Hótun um málsókn færð Viðari í umslagi

Fram­kvæmda­stjóri Eflingar hefur tjáð sig um starfs­manna­leig­una Menn í vinnu og gagn­rýnt hana harð­lega.

„Í kvöld var dyra­bjöll­unni hringt heima hjá mér og mér fært stórt papp­írs­um­slag með nafn­inu mínu hand­skrif­uðu á. Glaðn­ing­ur­inn reynd­ist svo vera hótun um lög­sókn frá starfs­manna­leig­unni Mönnum í vinnu. Þar eru talin upp ýmis ummæli sem ég hef látið falla í fjöl­miðlum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Ég er kraf­inn um afsök­un­ar­beiðni og 1.000.000 í skaða­bætur.“

Frá þessu greinir Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, á Facebook síðu sinni.

Starfs­manna­leigan Menn í vinnu hefur verið ítrekað til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, bæði í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveiki á RÚV sem og í öðrum fjöl­miðlum, og hafa starfs­menn þar kvartað undan aðstæðum, launum og hvernig staðið hefur verið að málum gagn­vart þeim. 

Á vef Eflingar var fyr­ir­tækið gert að umtals­efni 8. febr­úar, og segir þar meðal ann­ars að Efling hafi gögn undir höndum sem sýni að ekki sé verið að fara að settum lögum og reglum gagn­vart starfs­fólki.

Í umfjöll­un­inni á vef Eflingar segir meðal ann­ars: 

„Í fréttum í gær var sagt frá ömur­legum aðstæðum fólks hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu. Tugir starfs­manna frá Rúmeníu hír­ast í her­bergjum, allt að tíu saman, en borga þó fimm­tíu þús­und krónur á mán­uði fyrir. Í ráðn­ing­ar­samn­ingi frá fyr­ir­tæk­inu sem Efling-stétt­ar­fé­lag hefur undir höndum er klausa sem segir að und­ir­rit­aður skuldi leigu sem Menn í vinnu megi draga frá launum, án þess að upp­hæð eða nokk­urs konar leigu­vernd sé til­tekin.

Efling hefur lengi beitt sér gegn marg­ít­rek­uðum brot á kjara­samn­ingum, sem framin eru í skjóli óljósra samn­inga, útleigu á starfs­fólki og skorts á sekt­ar­heim­ildum. Kröfu­gerð Eflingar, sem samin var af almennum félags­mönnum í haust, benti á mörg úrræði og hafa þau verið rædd við Samtök atvinnu­lífs­ins í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum. Í kröfu­gerð er þess meðal ann­ars kraf­ist að heim­ilt sé að inn­heima sektir vegna alvar­legra brota á kjara­samn­ingi.“

[adspot]Þá segir í umfjöll­un­inni að sömu aðílar, og stóðu að félagi sem að lokum fór í þrot, hafi snúið aftur með starf­semi „eins og stökk­breyttur vírus“.

„Þessi fyr­ir­tæki fara út í svona ótrú­lega ósvífni meðal ann­ars vegna þess Efling hefur staðið sig ágæt­lega í að sækja mál á hendur þeim. Efling knúði stóra starfs­manna­leigu í gjald­þrot með met­fjölda launa­krafna – átta­tíu launa­kröfur – í maí á síð­asta ári. Núna koma sömu aðilar til baka eins og stökk­breyttur vírus undir nýjum kenni­tölum. Núna gera þau þetta nán­ast rétt á papp­írnum, gefa kannski út réttan launa­seðil, en hafa fundið nýjar leiðir til að féfletta fólkið fram­hjá lögum og reglum,“ er meðal ann­ars haft eftir Viðari á vef Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár