs frá því í júní sneri ein­göngu að upp­lýs­ingum um ein­stak­linga en ekki lög­að­ila en í svari ráð­herra var ekki nægi­lega greint á milli ein­stak­linga og lög­að­ila þar sem skrán­ing í starfa­kerfin var óná­kvæm og örð­ugt reynd­ist að ná fram upp­lýs­ingum úr eldri starfa­kerfum, að því er fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins.[adspot]

Jafn­framt kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins að svar ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs í ágúst í fyrra hafi jafn­framt byggt á sömu skekkju og greint var frá hér að ofan.

Rúmlega 10 þúsund nauðungarsölur á tíu árum

Ráðu­neytið hefur nú upp­fært svar sitt við fyr­ir­spurn Ólafs en þar kemur fram í raun hafi 5.816 fast­eignir ein­stak­linga verið seldar nauð­ung­ar­sölu á árunum 2008 til 2017, sem er um 3.000 fleiri fast­eignir en kom fram í svari ráð­herra í júní en um 3.000 færri en kom fram í svari ráð­herra í ágúst í fyrra.

Í upp­færðu töl­unum má sjá að fjöldi nauð­ung­ar­sala náði hámarki árið 2013 en þá voru seldar 1.085 fast­eignir en þeim hefur síðan farið fækk­andi á síð­ustu árum og í fyrra voru alls 75 fast­eignir ein­stak­linga seldar nauð­ung­ar­sölu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins er greint á milli nauð­ung­ar­sölu á fast­eignum í eigu ein­stak­linga, lög­að­ila og blandað þar sem gerð­ar­þolar eru fleiri en einn og að minnsta kosti einn þeirra er ein­stak­lingur. Í svar­inu kemur jafn­framt fram að um er að ræða fast­eignir sem seldar voru loka­sölu og þar sem afsal fast­eignar hefur verið gefið út. Tölurnar end­ur­spegla því ekki fjölda nauð­ung­ar­sölu­beiðna eða fjölda aug­lýs­inga um sölu á nauð­ung­ar­upp­boði sem sýslu­menn höfðu til með­ferðar.

Sam­an­lagt voru 10.169 fast­eignir í eigu ein­stak­linga, lög­að­ila og blandað seldar nauð­ung­ar­sölu á árunum 2008 til 2017 en alls 13.345 fast­eignir frá árinu 2000 til 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár