225 milljarðar í ný útlán hjá Landsbankanum

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn Landsbankinn

Ný útlán Lands­bank­ans juk­ust mest allra við­skipta­bank­anna og spari­sjóða á árinu 2015 eða um 225 millj­arða. Þegar tekið hefur verið til­lit til liði á borð við afborg­anir og virð­is­breyt­ingar þá nemur aukn­ing heild­ar­út­lána bank­ans 84 millj­örðum krona. Samtals stóðu útlán bank­ana í tæpum 2.180 millj­örðum í árs­lok 2015. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á heild­ar­nið­ur­stöðum árs­reikn­inga. Morg­un­blaðið greinir frá þessu í dag.

Heild­ar­út­lán við­skipta­banka og spari­sjóða stóðu í tæpum 2.190 millj­örðum króna, um það bil 130 millj­örðum hærra en í lok árs 2014. Lands­bank­inn lán­aði mest allra bank­anna á árinu. Heild­ar­út­lán bank­ans við ára­mót námu 811,5 millj­örðum króna. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið 14 millj­arða af þess­ari upp­hæð má rekja til sam­ein­ingar tveggja spari­sjóða við bank­ann, Spari­sjóðs Vest­manna­eyja og Spari­sjóðs Norð­ur­lands, og til mik­illa fastein­ga­lána.

„Þá tók fjár­fest­ing atvinnu­veg­anna einnig mikið við sér og er það tölu­verð breyt­ing miðað við fyrstu árin eftir hrun þegar fyr­ir­tæki lögðu alla áherslu á að greiða niður skuldir,“ er haft eftir Stein­þóri. „Nú hefur dæmið snú­ist við, fjár­fest­ing tekið við sér og þá miðlum við fjár­magni til upp­bygg­inar á flestum sviðum.“

Árið 2016 fari mun hægar af stað þegar kemur að útlánum Lands­bank­ans, að sögn Stein­þórs og nefnir hann líf­eyr­is­sjóð­ina sem dæmi um skýr­ingu. Þeir hafi komið sterkir inn á fast­eigna­lána­mark­að­inn. Bankinn sé einnig að stýra lausafé sínu með þeim hætti að lausa­fjár­staðan verði sterk­ari þegar kemur að afnámi hafta, sem stjórn­völd vinna nú að. „Lausa­fjár­kröfur Seðla­bank­ans hækk­uðu um 10 pró­sentu­stig milli ára og það hefur vissu­lega áhrif,“ er haft eftir Stein­þóri.

Í skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að hagn­aður við­skipta­bank­anna á árinu 2015 var sam­tals ríf­lega 106 millj­arðar króna. Við­skipta­bank­arnir eru Arion Banki, Íslands­banki, Kvika banki og Lands­bank­inn. Mest hagn­að­ist Arion banki, um tæpa 50 millj­arða, en Kvika skil­aði tapi um tæpar 483 millj­ónir króna. Hagnaður bank­anna árið 2015 er nokkru meiri en árið 2014 þegar þeir högn­uð­ust um rúman 81 millj­arð króna.

Í skýrsl­unni má einnig lesa um með­al­fjölda starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja á árinu 2015 sem var örlítið minni en árið 2015. Í fyrra var með­al­fjöldi starfs­manna 3.905 manns en var 4.038 árið 2014. Þá hefur afgreiðslu­stöðum við­skipta­banka og spari­sjóða fækkað nokkuð síðan árið 2014 þegar þeir voru 95 tals­ins um land allt. Í lok árs 2015 voru þeir 81. Munar þar mest um fækkun spari­sjóða og sam­ein­ingar við við­skipta­bank­ana.

Uppfært kl. 9:10 - Ranglega var sagt að útlán Lands­bank­ans hafi aukis um 225 millj­arða á síð­asta ári. Þegar til­lit hefur verið tekið til aðra liða á borð við afborg­anir og virð­is­breyt­ingar þá nemur aukn­ing heild­ar­út­lána bank­ans 84 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár