Mynd: EPA

Af hverju eru allir að horfa á NFL?

Ofur­skálin eða Super Bowl er í kvöld. New England Patriots mæta Phila­delphia Eagles í Minnesota og búist er við því að venju sam­kvæmt muni hund­ruðir millj­óna víðs vegar um heim­inn horfa á bæði leik­inn og hálf­leiks sýn­ing­una.

Ofur­skálin eða Super Bowl er í kvöld. Þar mæt­ast liðin New England Patriots og Phila­delphia Eagles.

Um er að ræða einn vin­sælasta sjón­varps­við­burð í heimi þar sem ríf­lega hund­rað millj­ónir áhorf­enda í Banda­ríkj­unum fylgj­ast með, ásamt umtals­vert fleirum um heim allan. Stöð 2 Sport sýnir leik­inn á Íslandi og hefur gert und­an­farin ár. Engar tölur um áhorf eru fáan­legar en leiða má að því líkum að fleiri og fleiri bæt­ist við íslenska áhorf­enda­hóp­inn á ári hverju ef marka má aukna þát­töku í umræðu um íþrótt­ina á sam­fé­lags­miðlum.

Þjóðaríþróttin

Ameríski fót­bolt­inn er án efa þjóðar­í­þrótt Banda­ríkja­manna. Hún nýtur fádæma vin­sælda og til sam­an­burðar má nefna að um 20,4 millj­ónir manna horfðu á úrslita­leik banda­ríska körfu­bolt­ans í fyrra, sem er nokkurn veg­inn sama á horf og venju­legur sunnu­dags­leikur fær í NFL. Á úrslita­leik NFL í fyrra horfðu hins vegar 111 millj­ónir.

Rétt eins og í öðrum íþróttum byrja menn (kvenna­deildir í amer­ískum fót­bolta hafa náð afar tak­mörk­uðum vin­sældum) snemma að æfa.

Íþrótta­iðkun í Banda­ríkj­unum yfir­leitt er nokkuð frá­brugðin því sem við þekkjum, en þar spila leik­menn iðu­lega fyrir skóla sína en ekki sér­stök lið. High school fót­bolt­inn er meðal vin­sæl­ustu íþrótt­anna meðal ungs fólks vestan hafs og mikið látið með leiki og leik­menn lið­anna. Oft og tíðum eru sér­stök pep rallies, ein­hvers konar stuðn­ings hátíðir, haldnar fyrir leiki, skóla­hljóm­sveit­irnar spila, klapp­stýrur koma fram sem og ýmis lukku­dýr ásamt öðru. Það er engin sér­stök deild fyrir yngri iðk­endur amer­íska fót­bolt­ans og því eru keppnir milli skóla­lið­anna í raun grunn­ur­inn að fram­halds­iðkun leik­manna og oft kölluð þriðja stoð amer­íska fót­bolt­ans í Banda­ríkj­unum, ásamt háskóla­bolt­anum og sjálfri NFL deild­inni.

Háskól­arnir (colleges) fá til liðs við sig leik­menn sem bera af með því að bjóða þeim skóla­styrki, stórar leik­manna­búðir eru settar upp á háskóla­svæð­unum þar sem prufur eru haldnar áður en leik­menn eru ráðnir til liðs við skól­ana. Leikmenn eru próf­aðir í 40 yarda sprettum, lip­urð, stökkum, köstum og lyft­ingum af ýmsu tagi. Flestir háskól­arnir ráða til sín lík­menn frá sínu land­svæði eða ríki, en hinir stærri leita að efni­legum leik­mönnum á lands­vísu og hafa innan sinna ráða útsend­ara sem fylgj­ast með leikjum alls staðar í Banda­ríkj­unum.

Háskóla­deild­inn, önnur stoð amer­íska fót­bolt­ans, er rétt eins og NFL deildin gríð­ar­lega vin­sæl. Sums staðar í Banda­ríkj­unum meira að segja vin­sælli en atvinnu­manna­deildin. Frammi­staða leik­manna í háskóla­bolt­anum hefur bein áhrif á mögu­leika þeirra til að verða atvinnu­menn, en bestu leik­menn­irnir eru valdir form­lega í svoköll­uðu „drafti“ eftir þrjú til fjögur ár í háskóla. Draftið er haldið á vorin þar sem 256 leik­menn eru valdir inn í NFL deild­ina af hverju og einu liði.

Háskóla­bolt­inn, eins vin­sæll og hann er, er ekki óum­deildur. Gríð­ar­legir fjár­munir fara í deild­ina, en þó þannig að óheim­ilt er að greiða leik­mönnum nokkur laun. Þess í stað fá þeir greitt í gegnum skóla­styrki sem nýt­ast þeim í skóla­gjöld, hús­næði og bóka­kostnað. Í ein­hverjum til­fellum er það þannig að þjálf­arar fót­boltalið­anna fá hærri laun en skóla­stjórar skól­anna, leik­menn fá íviln­andi með­ferð við nám sitt sem og ef þeir ger­ast brot­legir við lög eða reglur skól­anna. Þetta er þó alls ekki algilt og á helst við um stærri liðin. Raunin er þó sú að flest háskóla­lið­inn skil­uðu til dæmis tapi árið 2014.

Patriots - hinn augljósi sigurvegari

New England Patriots er liðið til að vinna. Patriots hafa kom­ist í Super Bowl tíu sinnum, mest allra liða. Þar af átta sinnum síðan núver­andi þjálf­ari, Bill Belichick og leik­stjórn­and­inn og súper­stjarnan Tom Brady komu til liðs við liðið árið 2000. Liðið er það sig­ur­sælasta í sögu NFL, hafa fimmtán sinnum unnið AFC deild­ina frá 2001 og sett hvert metið á fætur öðru á síð­ustu árum. Liðið hefur fimm sinnum orðið Super Bowl meist­arar, sem er jafn oft og San Francisco 49ers og Dallas Cowboys, en aðeins lið Pitts­burg Steelers hefur sigrað oftar eða sex sinnum. Patriots gætu jafnað það í kvöld.

Þjálf­ar­inn Bill Belichick, fullu nafni William Stephen Belichick, er stjarna í amer­íska fót­bolt­anum. Bill, sem er 65 ára gam­all, er í raun­inni bæði yfir­þjálf­ari og fram­kvæmda­stjóri Patriots. Hann hefur þjálfað í NFL deild­inni frá árinu 1975, byrj­aði hjá Baltimore Colts sem aðstoð­ar­maður þjálf­ara en varð fyrst yfir­þjálf­ari hjá Cleveland Browns árið 1991.

Áður en hann varð yfir­þjálf­ari hjá Patriots stopp­aði hann stutt við í sama starfi hjá New York Jets, eða í aðeins tvo daga áður en hann færði sig yfir. Belichick er marg­verð­laun­aður fyrir störf sín, slegið ótelj­andi met og hlotið marg­vís­lega titla. Enginn hefur verið eins lengi í starfi yfir­þjálf­ara.

En valda­tíð Belichick hefur ekki gengið snuðru­laust fyrir sig. Tveir stórir skandalar standa upp úr á ferli þessa far­sæla þjálf­ara. Annars vegar svo kallað „Spygate“ og hins vegar „Defla­tegate“.

Spygate

„Njósn­a­málið“ var stór­mál árið 2007. Þá varð liðið upp­víst af því að taka upp á mynd­band merkin sem varn­ar­þjálf­arar New York Jets gáfu leik­mönnum sínum í leik. Upptökur sem slíkar af þjálf­urum ann­arra liða eru ekki óheim­ilar, en það eru aðeins sér­stök svæði þar sem slíkt er leyft. Patriots hins vegar tóku mynd­böndin upp af hlið­ar­lín­unni sem er bannað. Belichick var per­sónu­lega sektaður um hálfa milljón Banda­ríkja­dala (sem er hæsta upp­hæð sem hægt er að sekta og hæsta upp­hæð sem þjálf­ari hefur nokkurn tím­ann verið sektaður um í sögu NFL) og Patriots liðið um 250 þús­und dali. Þá var liðið svipt rétti sínum til að velja leik­mann í fyrstu umferð leik­manna­vals­ins eða drafts­ins árið eftir.

Deflategate

Skandall­inn sem lík­leg­ast ætti rétti­lega að heita leka­málið (sem því miður er frá­tekið), er Defla­tegate eða stóra bolta­málið eins og Vísir nefndi það í umfjöllun sinni. Þar var liðið sektað um milljón Banda­ríkja­dala fyrir að hafa tekið loft úr keppn­is­boltum fyrir leik í úrslita­keppn­inni árið 2015. Þá var leik­stjórn­and­inn Tom Brady settur í fjög­urra leikja bann vegna vit­neskju og þát­töku í mál­inu. Félagið missti einnig tvo val­rétti, þar af annan þeirra í fyrstu umferð nýliða­vals­ins árið eftir. Um var að ræða und­an­úr­slita­leik Patriots gegn Indi­ana­polis Colts sem Patriots vann 45-7. Í skýrslu sem NFL lét vinna um málið var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Patriots hafi vilj­andi reynt að svindla með því að láta ein­stak­ling­inn sem sá um búnað félags­ins taka loft úr bolt­unum eftir að dóm­ar­arnir höfðu gengið úr skugga um að þeir væru lög­legir. Minna loft í bolt­unum átti að auð­velda Tom Brady að ná betra gripi á bolt­anum.

En skandal­arnir skyggja lík­leg­ast lítið á glæstan feril Belichick. Undir hans stjórn hefur liðið orðið eitt það agað­asta í sögu NFL. Gríð­ar­leg áhersla er lögð á lið­sand­ann, bæði inn­an­vallar og utan, og þrátt fyrir að sportið í heild sinni sé eitt­hvert það stra­tegís­kasta í heimi fyrir utan mögu­lega skák­ina, þá er Patriots liðið sér­stak­lega þekkt fyrir afar stra­tegískan leik, þar sem mikil áhersla er lögð á und­ir­bún­ing og end­ur­tekn­ingar, vinnu­semi, fjöl­breytni og að klippa út stór egó.

Uppselt hefur verið á hvern ein­asta heima­leik Patriots, sem spilar á Gillette vell­inum rétt fyrir utan Boston, frá árinu 1994 og er liðið það þriðja verð­mætasta í deild­inni, á eftir Dallas Cowboys og Washington Redskins.

Brady - GOAT

Stærsta stjarna liðs­ins, og lík­leg­ast ein­hver far­sæl­asti íþrótta­maður sög­unnar, er liðs­stjórn­and­inn Tom Brady. Tom, sem heitir fullu nafni Thomas Edward Patrick Brady Junior, er fæddur árið 1977 og því 40 ára gam­all. Enginn yfir fer­tugu hefur leitt lið sitt til sig­urs í Super Bowl en það er aðeins eitt af fjöl­mörgum metum sem Brady getur slegið um helg­ina. Hann er nú þegar einn af aðeins tveimur leik­mönnum sem hefur unnið fimm Super Bowl titla og gæti unnið sinn sjötta í kvöld.

Brady spil­aði fyrir Háskól­ann í Michigan og var val­inn til Patriots í sjöttu umferð nýliða­vals­ins árið 2000. Hann hefur fjórum sinnum verið val­inn verð­mæt­asti leik­maður Super Bowl, MVP, tvisvar sinnum verið MVP deild­ar­innar, á ýmis met í send­ingu mót­tek­inna send­inga, marks­end­inga og öðrum sér­stökum frammi­stöðu­legum þáttum.

Brady er ekki aðeins þekktur fyrir það sem hann gerir inn­an­vallar. Hann er til að mynda giftur súper­mód­el­inu Gisele Bündchen og á með henni tvö börn, og eitt til úr fyrra sam­bandi. Hann er mikið heilsugúrú og heldur úti vef­síð­unni TB12Sports.com þar sem hann skýrir frá æfinga­prógrammi sínu og selur varn­ing. Þar á meðal sér­stakt fæði en þau hjónin eru þekkt fyrir mjög strangt matar­æði, sem sam­anstendur aðal­lega af hrá­fæði, vegan­inni­haldi og líf­rænum vörum. Þau borða ekki heldur neitt glút­ein eða mjólk­ur­vörur. Bók í þessum anda kom út í sept­em­ber í fyrra, The TB12 Method, og komst innan tveggja sól­ar­hringa á topps­tölu­lista Amazon.

Stjórn­mála­skoð­anir Brady hafa vakið tölu­verða eft­ir­tekt. Brady var við­staddur stefnu­ræðu þá for­set­ans George W. Bush árið 2004. Hann er einnig ein­hvers konar vinur núver­andi for­seta Donald Trump og hefur sagt frá því að þeir hafi verið vinir lengi. Trump sjálfur hélt því fram dag­inn fyrir kosn­ing­arnar árið 2016 að Brady hefði hringt í hann og lýst yfir stuðn­ingi við hann. Gisele hins vegar þvertók fyrir það þegar hún varð spurð. Eftir að ljós­mynd náð­ist af der­húfu með slag­orði Trump úr kosn­inga­bar­átt­unni, „Make America Great Again“ í bún­ings­klefa Brady sagði hann við fjöl­miðla að Gisele hefði bannað honum að ræða um póli­tík sem hann taldi vera góð hug­mynd.

Eagles - undirhundarnir

Mótherjar Patriots í úrslita­leiknum á eftir eru Phila­delphia Eagles. Ernirnir eiga ein­hverja sterk­ustu stuðn­ings­menn í deild­inni og hafa selt upp á hvern ein­asta heima­leik frá árinu 1999. En þeir hafa hins vegar aldrei unnið Super Bowl.

Yfir­þjálf­ar­inn er Doug Pederson, sem er á engan hátt sama stjarna og kollegi hans Bill Belichick. Hann hefur starfað innan þjálf­arateymis Eagles frá árinu 2005 en spil­aði sjálfur með lið­inu frá árinu 2001 til 2004. Sem leik­maður var hann lengst hjá Green Bay Packers, frá árinu 1995 til 1998 og síðan aftur frá 2001 til 2004, sem vara­lið­stjórn­andi. Pederson var gerður að aðal­þjálf­ara Eagles árið 2016.

Fyrsta tíma­bil Pederson með Örnunum gekk upp og ofan. Liðið vann fyrstu þrjá leiki sína en end­aði með sjö leiki sigr­aða og níu sem töp­uð­ust og komst ekki í umspil eða úrslit. Tíma­bilið 2017 gekk mun betur og end­aði eins og gefur að skilja nú í sjálfum úrslita­leiknum.

Liðið vann 13 af 16 leikjum sínum og sló síðan Atlanta Falcons og Minnesota Vikings út í úrslita­keppn­inni á leið sinni í Super Bowl.

Leik­stjórn­and­inn sem mun leiða liðið á eftir heitir Nick Foles. Foles þessi er áhuga­verður. Eftir að hafa næstum því lagt skónna á hill­una til að ger­ast prestur var hann tek­inn inn í liðið að nýju til þess að bakka aðal­leik­stjórn­ann­d­ann Carson Wentz upp. Hann er því í raun vara­liðs­stjórn­andi, en Eagles missti Wentz í kross­banda­slit undir lok tíma­bils­ins.

Foles átti stór­leik gegn Vikings í und­an­úr­slit­unum, þar sem hann átti þrjár snerti­marks­send­ingar auk þess sem hlut­fall heppn­aðra send­inga var afar gott, 26 af 33. Hann kastaði alls 353 yarda í leiknum.

Grein­endur á vef­síðu NFL deild­ar­innar segja að Foles sé lélegur undir pressu, og hún er sann­ar­lega lík­leg til að láta sjá sig á eftir, en er þó til alls lík­legur og mjög óút­reikn­an­legur og því ómögu­legt að afskrifa hann.

Verður þetta leikur?

Flestir búast við sigri Patriots. Og öll töl­fræði bendir í þá átt. En það er síðan þessi x faktor í íþrótt­unum sem getur leitt til hvaða nið­ur­stöðu sem er. Brady gæti átt slæman dag. Eagles gæti spilað umfram getu. Það getur alltaf allt gerst inn á vell­inum.

Ernirnir hafa með undra­verðum hætti tekið „und­ir­hunda“ eða„ und­er­dog“ hlut­verk sitt í fangið. Fáir höfðu trú á þeim í úrslita­keppn­inni, en þar komu þeir, sáu og sig­urðu - og not­uðu nokkrir stuðn­ings­menn þeirra meira að segja grímur með and­litum þýskra fjár­hunda til að und­ir­strika sam­lík­ing­una.

Doug Pederson hefur sagst hafa verið und­ir­hundur allan sinn starfs­feril, allt sitt líf. „Allt sem ég hef gert, þá hef ég annað hvort ekki verið nógu góður eða eitt­hvað nei­kvætt hefur verið sagt eða skrifað um það. Og ég bara blæs á það. Ég hef trú á þessum strákum og þessu liði.“

Ernirnir eru að taka þessu per­sónu­lega. Þeir eru á heild­ina litið með sterkt lið sem ætti að geta skilað af sér góðu verki.

Talið er að besta tæki­færi Eagles til að sigra Patriots sé með því að keyra á Brady. Að vörnin standi sína plikt og gefi honum ekki tæki­færi til að kasta sínum ótrú­legu köstum á sókn­ar­menn­ina sína. Það er hins vegar hæg­ara sagt en gert, Brady stendur sig aldrei betur en undir álagi og helst þegar hann verður svo­lítið pirr­aður.

Vörnin hjá Örnunum er feikna­sterk og hefðu þeir Wentz heilan til að spila leik­inn væru þeir í tölu­vert betri málum. En hann er bara ekki til staðar og erfitt að segja til um hvernig Foles mun standa sig á stóra svið­inu. Svo stór hluti af örlögum leiks­ins munu ráð­ast á sek­úntu ákvarð­ana­töku leik­stjórn­and­anna tveggja - og þar stendur Patriots umtals­vert betur að vígi. Reynslan af stór­leikjum eins og þessum getur einnig komið lið­inu langt. Þeir hafa verið þarna áður og kunna það upp á 10. Þeir eru hins vegar ekki með neitt sér­lega sterka vörn sem gæti komið sér vel fyrir Eagles.

Þeir Andri, Henry og Eiríkur Stefán spá í NFL spilin.
Þeir Andri, Henry og Eiríkur Stefán spá í NFL spilin.

Spekingar spá í spilin

Eins og fyrr segir verður Super Bowl leik­ur­inn í beinni útsend­ingu á Stöð 2 Sport. Leik­ur­inn sjálfur hefst klukkan 23.30 en upp­hitun hefst í beinni klukkan 22.00. Þátta­stjórn­and­inn verður sem fyrr Andri Ólafsson, en honum til halds og trausts til að greina leik­inn verða íþrótta­f­rétta­menn­irnir Eiríkur Stefán Ásgeirs­son og Henry Birgir Gunn­ars­son. Hinn trausti og glettni íþrótta­f­rétta­maður, Tómas Þór Þórð­ar­son, mun síðan sjá um að lýsa sjálfum leiknum.

Þeir félag­arnir búast við góðum leik og skynja auk­inn áhuga á íþrótt­inni hér á landi frá ári til árs.

„Maður sér það á umræð­unni, til dæmis á Twitter,“ segir Eiríkur í sam­tali við Kjarnann. „Fólk er lík­lega að átta sig á því hversu ótrú­lega skemmi­leg íþrótt þetta er. Það hefur þótt frá­hrind­andi hversu langar útsend­ing­arnar eru með tíðum aug­lýs­inga­hléum en fólk sem hefur sog­ast inn hefur ekki sloppið út aftur. Margir hafa kynnst íþrótt­inni í gegnum Fantasy-leik­inn, sem er afar vin­sæll á Íslandi, sem skemmir ekki fyrir,“ segir Eiríkur Stefán.

Andri spáir spenn­andi leik. Hann segir Super Bowl leik­ina und­an­farin ár oftar en ekki hafa verið mjög spennadi, ekki síst þegar Patriots eru að spila, hvort sem liðið hefur tapað eða sigrað, þá sé spennustigið í leikjum þeirra almennt mjög hátt. „Það er það sem ég og allir aðdá­endur íþrótt­ar­innar von­umst eftir,“ segir Andri.

Hann bendir á að úrslita­leik­irnir séu alltaf á allt öðru tempói eða hraða en venju­legir deild­ar­leikir. Vegna aug­lýs­ing­anna séu öll leik­hlé helm­ingi lengri, öll leik­stopp eru lengri og hálf­leik­ur­inn, þar sem Justin Tim­berlake mun koma fram ásamt fríðu föru­neyti er tvö­falt lengri en í öðrum leikjum. „Leik­ur­inn er því allt öðru­vísi upp settur en maður á að venj­ast og það getur haft áhrif. Leik­menn­irnir koðna kannski niður í þessum löngu hléum og Patriots kunna þetta miklu betur.“

Andri segir að hvernig svo sem þetta fer þá verði nið­ur­staðan fal­leg. „Það að Patriots vinni, fari svo, er svo mikil und­ir­strikun á yfir­burðum Brady-Belichick sam­starf­inu og að ná að kreista út enn einn Super Bowl sig­ur­inn með ekki sterk­ari mann­skap og Brady fer­tugan yrði mjög geggjað. Að sama skapi, ef að Eagles vinnur verður það ekk­ert síður fal­legt. Ef að þessi forn­fræga íþrótta­borg nær loks­ins að vinna tit­il­inn, gleymum ekki að Rocky kemur frá Phila­delp­hiu, og það gegn Brady og Belichick, verður það virki­lega skemmti­legt. Sama hvernig þetta fer þá verður það sögu­legt og eitt­hvað sem allir íþrótta-róm­an­tíkerar ættu að elska,“ segir Andri.

Ekki bara fótbolti heldur stemmningin

En það er ekki bara út af ást á leiknum sem svo margir heill­ast af íþrótt­inni, og ekki síst Super Bowl. Úrslita­leik­ur­inn er ekki síður ein­hvers konar menn­ing­ar­við­burður. Leik­ur­inn fer að þessu sinni fram á U.S. Bank Statium, heima­velli Minnesota Vikings, sem er nýjasti leik­vangur deild­ar­innar - með gler­þaki sem gerir það að verkum að völl­ur­inn þolir hvers kyns veður og vinda.

Söng­konan Pink mun syngja banda­ríska þjóð­sögn­inn fyrir leik­inn og hálf­leiks sýn­ingin verður í höndum Justin Tim­berlake. Tim­berlake hefur eins og flestir vita komið fram áður í hálf­leiks­sýn­ingu Super Bowl. Hálf­leiks­sýn­ingin árið 2004 var stjörnum hlaðin, ásamt Tim­berlake komu þau fram Kid Rock, Nelly, Jessica Simpson, P. Diddy og síðan Janet nokkur Jackson.

Við lok sýn­ingar allra þess­ara lista­manna reif Tim­berlake hluta af klæðn­aði Jackson sem gerði það að verkum að geir­varta hennar sást. Óhætt er að segja að allt hafi orðið vit­laust, en CBS sjón­varp­stöðin sem hafði sýn­ing­ar­rétt­inn var sektuð um rúma hálfa milljón Banda­ríkja­dala fyrir atvikið. Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna dró síðar sekt­ina til baka.

Búast má við mik­illi sýn­ingu frá Tim­berlake á eftir en svo skemmti­lega vill til að hann gaf einmitt út nýja plötu nú á föstu­dag­inn, en hvort frammi­staðan mun verða eins umdeild og síð­ast skal ósagt látið.

Auglýsingar ársins og djúpsteikt allt

Aug­lýs­inga­tím­inn sem seldur er í Banda­ríkj­unum yfir Super Bowl er sá allra dýr­asti sem fyr­ir­finnst. Í aðsendri grein í Frétta­blað­inu segir Björn Berg Gunn­ars­son fræðslu­stjóri Íslands­banka og íþrótta­spek­úlant, frá því að 93 pró­sent áhorf­enda segj­ast ræða aug­lýs­ing­arnar sem birt­ast á skjánum yfir leiknum við félaga sína eftir leik­inn. Talið er að greiða þurfu um hálfan millj­arð króna fyrir hálfa mín­útu í aug­lýs­inga­tíma á meðan leiknum stendur. Björn áætlar að banda­rískir fjöl­miðlar hali inn um 40 millj­örðum króna frá aug­lýsendum á þessum örfáu klukku­stundum á eftir, sem er tæp­lega fjórum sinnum meira en nemur öllum aug­lýs­ingum á Íslandi, í öllum miðlum á heilu ári.

Björn segir að auki frá því að áætlað sé að full­orðnir íbúar Banda­ríkj­anna verji 8.200 krónum að með­al­tali í neyslu á þessum degi, sem er 8,5 pró­senta aukn­ing frá síð­asta ári og 72 pró­senta aukn­ing frá 2010. Yfir millj­arður lítra bjórs skolar niður vængjum af 650 millj­ónum kjúklinga og kalor­í­urnar eru fleiri en á jóla­dag.

Andri segir Íslend­ing­ana sem fylgj­ast með NFL ekk­ert frá­brugðna banda­rískum félögum sínum að þessu leyti. „Ég fór í Costco í gær og sá bara ótrú­lega margar inn­kaupa­kerrur fullar af amer­ísku rusl­fæði og það er nátt­úru­lega bara frá­bært. Það er svo mik­ill event í þessu og það skemmti­lega við þetta er hvað fólk er dug­legt að taka myndir og deila þeim með öðrum á Twitter. Og það er ákveðin kald­hæðni falin í því, ákveðin stemmn­ing og líka ákveðin keppni. Menn vilja vera með almenni­legar veit­ingar og það er að mynd­ast skemmti­leg hefð í þessu,“ segir Andri sem býst við fjörugri NFL umræðu undir myllu­merk­inu #NFLís­land.

Enginn spek­inga Stöðvar 2 Sport vildi spá fyrir um úrslitin, en allir gerðu þeir ráð fyrir skemmti­legum leik og góðu kvöldi yfir þess­ari þjóðar­í­þrótt að vestan!

Hvað er NFL?

Super Bowl er úrslita­leik­ur­inn í NFL deild­inni, National Football League, sem er aðal­deild amer­íska fót­bolt­ans í Banda­ríkj­unum. Deildin sam­anstendur af 32 liðum, hvaðanæva úr land­inu. Deild­inni er skipt í tvær deildir, Amer­íku­deild­ina AFC og Þjóð­ar­deild­ina NFC.

Þessum tveimur deildum er síðan báðum skipt niður í fjóra riðla eftir höf­uð­átt­unum þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli. Hvert lið spilar 16 deild­ar­leiki þar sem tólf lið, sex úr hvorri deild, AFC og NFC, kom­ast í umspil, sem er útslátt­ar­keppni sem síðan endar í úrslita­leik sig­ur­veg­ara hvorrar deildar, Super Bowl.

Leik­ur­inn sjálfur er sam­tímis ein­faldur og gríð­ar­lega flók­inn. Markmið leiks­ins er að skora sem flest stig með því að koma bolt­anum yfir marklínu and­stæð­ings­ins eða sparka honum milli markstanga við enda leik­vall­ar­ins. Til að koma bolt­anum áfram upp völl­inn er heim­ilt að kasta honum, hlaupa með hann eða rétta bolt­ann áfram.

Hver leikur sam­anstendur af fjórum korters leik­hlutum, með hálf­leik eftir annan leik­hluta og stutt hlé milli ann­arra fjórð­unga. Leikklukkan er reyndar stöðvuð við ýmis til­efni í leiknum, til dæmis þegar leik­maður hleypur út af vell­inum, ef send­ing ratar í jörð­ina en ekki fangið á leik­manni eða þegar lið tekur leik­hlé. Þetta leiðir eðli máls­ins sam­kvæmt af sér tölu­vert lengri leik og geta leikir vel staðið yfir í meira en þrjá klukku­tíma.

Völlurinn skiptist upp í 100 „yarda“.
Völl­ur­inn skipt­ist upp í 100 „yarda“.

Völl­ur­inn skipt­ist upp þannig að við hvorn enda vall­ar­ins er mark­s­væði eða teigur, þangað sem leik­menn þurfa að kom­ast til að skora mark. Á milli þess­ara svæða eru 100 „yardar“ (einn yard er tæpur metri að lengd, 0,914).

Í upp­hafi hverrar sóknar fær sókn­ar­liðið 4 til­raunir til að koma bolt­anum áfram 10 yarda. Náist það byrja til­raun­irnar upp á nýtt og reynir liðið þannig að vinna sig upp völl­inn að mark­teig and­stæð­ings­ins. Takist ekki að kom­ast þessa 10 yarda fær hitt liðið bolt­ann. Yfir­leitt nota liðin aðeins fyrstu þrjár til­raun­irnar til að kom­ast áfram en sú fjórða er þá notuð til að sparka bolt­anum (punta) áfram upp völl­inn til þess að hitt liðið hefji sína sókn eins aft­ar­lega og þannig langt frá mark­t­eignum og mögu­legt er.

Mörk eru skoruð með svoköll­uðu snerti­marki, eða touchdown þegar leik­maður hleypur með bolt­ann inn í mark­teig and­stæð­ing­anna. Slíkt mark gefur sex stig. Hægt er að fá eitt auka­stig með valla­marki sem fæst með því að spyrna bolt­anum í gegnum markstang­irnar. Reyndar er líka hægt að sleppa þessu auka­stigi en freista þess í stað­inn að fá tvö stig, með því að hlaupa í einni til­raun inn í mark­teig­inn og skora þannig annað snerti­mark.

Að auki er hægt að skora þriggja stiga vall­ar­mark, en yfir­leitt eru slík mörk skoruð ef lið er komið nægi­lega nálægt mark­stöng­unum í fjórðu til­raun eða þegar lít­ill tími er eftir af leiknum.

Í hvoru liði eru 11 leik­menn inn á í einu. Hver leik­maður hefur mjög sér­hæft hlut­verk og liðin skipta leik­mönnum sínum í þrjú lið, sókn­ar­liðið, varn­ar­liðið og sér­hæfa liðið. Leyfi­legt er að skipta leik­mönnum inn og út eftir hverja sókn­ar­til­raun en alls geta 46 mis­mun­andi leik­menn tekið þátt í einum og sama leiknum. Sérhæfðu liðin sjá til dæmis um vall­ar­mörkin, upp­hafs­spörk og spyrnur úr höndum leik­manna, puntin, en hlut­verk sóknar- og varn­ar­lið­anna segja sig nokkurn veg­inn sjálf.

Bæði einfalt og virkilega flókið

Gríð­ar­lega margar reglur og útfærslur sóknar- og varn­ar­leikja eru í NFL. Hver leik­maður inni á vell­inum hefur ákveðið hlut­verk, sumir kasta, sumir verj­ast, aðrir hlaupa og ekki allir mega grípa. Dóm­ar­arnir eru sjö, hver og einn með ákveðið hlut­verk og eru þeir fyr­ir­ferða­miklir í hverjum leik. Þegar brot á sér stað kasta þeir upp litlu gulu flaggi og geta til dæmis fært liðin nær eða fjær mark­t­eignum. Dóm­ar­arnir kveða upp dóma sína í hátal­ara­kerfi svo áhorf­endur heyra og skilja vel hvert brot og afleið­ing­arnar. Þá er not­ast við mynd­bands­upp­tökur af atvikum og má þjálf­ari hvers liðs kastað inn litlu rauðu flaggi, efist hann um nið­ur­stöðu dóm­ar­anna, og er atvik þá skoðað sér­stak­lega á mynd­bandi.

Mesti og dýpsti skiln­ing­ur­inn á leiknum fæst hins vegar ekki með því að lesa regl­urnar og ómennt­aðar frétta­skýr­ingar áhuga­manna um leik­inn, heldur ein­fald­lega með því að horfa reglu­lega á leik­ina og hlusta á lýs­ingar lýsenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár