Misvísandi tölur um nauðungarsölur

Níu þing­menn hafa beðið dóms­mála­ráð­herra um skýrslu sem varpar ljósi á fram­kvæmd sýslu­manns­emb­ætt­anna á lögum um aðför og nauð­ung­ar­sölu frá efna­hags­hrun­inu 2008 í kjöl­far fjölda ábend­inga um mögu­lega mis­bresti í þeirri fram­kvæmd

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, var einn þeirra þingmanna sem óskuðu eftir skýrslunni.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, var einn þeirra þing­manna sem ósk­uðu eftir skýrsl­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Níu þing­menn hafa óskað eftir skýrslu frá dóms­mála­ráð­herra um fram­kvæmd emb­ætta sýslu­manna á lögum um aðför og lögum um nauð­ung­ar­sölu frá efna­hags­hrun­inu árið 2008. Beiðni um skýrsl­una kemur í kjöl­far þeirra fjöl­mörgu ábend­inga sem komið hafa fram á und­an­förnum árum um mögu­lega mis­bresti í þeirri fram­kvæmd.

Þing­menn­irnir telja jafn­framt að með því að varpa ljósi á hvort vanda­mál sé til staðar við fram­kvæmd­ina og ef svo er að hefja vinnu við að leysa þau þá geti það verið liður í end­ur­reisn trausts á stjórn­völdum og fjár­mála­kerf­inu.

Varða mjög umfangsmikla og mikilvæga hagsmuni fólks

Í grein­ar­gerð­inni segir að í hlut­verki sýslu­manna felist mikil ábyrgð enda fara þeir með mikið vald sem snýr að hinum almenna borg­ara. Meðal verk­efna sýslu­manna er að ann­ast fram­kvæmd fulln­ustu­gerðar sam­kvæmt lögum um aðför og lögum nauð­ung­ar­sölu. Í grein­ar­gerð­inni segir að þessi lög varði mjög umfangs­mikla og mik­il­væga hags­muni fólks, enda er þeim einna helst beitt þegar farið er fram á upp­boð íbúð­ar­hús­næðis ein­stak­linga og fjöl­skyldna vegna van­skila veð­skulda.

„Ljóst er að frá íslenska efna­hags­hrun­inu 2008 hefur þessum úrræðum lag­anna verið beitt gegn fjölda Íslend­inga og hafa margir þurft að þola það að fram­kvæmd sé nauð­ung­ar­sala á íbúð­ar­hús­næði þeirra. Í kjöl­far efna­hags­hruns­ins hefur traust almenn­ings á stjórn­völdum og fjár­mála­kerf­inu dalað og má með nokk­urri vissu álykta að ein helsta ástæðan fyrir því sé fram­ganga lána­stofn­ana og stjórn­valda, þ.m.t. sýslu­manns­emb­ætta, í garð almenn­ings,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Því telja þing­menn­irnir að það sé nauð­syn­legt skref í end­ur­reisn trausts á stjórn­völdum og fjár­mála­kerf­inu að varpa ljósi á raun­veru­lega fram­kvæmd fulln­ustu­gerðar, og hvort og hún hafi verið í fullu sam­ræmi við gild­andi lög og reglur. 

Nauðsynlegt skref í endurreisn traust á stjórnvöldum

Dóms­mála­ráð­herra hefur tíu vikur til að vinna að skýrsl­unni en í beiðn­inni er meðal ann­ars óskað eftir því að fjallað verði um verk­lag við frum­at­hugun beiðni um fjár­nám og nauð­ung­ar­sölu og verk­lag við með­ferð beiðn­innar. Auk þess er óskað eftir því að fjallað verði um hverjir mögu­leikar gerð­ar­þola eru þegar þeir leita rétt síns áður en með­ferð hefst. Til við­bótar er óskað eftir því að fjallað sé um hver séu úrræði gerð­ar­þola til að leita réttar síns ef á honum verið brotið við fram­kvæmd fulln­ustu­gerðar.

Sex þing­menn Pírata, Jón Þór Ólafsson, Björn Leví Gunn­ars­son, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Smári McCarthy og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, ósk­uðu eftir skýrsl­unni. Ásamt Ingu Sæland og Guðmundi Inga Krist­ins­syni, þing­mönnum Flokks fólks­ins, og Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, segir í sam­tali við Kjarnann að beiðnin sé lögð fram í kjöl­far fjöl­marga ábend­inga frá Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna um meinta mis­bresti í máls­með­ferð sýslu­manns. „Því óskuðum við eftir því að fá heild­ræna mynd af því hvernig sýslu­maður hefur raun­veru­lega verið að sinna fram­kvæmdum á lögum um fulln­ustu­að­gerðir og nauð­ingaar­sölur frá hruni.“

Hann segir jafn­framt að með skýrsl­una í hönd­unum sé hægt að skoða hvað sé hægt að gera í fram­hald­inu. Hann segir að mögu­lega verði í kjöl­farið óskað eftir stjórn­sýslu­út­tekt rík­is­end­ur­skoð­enda.

Gífurlegur munur á tölum um nauðungarsölur

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna voru stofnuð 15. jan­úar 2009 í kjöl­far efna­hags­hruns­ins. Samtökin eru óháð hags­muna­sam­tök á neyt­enda­sviði, til varnar og hags­bóta fyrir heim­ilin í land­inu. Í jan­úar 2018 skor­uðu Hags­muna­sam­tök heim­il­anna á Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, að standa að gerð rann­sókn­ar­skýrslu á þeim ákvörð­unum sem voru teknar og þeim aðgerðum sem farið var í gagn­vart heim­ilum lands­ins eftir hrun. Meðal þess sem sam­tökin bentu á að rann­saka þyrfti var máls­með­ferð við nauð­ung­ar­sölur og aðfarir en á árunum eftir hrunið jókst nauð­ung­ar­sala hjá ein­stak­lingum og náði hámarki árið 2013.

Ólíkar tölur fást þó um hversu margir nauð­ung­ar­sölur hafa verið fram­kvæmdar frá árinu 2008. Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar þing­manns, um nauð­ung­ar­sölur, fjár­nám og gjald­þrot hjá ein­stak­lingum árið 2018, sem birt var á vef Alþingis 31. maí síð­ast­lið­inn, segir að í heildin voru 2.704 nauð­ung­ar­sölur hjá ein­stak­lingum á tíma­bil­inu 2008 til 2017. Í svari dóms­mála­ráð­herra við sam­bæri­legri fyr­ir­spurn þann 15. ágúst 2018 kemur hins vegar fram að á sama tíma­bili voru 8846 nauð­ung­ar­sölur hjá ein­stak­lingum. Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið um mis­ræmið í fjölda nauð­ung­ar­sala í svörum dóms­mála­ráð­herra en ekki hefur enn borist svar.

Heimilum landsins fórnað á altari fjármálafyrirtækjanna

Í kjöl­far svar dóms­mála­ráð­herra í ágúst síð­ast­liðnum birtu Hags­muna­sam­tök heim­il­anna frétta­til­kynn­ingu þar sem sagði að þær upp­lýs­ingar sem fram komu í svar ráð­herra stað­festi þann mál­flutn­ings sam­tak­anna að „heim­ilum lands­ins hafi verið fórnað á alt­ari fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna í kjöl­far hruns­ins 2008“. Samkvæmt svari ráð­herr­ans voru í heild­ina 8846 nauð­ing­ar­sölur hjá ein­stak­lingum á árunum 2008 til 2017, heild­ar­tölur fyrir gjald­þrota­skipti eru 2973 á sama tíma­bili og árang­urs­laus fjár­nám 116.939.

„Það eru 10 ár frá hruni og löngu tíma­bært að fara í saumana á þessum málum og leið­rétta órétt­lætið sem tug­þús­undir hafa orðið fyrir. Þetta eru ekki „gömul mál“, þau eru enn þá í gangi og afleið­ingar þeirra hafa verið og eru enn, hræði­legar fyrir tug­þús­undir“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni og kröfð­ust sam­tökin að gerð yrði óháð rann­sókn­ar­skýrsla um aðgerðir stjórn­valda eftir hrun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár