Kjósendur stjórnarflokkana eru bjartsýnni en aðrir

Nærri þriðj­ungur lands­manna seg­ist ekki ná endum saman um hver mán­að­ar­mót, eða 29,1 pró­sent svar­enda í könnun Maskínu sem gerð var 29. maí til 15. júní. Restin, 70,9 pró­sent, seg­ist ná endum saman (34,1 pró­sent) eða eiga afgang við mán­að­ar­mót (36,8 pró­sent).

Nærri helm­ingur svar­enda seg­ist auk þess telja að hagur þeirra muni standa í stað á næstu miss­erum. 37,5 pró­sent svar­enda er bjart­sýnna á fram­tíð­ina en 13,9 pró­sent telur hag sinn eiga eftir að versna nokkuð. Athygli vekur að kjós­endur stjórn­ar­flokk­anna eru horfa jákvæð­ari augum á fram­tíð­ina en kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana.

Kósendur Pírata eru sam­kvæmt könn­un­inni ólík­legri en kjós­endur ann­arra stjórn­mála­flokka til að ná endum saman en 38,8 pró­sent þeirra sögð­ust eiga í vand­ræðum með fjár­hag­innn og ná ekki endum saman. Því er öfugt farið með kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins en 55 pró­sent þess hóps seg­ist eiga afgang við mán­að­ar­mót.

Enginn mark­tækur munur finnst í gögn­unum sé raðað eftir kyni, aldri eða búsetu. Menntun virð­ist hins vegar hafa nokkur áhrif en ríf­lega fimmt­ungur þeirra sem hafa aðeins grunn­skóla­próf segj­ast vera langt frá því að ná endum saman við mán­að­ar­mót. Til sam­an­burðar segj­ast aðeins sex til sjö pró­sent þeirra sem hafa meiri menntun vera í tölu­verðum vand­ræðum.


Í Þjóð­ar­púlsi Gallup í mars kom fram að meira en helm­ingur svar­enda ætti í erf­ið­leikum með fjár­hag­inn, eða 57 pró­sent. Í sömu könnun sögð­ust 42 pró­sent svar­enda geta safnað sparifé um hver mán­að­ar­mót.

Við þetta má bæta að í frétt á vef Maskínu segir að því eldra sem svar­endur eru því ólík­legra telur það að hagur þess muni vænkast. Þeir sem hafa meiri menntun en grunn­skóla­próf eru bjart­sýnni en ella og þeir sem hafa meira en 800 þús­und krónur í tekjur eru jafn­framt bjart­sýnni á fram­tíð­ar­hag sinn.

Þátt­tak­endur í könnun Maskínu voru spurðir þriggja spurn­inga. Þær voru „Almennt séð, hversu ham­ingju­samur/söm myndir þú segja að þú værir á kvarð­anum 0-10?“, „Þegar kemur að fjár­hags­stöðu þinni um hver mán­að­ar­mót, myndir þú segja að þú ættir afgang, endar næðu saman eða þú næðir ekki endum saman?“ og „Telur þú að hagur þinn muni almennt batna eða versna á næstu miss­erum?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár