Tíu athyglisverðir punktar úr skýrslu um íbúðamarkaðinn

Íslands­banki gaf í gær út skýrslu um íbúða­mark­að­inn, þar sem fjallað er um alla lands­hluta og þróun á mark­aðnum. Útlit er fyrir áfram­hald­andi skarpar hækk­anir á fast­eigna­verði víð­ast hvar.

Íslands­banki kynnti í gær nýja ítar­lega skýrslu um íbúða­mark­að­inn. Í henni er farið yfir horfur á mark­aðnum, hvernig hann hefur þró­ast á und­an­förnum árum og hvaða þættir það eru helst sem eru að hafa áhrif á hann.

1. Í spá sem birt­ist í skýrsl­unni er gert ráð fyrir að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka. Á þessu ári verði raun­verðs­hækk­unin 7,8 pró­sent á næsta ári 9,4 pró­sent og árið 2018 verði hækk­unin 3,4 pró­sent.

2. Ástæðan fyrir áfram­hald­andi hækk­unum er vax­andi kaup­geta á mark­aðnum, meðal ann­ars vegna batandi stöðu í efna­hags­málum þjóð­ar­innar, mikil og vax­andi eft­ir­spurn á meðan fram­boð hefur ekki fylgt henni eftir, og síðan mikil áhrif af vexti í ferða­þjón­ust­unni.

3. Í spánni er gert ráð fyrir að kaup­máttur launa muni aukast um tíu pró­sent á þessu ári, 5,2 pró­sent á því næsta og 2,3 pró­sent á árinu 2018. Aukinn kaup­máttur launa mun því áfram skapa þrýst­ing til hækk­unar á verði íbúða.

4. Eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, haustið 2008, má segja að fast­eigna­mark­að­ur­inn hafi frosið. Hús­bygg­ingar stöðv­uð­ust einnig. Segja má að mark­að­ur­inn sé nú að súpa seyðið af þessu. Árleg end­ur­nýj­un­ar­þörf á mark­aðnum er talin vera um 1.800 íbúðir, en bygg­ingar voru tölu­vert undir því á árunum eftir hrun. Þrýst­ingur á nýbygg­ingar varð því meiri fyrir vikið, með þeim áhrifum að fast­eigna­verð hækk­aði.

5. Í mars 2016 voru 2.278 íbúðir í eigu fjár­mála­stofn­ana, en tæp 60 pró­sent af þeim voru í útleigu. Meira en helm­ingur íbúða er í eigu Íbúða­lána­sjóðs (56 pró­sent) en sjóð­ur­inn átti 1.287 íbúðir í mars 2016. Fjöldi íbúða í eigu fjár­mála­stofn­ana hefur minnkað síð­ustu ár, en árið 2013 áttu fjár­mála­stofn­anir að með­al­tali 3.500 íbúðir. Í júlí 2016 átti Íbúða­lána­sjóður 809 eignir og um 41 pró­sent þeirra voru í sölu­ferli en sala á íbúðum sjóðs­ins hefur gengið vel á árinu en seldar hafa verið um 698 íbúðir. Íbúða­lána­sjóður stefnir á að vera búinn að ljúka sölu á flest­öllum sínum íbúðum undir árs­lok 2016.

6. Þrátt fyrir að hlut­fall smærri íbúða (íbúðir undir 110 fer­metrum) sé hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (55 pró­sent) af öllum lands­hlutum bendir verð­þróun á slíkum íbúðum til þess að um sé að ræða skort á þeim og að hlut­fall smærri íbúða þurfi því að vera enn hærra. „Hefur verð smærri íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað umfram þeirra sem stærri eru. Þannig hefur verð íbúða í stærð­ar­flokk­unum 0-70m2 hækkað um 42 pró­sent og 70-110m2 um 32 pró­sent frá árinu 2010. Til sam­an­burðar hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild hækkað um 29% yfir sama tíma­bil,“ segir í skýrsl­unni.

7. Í skýrsl­unni er vitnað til rann­sóknar sem gerðar hafa verið á við­horfi fólks til leigu og kaups. Flestir myndu vilja búa í eigin hús­næði, sam­kvæmt þeim. „Tvær viða­miklar kann­anir á hús­næð­is­málum voru fram­kvæmdar á meðal eig­enda og leigj­enda á hús­næð­is­mark­að­inum af Gallup fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið á tíma­bil­inu 19. nóv­em­ber til 9. des­em­ber 2015. Kom þar m.a. í ljós að um 90% leigj­enda töldu að óhag­stætt væri að leigja íbúð­ar­hús­næði á Íslandi um þessar mundir. Ef nægi­legt fram­boð væri á bæði öruggu leigu­hús­næði og hús­næði til kaups myndu 77% leigj­enda og 95% eig­enda frekar vilja eiga hús­næði sitt.“

8. Útlit er fyrir að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði flestar íbúðir byggðar í Reykja­vík, eða 3.305 tals­ins, og fæstar á Sel­tjarn­ar­nesi, eða 104. Þetta kemur fram í skýrsl­unni. Sér­stak­lega er þó tekið fram að hlut­falls­leg aukn­ing íbúða verði mest í Mos­fellsbæ (25,1%) og minnst í Reykja­vík (6,5%) og á Sel­tjarn­ar­nesi (6,2%) yfir tíma­bilið.

9. Hlutfall leigj­enda á Ísland er 22,2 pró­sent. Það er fremur lágt í alþjóð­legum sam­an­burði en þó hærra en í Noregi, þar sem hlut­fallið er 17,2 pró­sent. Í Danmörku er hlut­fallið 37,3 pró­sent.

10. Íbúða­verð á land­inu hóf að taka við sér eftir árið 2010 og síðan þá hefur með­al­verð á hvern fer­metra hækkað mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða um 29 pró­sent. Þar á eftir koma Norð­ur­land eystra (22 pró­sent), Suð­ur­land (14 pró­sent) og Vest­ur­land (9 pró­sent). Minnsta hækk­unin hefur svo átt sér stað á Vest­fjörðum (6 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár