Offramboð á olíu veldur verðfalli á heimsmarkaði

Heims­mark­aðs­verð á olíu er að lækka á ný eftir kúf síð­ustu vikna. Skýr­ingin talin fel­ast í offram­boði. Lygnari verð­sveiflur á Íslandi skýr­ast af opin­berum gjöldum.

Offramboð á olíu getur, ásamt öðrum þáttum, valdið því að heimsmarkaðsverð á olíu lækkar.
Offram­boð á olíu getur, ásamt öðrum þáttum, valdið því að heims­mark­aðs­verð á olíu lækkar.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur ekki verið læra í um fjóra mán­uði. Tunna af Norð­ursjáv­ar­olíu, sem kölluð er Brent-olía á mörk­uðum, kost­aði 41,5 Banda­ríkja­dal við lokun mark­aða á föstu­dag. Það er þó langt frá því að vera lægsta verðið sem olía hefur farið á á þessu ári. Í jan­úar fór verð á tunnu af Norð­ursjáv­ar­olíu niður fyrir 30 doll­ara.

Síðan hefur verðið hækkað nokkuð og náði hámarki í júní. Eftir það hefur verðið lækkað og er skýr­ingin talin fel­ast í offram­boði olíu á mark­aði. Ástæða verð­hækk­un­ar­innar á öðrum árs­fjórð­ungi er einnig fela í sér ástæður þess að verðið falli nú. Í Kúveit var verk­fall olíu­iðn­að­ar­manna, fram­leiðsla minnk­aði mikið í Nígeríu og Líbíu og gróð­ur­eldar geisuðu við kanadísku tjöru­sandana.

Búist er við að olíu­verðið haldi áfram að lækka á næstu vikum. Olíu­fram­leiðsla í Banda­ríkj­unum hafði minnkað hratt þar til á und­an­förnum vikum þegar fjöldi olíu­bora hefur auk­ist mikið og fram­leiðslan um leið. Þá er unnið að end­ur­opn­unum á olíu­bor­holum í Líbíu eftir átökin þar í landi og arab­íska vorið.

Samtök olíu­fram­leiðslu­ríkja (OPEC) telja að olíu­fram­leiðsla ríkja sam­tak­anna hafi náð hámarki í júlí. Sádí-Arabía, langstærsti útflytj­andi hrá­olíu í heim­inum, hefur fram­leitt nærri því jafn mikið og þegar mest hefur verið und­an­farið, Írakar dæla meiri olíu upp úr jörð­inni en nokkru sinni og Nígería fram­leiðir mikið þrátt fyrir óöld í land­inu. Í júní var fram­boðið á olíu­tunnum á dag 33,31 milljón tunnur og í júlí buð­ust 33,41 milljón tunnur á dag.

Sveiflur á olíu­verði á Íslandi hafa ekki verið eins miklar og á heims­mark­aðs­verð­inu und­an­farin tvö ár. Sé verð­þró­unin á bens­ín­lítr­anum hér landi borin saman við verð á Norð­ursjáv­ar­olíu sést að verð­sveifl­urnar hafa verið mun lygn­ari en dramat­ísku sveifl­urnar á heims­mark­aði. Und­an­farin eitt og hálft ár hefur gengi íslensku krón­unnar styrkst nokkuð gagn­vart Banda­ríkja­dal sem ætti einnig að hafa áhrif á bens­ín­verð hér á landi.

Lygnari sveiflur í olíu­verði hér landi miðað við heims­mark­aðs­verð skýr­ast einkum af því að í útsölu­verðið er að meiri­hluta skattar og opin­ber gjöld, sem sveifl­ast ekki með heims­mark­aðs­verði. Lítra­verð á bens­íni á Íslandi er nú um það bil 190 krónur, en það fór lægst í um 180 krónur í kjöl­far lægðar heims­mark­aðs­verðs­ins í febr­úar. Fyrir ári síðan kost­aði lítr­inn af bens­íni um 220 krónur. Í byrjun ágúst árið 2014 kost­aði lítr­inn af bens­íni hins vegar rúmar 240 krónur.

Hráolíuverð miðað við eldsneytisverð á Íslandi og olíuverð miðað við gengi krónu gagnvart dollar

Heimild: oil.laxdal.org.

Ísland nýtur góðs af lágu olíu­verði, í það minnsta þegar beinu áhrifin eru skoð­uð. Ef verðið er lágt, þá þarf minn­i gjald­eyri í að kaup olí­una heldur en þegar það er hátt. Óbeinu áhrifin eru ­síðan þau, að oft er fylgni milli verð­sveiflna olí­unnar og síðan ann­arra hrá­vara. Þannig skilar mikil lækkun á olíu­verði sér oft í því, með tím­an­um, að verð ­lækkar á inn­fluttum afurð­u­m. Það dreg­ur ­síðan úr verð­bólgu. Verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­að­i und­an­farið ár, og mælist nú 1,1 pró­sent á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár