Landsréttur hafnaði beiðni Valitor gegn WikiLeaks

Úrskurður Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að hafna beiðni Valitor um nýtt mat á tjóni WikiLeaks var stað­festur af Lands­rétti á þriðju­dag. Tjónið var metið á 3,2 millj­arða og kom til vegna lok­unar Valitor á greiðslu­gátt WikiLeaks árið 2011.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Viðar Þor­kels­son, for­stjóri Valitor. Mynd: Aðsend

Lands­réttur stað­festi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að hafna beiðni Valitor um að dóm­kveða nýja mats­menn í máli SPP, sem er rekstr­ar­fé­lag WikiLeaks, og DataCell ehf. gegn greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Sveini Andra Sveins­syni, lög­manni SPP og DataCell.

Í til­kynn­ing­unni segir stað­fest­ingu Lands­réttar marka upp­haf loka­sókn félag­anna tveggja gegn Valitor þar sem gerð er krafa um greiðslu skaða­bóta vegna ólög­mætrar lok­unar Valitor á greiðslu­gátt fyrir alþjóð­leg fram­lög til WikiLeaks árið 2011. Annað félagið, SPP, er að mestu leyti í eigu Julian Assange, stofn­anda WikiLeaks.

Hæsti­réttur dæmdi lokun Valitor á greiðslu­gátt SPP og Datacell ólög­mæta árið 2013, en dóm­kvaddir mats­menn mátu tjón Wikileaks á 3,2 millj­arða íslenskra króna. Til­kynn­ingin metur svo að heild­ar­greiðsla Valitor að drátt­ar­vöxtum og máls­kostn­aði með­töldum nemi um 6,7 millj­örðum króna.

Árið 2016 fór svo Valitor fram á yfir­mat, en ákvað að leggja það ekki fram í dómi. Þess í stað óskaði Valitor eftir nýju mati en því var hafnað í Hér­aðs­dómi. Lands­réttur stað­festi svo úrskurð Hér­aðs­dóms á þriðju­dag­inn.

Samkvæmt tals­mönnum SPP og DataCell er því end­an­lega búið að ramma inn umfang tjóns­ins með nýjum dómi Lands­réttar, þar sem eng­inn aug­ljós galli er á mats­gerð­inni sem leitt geti til þess að dóm­ari fari að víkja henni til hliðar. Úrskurð­inn má lesa hér.

Kjarninn hefur áður fjallað um mál SPP og DataCell gegn Valitor, en fyrr­nefndu félögin kröfð­ust kyrr­setn­ingar á eignum Valitors. Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafn­aði þeirri kröfu síð­ast­lið­inn mars og stað­festi Hér­aðs­dómur Reykja­víkur ákvörð­un­ina í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár