Vandinn við að koma þaki yfir höfuðið

Fast­eigna­verð hækkar og hækkar. Grein­endur telja ekki vera komin merki um fast­eigna­bólu, í þetta skiptið.

Fast­eigna­mark­að­ur­inn á Íslandi hefur gengið í gegnum miklar breyt­ingar frá því hann botn­fraus í aðdrag­anda og í kjöl­far hruns­ins. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fast­eigna­verð hækkað hratt á und­an­förnum árum, eða um sem nemur tæp­lega 29 pró­sentum að raun­virði frá því árið 2010, sé miðað við fjöl­býli. Því er spáð að hækk­unin verði 20 pró­sent til við­bótar á næstu tveimur árum, og bendir fátt til ann­ars en að hækk­un­ar­ferlið haldi áfram.

Eins og bent var, í frétt Kjarnans á mið­viku­dag­inn, þá hafa íbúðir ekki selst hraðar síðan í júní 2007, á hátindi efna­hags­bólunnar. Á sama tíma hefur gengið hratt á fram­boð eigna í sölu. Það á bæði við um sér­býli og fjöl­býli. Um 900 sér­býl­is­eignir voru aug­lýstar til sölu í apríl 2012 en þær voru 320 í apríl á þessu ári. Um 1.900 fjöl­býl­is­eignir voru aug­lýstar til árið 2012, en þær eru nú komnar niður fyrir 900.

Erfiðleikar framundan

Í miðbæ Reykja­víkur hefur hækk­unin verið langt yfir­ ­með­al­talið í heild, eða 37,9 pró­sent, sam­kvæmt skýrslu Reykja­vík Economics, sem Magnús Árn­i Skúla­son hag­fræð­ingur vann fyrir Íslands­banka, með sér­staka áherslu á sér­býl­i. Í henni segir að hækk­unin í mið­bænum sé mögu­lega vegna svo­nefndra Air­bnb áhrifa. Í mið­bænum hafa tæp­lega tvö þús­und íbúðir verið skráðar á vef Air­bnb til leigu fyr­ir­ ­ferða­menn, en vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur verið gríð­ar­lega hrað­ur­ und­an­farin ár. Til marks um það komu 454 þús­und ferða­menn til lands­ins árið 2010 en því er spáð að þeir verði 1,6 millj­ónir á þessu ári, og 2,2 millj­ónir á því næsta. Áhrifin á fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­svæð­inu sér­stak­lega, eru mikil og bein, eins og sést á þessum upp­lýs­ingum.

Fram­boðið á eignum til heils­árs­bú­setu, ýmist til leigj­enda eða þeirra sem eiga íbúð­irnar, hefur því dreg­ist nokkuð saman vegna upp­gangs ferða­þjón­ust­unnar. Þetta hefur þrýst verð­inu upp á við þar sem eft­ir­spurn hefur verið að aukast jafnt og þétt eftir íbúðum í mið­bænum, á meðan fram­boðið hefur ekki auk­ist.

Rökréttar skýringar

Á árunum 2004-2006 hækk­aði fast­eigna­verð mikið og þá úr takti við mik­il­vægar tengdar stærðir eins og kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna, eins og var gert að umtals­efni í hag­sjá Lands­bank­ans fyrir nokkru. Þar sagði enn fremur að of snemmt væri að tala um bólu­myndun á mark­aði, þar sem hækkun verðs­ins ætti sér rök­réttar skýr­ingar.

„Bættur aðgangur að lánsfé en verið hafði, hækkun láns­fjár­hlut­falla og lán á lægri vöxtum (einna helst í erlendum gjald­miðlum) skýra mik­inn hluta hækk­un­ar­innar þá. Aðgangur að lánsfé var þrengdur nokkuð eftir hrun, t.d. með auknum kröfum um eig­in­fjár­fram­lag, en engar grund­vall­ar­breyt­ingar hafa orðið í þessum efnum á allra síð­ustu árum.

Í lang­tíma­sam­hengi verður þó að telja að kjör á íbúða­lána­mark­aði séu nokkuð hag­stæð nú. Kaup­máttur launa og ráð­stöf­un­ar­tekna hefur hins vegar auk­ist veru­lega á síð­ustu miss­erum og hefur hækkun fast­eigna­verðs hald­ist nokkuð vel í hendur við þá þróun.

Hlut­fallið milli raun­verðs íbúða og kaup­máttar launa hækk­aði nokkuð frá árs­byrjun 2013 fram til árs­loka 2015 en fór svo lækk­andi og er enn lægra en þá var. Það er því alls ekki tíma­bært að full­yrða að bólu­myndun sé í gangi á fast­eigna­mark­aði,“ sagði í hag­sjá Lands­bank­ans.

Vantar fleiri eignir

Augljóst er á gangi mála á fast­eigna­mark­aði, að mikil þörf er fyrir fleiri íbúðir á mark­aðnum, einkum litlar og með­al­stórar. Í píp­unum eru þegar upp­bygg­ing­ar­á­form á nokkur þús­und íbúðum, á næstu árum, en þörf er fyrir um tvö þús­und til 2.500 íbúðir á hverju ári á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, til að mæta nátt­úru­legri fjölgun nýrra íbúða­kaup­enda. Eftir hrunið var mark­að­ur­inn alveg fros­inn um tíma, og lítið sem ekk­ert byggt í tvö ár.

Frá árinu 2011 hefur tölu­vert verið byggt, en þó hefur íbúða­fjár­fest­ing ekki verið eins mikil og hún hefði þurft að vera, til að mæta mik­illi eft­ir­spurn. Margir gætu því lent í vand­ræðum með að koma þaki yfir höf­uðið, á næstu árum, ef ekki verður settur meiri kraftur í íbúða­upp­bygg­ingu, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár