Davíð ætlar sér að vera lengi áfram á Morgunblaðinu

Davíð Oddsson rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ist ekki vera bitur út í vinstri stjórn­ina sem kom honum út úr Seðla­bank­anum. Ísland hafi elt los­ara­gang Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir hrun og því fór sem fór. Óskar Katrínu Jak­obs­dóttur vel­farn­aðar.

Davíð Oddsson rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins ætlar að rit­stýra blað­inu í mörg ár í við­bót. Þetta sagði hann í sam­tali við Pál Magn­ús­son þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í útvarps­þætt­inum Þing­vellir á K100 í morgun.

Aðspurður um hvort hann hafi hugsað sér til hreyf­ings haf­andi verið á blað­inu nú í tæp níu ár og orð­inn sjö­tugur, sagði Davíð að hann hafi engin til­mæli fengið frá eig­endum Árvakurs, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, og líti því svo á að hann geti verið þar áfram í fimm, sex til sjö ár.

Davíð kom víða við í við­tal­inu. Hann sagði hrunið hafa markað þátta­skil þegar kemur að vel­gengi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Sú rík­is­stjórn flokks­ins sem tók við af vinstri stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2013 hafi ekki gert nein skil, engin mikil breyt­ing hafi orðið eftir að sú stjórn tók við, engin kafla­skil. Fólk verði að hafa sann­fær­ingu fyrir því að flokkur skipti máli í ríkis- eða sveit­ar­stjórn.

Um hrunið sagði Davíð að Íslandi hafi verið að elta los­ara­gang Evr­ópu­sam­bands­ins, við höfum ekki haft leyfi til að setja hér strang­ari reglur en þar giltu. Nú sé nauð­syn­legt að hafa reglur skýrar varð­andi upp­skipt­ingu banka­kerf­is­ins.

Davíð sagð­ist í árs­byrjun árið 2008 hafa farið á fund helstu for­ystu­manna rík­is­stjórn­ar­innar til að vara þá við en það hafi ekki hreyft við þeim þar sem banka­menn­irnir segðu þeim að allt væri í lagi og vís­uðu í end­ur­skoð­aða reikn­inga. Hann telur að ef það hefði sýnt sig út á við að Seðla­bank­inn, rík­is­stjórnin og Fjár­mála­eft­ir­litið hefðu allt það ár verið að ham­ast í að bjarga íslenska fjár­mála­kerf­inu hefði það ef til vill breytt því hvernig aðrir aðilar sæju Ísland þegar á hólm­inn var komið og vís­aði sér­stak­lega í Gordon Brown fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem setti hryðju­verka­lista í hrun­inu. Á hann hafi hins vegar ekki verið hlustað. Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra hafi kallað þetta útaustur eins manns og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þáver­andi mennta­mála­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi, eftir að Glitnir var tek­inn yfir, talað um að ekki ætti að dramat­ísera málið. Hann sagð­ist ekki geta úti­lokað að ein­hverju hefði verið hægt að breyta þó hann geti ekki sannað það.

Davíð sagð­ist telja að ekki hafi verið þægi­legt að búa til aðra rík­is­stjórn en þá sem nú situr. Stjórn með Mið­flokki og Framsókn saman hafi ekki verið með í spil­unum þar sem for­maður Fram­sóknar hafi verið harður á því að vilja ekki vera með Mið­floknum, „ætlar að drepa þann flokk af sér“. Davíð sagð­ist telja að skyn­sam­legra væri að ná þessum hópum saman í eitt afl aftur. Hann sagð­ist kunna vel við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­mann Mið­flokks­ins, hafi þekkt for­eldra hans, afa og ömmu vel.

Um brott­hvarf hans úr Seðla­bank­anum sagð­ist Davíð ekki vera bitur út í þáver­andi stjórn­völd, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­grím J. Sig­fús­son. Hann sagði þó að þetta hafi verið í eina skiptið á Vest­ur­löndum sem ráð­ist hafa verið á sjálf­stæði Seðla­banka og að hann hafi tekið það nærri sér að hinum tveimur seðla­banka­stjór­unum hafi verið bolað í burtu vegna hans. Eðli­legra hefði verið sam­kvæmt Davíð að ljúka rann­sókn­ar­skýrsl­unni af sem þá hafði verið sett af stað, og ákveða svo hvort þeir ættu að vera áfram í bank­anum. „Mér var mjög brugðið að þetta skyldi hafa gerst með þessum hætti.“ Hann sagð­ist telja að þessar aðfarir hafi „lækkað risið á þessu fólki“. Ávallt hafi verið gott á milli hans og Jóhönnu en að hann telji að hún hafi orðið að gera þetta, hún hafi borgað fyrir for­sæt­is­ráð­herra emb­ættið með þessu. Þá sagð­ist hann telja að Stein­grímur geti reynst ágætur þing­for­seti og að ómældur vilji sé í þjóð­fé­lag­inu um að gefa Katrínu Jak­obs­dóttur tæki­færi til að vera for­sæt­is­ráð­herra og vonar að henni farn­ist vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár