Fólk segist hlýða Víði, Þórólfi og Ölmu en trúir ekki að annað fólk geri það líka

Töluvert lægra hlut­fall fólks hefur trú á því að Íslend­ingar almennt séu að fara eftir gild­andi til­mælum vegna heims­far­ald­urs­ins núna en raunin var í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Áhyggjur fólks hafa verið að aukast á ný, sam­kvæmt Félags­vís­inda­stofnun.

Þeir Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason sjást hér á upplýsingafundi almannavarna. Íslendingar segjast sjálfir upp til hópa duglegir að hlýða þeim, en hafa minni trú á næsta manni.
Þeir Víðir Reyn­is­son og Þórólfur Guðnason sjást hér á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna. Íslend­ingar segj­ast sjálfir upp til hópa dug­legir að hlýða þeim, en hafa minni trú á næsta manni.

Hátt í átta­tíu pró­sent lands­manna segj­ast fara að öllu eða mestu leyti eftir þeim til­mælum sem koma frá almanna­vörnum og land­lækn­is­emb­ætt­inu vegna COVID-19. Einungis lít­ill hluti telur þó að sam­borg­arar sínir geri almennt slíkt hið sama.[links]

Þetta má lesa út úr nýj­ustu tölum í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands á við­horfum þjóð­ar­innar í COVID-19 far­aldr­inum, sem eru frá 1. októ­ber. Einungis 14 pró­sent aðspurðra sögð­ust hafa trú á því að Íslend­ingar væru almennt að fara að þeim til­mælum sem gefin hafa verið út.

Þetta hlut­fall er mun lægra en þegar verið var að kveða fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í kút­inn í apríl og byrjun maí. Þá sögð­ust gjarnan yfir 40 pró­sent aðspurðra hafa trú á því að sam­borg­arar sínir væru almennt að fara eftir reglum.

Fólk hefur reyndar meiri trú á því fólki sem það per­sónu­lega er í mestu sam­skiptum við, en um 63 pró­sent segj­ast hafa trú á því þeir ein­stak­lingar – sem þá vænt­an­lega eru fjöl­skylda, vinir og vinnu­fé­lagar – fari að öllu eða mestu leyti eftir þeim til­mælum sem gefin eru út í sótt­varna­skyni.

[adspot]

Áhyggjur af faraldrinum aukast

Samkvæmt nýj­ustu tölum í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar eru áhyggjur af far­aldri COVID-19 að aukast fremur hratt, en 72 pró­sent aðspurðra hafa mjög eða frekar miklar áhyggjur af far­aldr­inum sam­kvæmt nýj­ustu birtu mæl­ingum, sem eru frá 1. októ­ber.

Reikna má með því að þetta hlut­fall hafi haldið áfram að hækka síðan þá, í takt við vöxt far­ald­urs­ins og aukin áhrif veirunnar í sam­fé­lag­inu. Um miðjan sept­em­ber hafði ein­ungis um og yfir helm­ingur aðspurðra mjög eða frekar miklar áhyggjur af stöðu mála.

Trú á að aðgerðir dugi hefur verið minni í þriðju bylgjunni

Lesa má út úr könnun Félags­vís­inda­stofn­unar að eftir að þriðja bylgja far­ald­urs­ins skall á síðla í sept­em­ber fór trú almenn­ings á því að þær sótt­varna­að­gerðir sem verið var að beita myndu duga til þess að hægja veru­lega á útbreiðslu smita minnk­andi.


Hlutfall þeirra sem sögðu „mjög lík­legt“ að gild­andi til­mæli féll þannig skarpt um miðjan mán­uð­inn, úr 55 til 60 pró­sent og niður í 25 til 35 pró­sent.

Stærsti hluti er þó enn á þeirri skoðun að það sé frekar „frekar lík­legt“ að aðgerð­irnar dugi, en hlut­fall þeirra sem svarar „hvorki né“ eða „ólík­legt“ fer vax­andi og var kom­inn upp yfir 20 pró­sent í lok sept­em­ber­mán­aðar.

Mæla hvernig viðhorfin til faraldursins breytast

Félags­vís­inda­stofnun hefur mælt við­horf þjóð­ar­innar til ýmissa atriða varð­andi COVID-19 far­ald­ur­inn síðan í vor. Daglega er könn­unin send til 400 með­lima í svoköll­uðum net­panel Félags­vís­inda­stofn­unar, sem er hópur fólks 18 ára og eldri sem sam­þykkt hefur að taka þátt í könn­unum frá Félags­vís­inda­stofnun. Þessi aðferð gerir það mögu­legt að greina hvernig afstaða Íslend­inga breyt­ist með tím­anum.

Að með­al­tali ber­ast um 130 svör á dag, en fæst hafa þau verið 23 og flest 889 á þriggja daga tíma­bili. Félags­vís­inda­stofnun segir að sökum þess að svar­fjöldi sé á þessu bili megi búast við nokkrum sveiflum milli daga og því skuli var­ast að oftúlka breyt­ingar milli stakra daga því óvissan sé nokkur. Þetta eigi sér­stak­lega við þegar verið sé að skoða afmark­aða bak­grunns­hópa. Ef ákveðin stefnu­breyt­ing verði í afstöðu þjóð­ar­innar megi hins vegar búast við að sjá gögnin stefna í þá átt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár